Jóhannes skírir og kennir

1 Á fimmtánda stjórnarári Tíberíusar keisara, þegar Pontíus Pílatus var landstjóri í Júdeu en Heródes fjórðungsstjóri í Galíleu, Filippus, bróðir hans, í Ítúreu og Trakónítishéraði og Lýsanías í Abílene, 2 í æðstapreststíð Annasar og Kaífasar, kom orð Guðs til Jóhannesar Sakaríasonar í óbyggðinni. 3 Og hann fór um alla Jórdanbyggð og boðaði mönnum að taka sinnaskiptum og láta skírast til fyrirgefningar synda, 4 eins og ritað er í bók Jesaja spámanns:
Rödd hrópanda í eyðimörk:
Greiðið veg Drottins,
gerið beinar brautir hans.
5Öll gil skulu fyllast,
öll fell og hálsar jafnast,
bugður verða beinar
og óvegir sléttar götur.
6Og allir munu sjá hjálpræði Guðs.
7 Við mannfjöldann, sem fór út til að láta hann skíra sig, sagði hann: „Þið nöðrukyn, hver kenndi ykkur að flýja komandi reiði? 8 Sýnið í verki að þið hafið tekið sinnaskiptum og farið ekki að segja með sjálfum ykkur: Við eigum Abraham að föður. Ég segi ykkur að Guð getur vakið Abraham börn af steinum þessum. 9 Öxin er þegar lögð að rótum trjánna og hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og því í eld kastað.“
10 Mannfjöldinn spurði hann: „Hvað eigum við þá að gera?“
11 En hann svaraði þeim: „Sá sem á tvo kyrtla gefi þeim er engan á og eins geri sá er matföng hefur.“
12 Þá komu og tollheimtumenn til að skírast. Þeir sögðu við hann: „Meistari, hvað eigum við að gera?“
13 En hann sagði við þá: „Heimtið ekki meira en fyrir ykkur er lagt.“
14 Hermenn spurðu hann einnig: „En hvað eigum við að gera?“
Hann sagði við þá: „Hafið ekki fé af neinum, hvorki með ofríki né svikum. Látið ykkur nægja mála ykkar.“
15 Allir voru nú fullir eftirvæntingar og hugsuðu með sjálfum sér hvort Jóhannes kynni að vera Kristur. 16 En Jóhannes svaraði öllum og sagði: „Ég skíri ykkur með vatni en sá kemur sem mér er máttugri og er ég ekki verður að leysa skóþveng hans. Hann mun skíra ykkur með heilögum anda og eldi. 17 Hann er með varpskófluna í hendi sér til þess að gerhreinsa láfa sinn og safna hveitinu í hlöðu sína en hismið mun hann brenna í óslökkvanda eldi.“
18 Með mörgu öðru hvatti hann fólk og flutti því fagnaðarboðin.

Varpað í fangelsi

19 Jóhannes vítti Heródes fjórðungsstjóra vegna Heródíasar, konu bróður hans, og fyrir allt hið illa sem hann hafði gert. 20 Þá bætti Heródes einnig því ofan á allt annað að hann varpaði Jóhannesi í fangelsi.

Jesús skírður

21 Er allt fólkið lét skírast var Jesús einnig skírður. Þá bar svo við, er hann gerði bæn sína, að himinninn opnaðist 22 og heilagur andi steig niður yfir hann í líkamlegri mynd, eins og dúfa, og rödd kom af himni: „Þú ert minn elskaði sonur, á þér hef ég velþóknun.“[

Ættartala

23 En Jesús var um þrítugt er hann hóf starf sitt. Var hann, eftir því sem haldið var, sonur Jósefs, sonar Elí, 24 sonar Mattats, sonar Leví, sonar Melkí, sonar Jannaí, sonar Jósefs, 25 sonar Mattatíass, sonar Amoss, sonar Naúms, sonar Eslí, sonar Naggaí, 26 sonar Maats, sonar Mattatíass, sonar Semeíns, sonar Jóseks, sonar Jóda, 27 sonar Jóhanans, sonar Hresa, sonar Serúbabels, sonar Sealtíels, sonar Nerí, 28 sonar Melkí, sonar Addí, sonar Kósams, sonar Elmadams, sonar Ers, 29 sonar Jesú, sonar Elíesers, sonar Jóríms, sonar Mattats, sonar Leví, 30 sonar Símeons, sonar Júda, sonar Jósefs, sonar Jónams, sonar Eljakíms, 31 sonar Melea, sonar Menna, sonar Mattata, sonar Natans, sonar Davíðs, 32 sonar Ísaí, sonar Óbeðs, sonar Bóasar, sonar Salmons, sonar Naksons, 33 sonar Ammínadabs, sonar Admíns, sonar Arní, sonar Esroms, sonar Peres, sonar Júda, 34 sonar Jakobs, sonar Ísaks, sonar Abrahams, sonar Tara, sonar Nakórs, 35 sonar Serúgs, sonar Reú, sonar Pelegs, sonar Ebers, sonar Sela, 36 sonar Kenans, sonar Arpaksads, sonar Sems, sonar Nóa, sonar Lameks, 37 sonar Metúsala, sonar Enoks, sonar Jareds, sonar Mahalalels, sonar Kenans, 38 sonar Enoss, sonar Sets, sonar Adams, sonar Guðs.