Góð verk

1 Minn þau á að lúta höfðingjum og yfirvöldum, vera hlýðin og reiðubúin til sérhvers góðs verks, 2 lastmæla engum, vera friðsöm, sanngjörn og sýna öllum mönnum vinsemd. 3 Því að þeir voru tímarnir að við vorum einnig óskynsöm, óhlýðin, villuráfandi, í ánauð hvers konar fýsna og lostasemda. Við ólum aldur okkar í illsku og öfund, vorum andstyggileg, hötuðum hvert annað. 4 En er gæska Guðs, frelsara vors, birtist og elska hans til mannanna, 5 þá frelsaði hann okkur, ekki vegna réttlætisverkanna, sem við höfðum unnið, heldur frelsaði hann okkur af miskunn sinni. Það gerði hann í þeirri laug endurfæðingar og endurnýjunar heilags anda sem 6 hann lét ríkulega yfir okkur streyma sakir Jesú Krists, frelsara vors. 7 Þannig erum við réttlætt fyrir náð hans og urðum í voninni erfingjar eilífs lífs.
8 Það orð er satt, og á þetta vil ég að þú leggir alla áherslu til þess að þau sem fest hafa trú á Guð láti sér umhugað um að stunda góð verk. Þetta er gott og mönnum nytsamlegt. 9 En forðast þú heimskulegar þrætur og ættartölur, deilur og lögmálsstælur. Þær eru gagnslausar og til einskis. 10 Þrætumanni skalt þú sneiða hjá er þú hefur einu sinni eða tvisvar áminnt hann. 11 Þú veist að slíkur maður er rangsnúinn og syndugur. Hann er sjálfdæmdur.

Lokaorð

12 Þegar ég sendi Artemas til þín eða Týkíkus kom þá sem fyrst til mín í Nikópólis því að þar hef ég ásett mér að hafa vetrarvist. 13 Greið sem best för þeirra Senasar lögvitrings og Apollóss til þess að þá bresti ekkert. 14 En okkar menn eiga og að læra að stunda góð verk hvar sem þess er þörf til þess að þeir séu ekki ávaxtalausir.
15 Allir sem hjá mér eru senda þér kveðju. Heilsa þeim sem í trúnni elska mig.
Náð sé með yður öllum.