Minn elskaði sonur

1 Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes, bróður hans, og fer með þá upp á hátt fjall að þeir væru einir saman. 2 Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra, ásjóna hans skein sem sól og klæði hans urðu björt eins og ljós. 3 Og Móse og Elía birtust þeim og voru þeir á tali við Jesú. 4 Pétur tók til máls og sagði við Jesú: „Drottinn, gott er að við erum hér. Ef þú vilt skal ég gera hér þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.“
5 Meðan Pétur var enn að tala skyggði yfir þá bjart ský og rödd úr skýinu sagði: „Þessi er minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á. Hlýðið á hann!“
6 Þegar lærisveinarnir heyrðu þetta féllu þeir fram á ásjónur sínar og hræddust mjög. 7 Jesús gekk til þeirra, snart þá og mælti: „Rísið upp og óttist ekki.“ 8 En er þeir hófu upp augu sín sáu þeir engan nema Jesú einan.
9 Á leiðinni ofan fjallið bauð Jesús þeim: „Segið engum frá sýninni fyrr en Mannssonurinn er risinn upp frá dauðum.“
10 Lærisveinarnir spurðu hann: „Hví segja fræðimennirnir að Elía eigi fyrst að koma?“
11 Jesús svaraði: „Víst kemur Elía og færir allt í lag. 12 En ég segi ykkur: Elía er þegar kominn og menn þekktu hann ekki heldur gerðu honum allt sem þeir vildu. Eins munu þeir láta Mannssoninn þola píslir.“
13 Þá skildu lærisveinarnir að Jesús hafði talað við þá um Jóhannes skírara.

Hjálpa þú

14 Þegar þeir komu til fólksins gekk maður til Jesú, féll á kné fyrir honum 15 og sagði: „Drottinn, miskunna þú syni mínum. Hann er tunglsjúkur og illa haldinn. Oft fellur hann á eld og oft í vatn. 16 Ég fór með hann til lærisveina þinna en þeir gátu ekki læknað hann.“
17 Jesús svaraði: „Þú vantrúa og rangsnúna kynslóð, hversu lengi á ég að vera hjá ykkur? Hversu lengi á ég að umbera ykkur? Færið hann hingað til mín.“ 18 Og Jesús hastaði á hann og illi andinn fór úr honum. Og sveinninn varð heill frá þeirri stundu.
19 Þá komu lærisveinarnir til Jesú og spurðu hann einslega: „Hvers vegna gátum við ekki rekið hann út?“
20 Jesús svaraði þeim: „Vegna þess að ykkur skortir trú. Sannlega segi ég ykkur: Ef þið hafið trú eins og mustarðskorn getið þið sagt við fjall þetta: Flyt þig héðan og þangað og það mun flytja sig. Ekkert verður ykkur um megn. [ 21 En þetta kyn verður eigi út rekið nema með bæn og föstu.]“[
22 Þegar þeir voru saman í Galíleu sagði Jesús við þá: „Mannssonurinn verður framseldur í manna hendur 23 og þeir munu lífláta hann en á þriðja degi mun hann upp rísa.“
Þeir urðu mjög hryggir.

Musterisgjaldið

24 Þá er þeir komu til Kapernaúm gengu menn þeir sem heimta inn musterisgjaldið til Péturs og spurðu: „Geldur meistari ykkar eigi musterisgjaldið?“ 25 Pétur kvað svo vera.
En er hann kom inn tók Jesús fyrr til máls og mælti: „Hvað líst þér, Símon? Af hverjum heimta konungar jarðarinnar toll eða skatt? Af börnum sínum eða vandalausum?“
26 „Af vandalausum,“ sagði Pétur.
Jesús mælti: „Þá þurfa börnin ekki að greiða skatt. 27 En til þess við hneykslum þá ekki skaltu fara niður að vatni og renna öngli, taktu síðan fyrsta fiskinn, sem þú dregur, opna munn hans og muntu finna pening. Tak hann og greið þeim fyrir mig og þig.“