Sakfelld sýknuð

1 En Jesús fór til Olíufjallsins. 2 Snemma morguns kom hann aftur í helgidóminn og allt fólkið kom til hans en hann settist og tók að kenna því. 3 Farísear og fræðimenn koma með konu, staðna að hórdómi, létu hana standa mitt á meðal þeirra 4 og sögðu við Jesú: „Meistari, kona þessi var staðin að verki þar sem hún var að drýgja hór. 5 Móse bauð okkur í lögmálinu að grýta slíkar konur. Hvað segir þú nú?“ 6 Þetta sögðu þeir til að reyna hann svo þeir hefðu eitthvað að ákæra hann fyrir. En Jesús laut niður og skrifaði með fingrinum á jörðina.
7 Og þegar þeir héldu áfram að spyrja hann rétti hann sig upp og sagði við þá: „Sá ykkar sem syndlaus er kasti fyrstur steini á hana.“ 8 Og aftur laut hann niður og skrifaði á jörðina. 9 Þegar þeir heyrðu þetta fóru þeir burt, einn af öðrum, öldungarnir fyrstir. Jesús var einn eftir og konan stóð í sömu sporum.
10 Hann rétti sig upp og sagði við hana: „Kona, hvað varð af þeim? Sakfelldi enginn þig?“
11 En hún sagði: „Enginn, Drottinn.“
Jesús mælti: „Ég sakfelli þig ekki heldur. Far þú. Syndga ekki framar.“][

Jesús, ljós heimsins

12 Nú talaði Jesús aftur til þeirra og sagði: „Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkri heldur hafa ljós lífsins.“
13 Þá sögðu farísear við hann: „Þú vitnar um sjálfan þig. Vitnisburður þinn er ekki gildur.“
14 Jesús svaraði þeim: „Enda þótt ég vitni um sjálfan mig er vitnisburður minn gildur því ég veit hvaðan ég kom og hvert ég fer. En þér vitið ekki hvaðan ég kem né hvert ég fer. 15 Þér dæmið að hætti manna. Ég dæmi engan. 16 En ef ég dæmi er dómur minn réttur því ég er ekki einn, með mér er faðirinn sem sendi mig. 17 Og í lögmáli yðar er ritað að vitnisburður tveggja manna sé gildur. 18 Ég er sá sem vitna um sjálfan mig og faðirinn, sem sendi mig, vitnar um mig.“
19 Þeir sögðu við hann: „Hvar er faðir þinn?“
Jesús svaraði: „Hvorki þekkið þér mig né föður minn. Ef þér þekktuð mig þá þekktuð þér líka föður minn.“
20 Þessi orð mælti Jesús hjá fjárhirslunni þegar hann var að kenna í helgidóminum. Enginn lagði hendur á hann því stund hans var enn ekki komin.

Ekki af þessum heimi

21 Enn sagði Jesús við þá: „Ég fer burt og þér munuð leita mín en þér munuð deyja í synd yðar. Þangað sem ég fer getið þér ekki komist.“
22 Nú sagði fólkið:[ „Mun hann ætla að fyrirfara sér fyrst hann segir: Þangað sem ég fer getið þér ekki komist?“
23 En hann sagði við það: „Þér eruð neðan að, ég er ofan að. Þér eruð af þessum heimi, ég er ekki af þessum heimi. 24 Þess vegna sagði ég yður að þér munduð deyja í syndum yðar. Því ef þér trúið ekki að ég sé sá sem ég er munuð þér deyja í syndum yðar.“
25 Fólkið spurði hann þá: „Hver ert þú?“ Jesús svaraði því: „Sá sem ég hef sagt yður frá upphafi.[ 26 Margt hef ég um yður að tala og fyrir margt að dæma. En sá sem sendi mig er sannorður og það sem ég heyrði hjá honum, það tala ég til heimsins.“
27 Fólkið skildi ekki að hann var að tala við þá um föðurinn. 28 Því sagði Jesús: „Þegar þér hefjið upp Mannssoninn munuð þér skilja að ég er sá sem ég er og að ég geri ekkert einn og sér heldur tala ég það eitt sem faðirinn hefur kennt mér. 29 Og sá sem sendi mig er með mér. Hann hefur ekki látið mig einan því ég geri ætíð það sem honum þóknast.“ 30 Þegar hann mælti þetta fóru margir að trúa á hann.

Frjálsir – þrælar

31 Þá sagði Jesús við Gyðingana, sem tekið höfðu trú á hann: „Ef þér farið eftir því sem ég segi eruð þér sannir lærisveinar mínir 32 og munuð þekkja sannleikann, og sannleikurinn mun gera yður frjálsa.“
33 Fólkið svaraði honum: „Við erum niðjar Abrahams og höfum aldrei verið nokkurs manns þrælar. Hvernig getur þú þá sagt: Þið munuð verða frjálsir?“
34 Jesús svaraði þeim: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Hver sem drýgir synd er þræll syndarinnar. 35 En þrællinn dvelst ekki um aldur á heimilinu, sonurinn dvelst þar um aldur og ævi. 36 Ef sonurinn frelsar yður munuð þér sannarlega verða frjálsir. 37 Ég veit að þér eruð niðjar Abrahams. Þó leitist þér við að lífláta mig því að orð mitt fær ekki rúm hjá yður. 38 Ég tala það sem ég hef séð hjá föður mínum og þér gerið það sem þér hafið heyrt hjá föður yðar.“
39 Menn svöruðu honum: „Faðir okkar er Abraham.“
Jesús svaraði þeim: „Ef þér væruð niðjar Abrahams munduð þér vinna verk Abrahams. 40 En nú leitist þér við að lífláta mig, mann sem hefur sagt yður sannleikann sem ég heyrði hjá Guði. Slíkt gerði Abraham aldrei. 41 Þér vinnið verk föður yðar.“
Menn sögðu við hann: „Við erum ekki hórgetnir. Einn föður eigum við, Guð.“
42 Jesús svaraði: „Ef Guð væri faðir yðar munduð þér elska mig því að frá Guði er ég út genginn og kominn. Ekki hef ég sent mig sjálfur. Það er hann sem sendi mig. 43 Hví skiljið þér ekki mál mitt? Af því að þér getið ekki hlustað á orð mitt. 44 Þér eigið djöfulinn að föður og viljið gera það sem faðir yðar girnist. Hann var manndrápari frá upphafi og hefur aldrei þekkt sannleikann því í honum finnst enginn sannleikur. Þegar hann lýgur fer hann að eðli sínu því hann er lygari og lyginnar faðir. 45 En af því að ég segi sannleikann trúið þér mér ekki. 46 Hver yðar getur sannað á mig synd? Ef ég segi sannleikann, hví trúið þér mér ekki? 47 Sá sem er af Guði heyrir Guðs orð. Þér heyrið ekki vegna þess að þér eruð ekki af Guði.“
48 Þeir svöruðu honum: „Er það ekki rétt sem við segjum að þú sért Samverji og hafir illan anda?“
49 Jesús ansaði: „Ekki hef ég illan anda. Ég heiðra föður minn en þér smánið mig. 50 Ég leita ekki míns heiðurs. Sá er til sem leitar hans og dæmir. 51 Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem varðveitir mitt orð skal aldrei að eilífu deyja.“
52 Þá sögðu þeir við hann: „Nú vitum við að þú hefur illan anda. Abraham dó og spámennirnir og þú segir að sá sem varðveitir orð þitt skuli aldrei að eilífu deyja. 53 Ert þú meiri en faðir okkar, Abraham? Hann dó og spámennirnir dóu. Hver þykist þú vera?“
54 Jesús svaraði: „Ef ég vegsama sjálfan mig er vegsemd mín engin. Faðir minn er sá sem vegsamar mig, hann sem þér segið vera Guð yðar. 55 Og þér þekkið hann ekki en ég þekki hann. Ef ég segðist ekki þekkja hann væri ég lygari eins og þér. En ég þekki hann og varðveiti orð hans. 56 Abraham faðir yðar vænti þess með fögnuði að sjá dag minn og hann sá hann og gladdist.“
57 Þá sögðu þeir við hann: „Þú ert ekki enn orðinn fimmtugur og hefur séð Abraham!“
58 Jesús svaraði: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Áður en Abraham fæddist er ég.“
59 Þá tóku menn upp steina til að grýta Jesú. En hann duldist og hvarf úr helgidóminum.