Davíð konungur í Hebron

1 Allur Ísrael safnaðist nú saman hjá Davíð í Hebron og sagði: „Við erum hold þitt og bein. 2 Áður fyrr, á meðan Sál var konungur, varst það alltaf þú sem leiddir Ísrael í hernað og heim aftur. Auk þess hefur Drottinn, Guð þinn, sagt við þig: Þú skalt vaka yfir þjóð minni, Ísrael. Þú skalt verða þjóðhöfðingi Ísraels.“
3 Þegar allir öldungar Ísraels voru komnir til konungsins í Hebron gerði Davíð konungur sáttmála við þá frammi fyrir augliti Drottins. Því næst smurðu þeir Davíð til konungs yfir Ísrael samkvæmt þeim boðskap Drottins sem Samúel hafði flutt.

Davíð tekur Jerúsalem

4 Davíð hélt nú ásamt öllum Ísrael til Jerúsalem, það er að segja til Jebús. Þar voru fyrir Jebúsítar sem þá bjuggu í landinu. 5 Þeir sögðu við Davíð: „Þú kemst ekki inn í borgina.“ Samt tók Davíð klettavirkið Síon sem varð borg Davíðs.
6 Þá sagði Davíð: „Sá sem fyrstur sigrar Jebúsíta skal verða foringi og hershöfðingi.“ Jóab Serújuson fór fyrstur upp og varð hershöfðingi.
7 Davíð settist nú að í virkinu. Þess vegna var það nefnt borg Davíðs. 8 Hann lét síðan reisa víggirðingu umhverfis virkið frá Milló og allt í kring en Jóab lét lagfæra aðra hluta borgarinnar.
9 Davíð varð nú sífellt voldugri og Drottinn hersveitanna var með honum.

Kappar Davíðs

10 Þetta eru helstu kappar Davíðs. Þeir studdu konungdóm hans ásamt öllum Ísrael og gerðu hann að konungi yfir Ísrael samkvæmt orði Drottins. 11 Þetta er skrá yfir kappa Davíðs: Jasóbeam Hakmóníson var foringi hinna þriggja. Hann sveiflaði spjóti sínu yfir þrjú hundruð mönnum og felldi þá. 12 Næstur honum var Ahóhítinn Eleasar Dódóson. Hann var einn hinna þriggja kappa. 13 Hann var með Davíð í Pas Dammím þegar Filistear söfnuðust þar saman til bardaga. Þar var akurspilda alsprottin byggi. Þegar herinn hafði flúið 14 nam hann staðar á miðjum akrinum, varði hann og hjó Filisteana niður. Þannig veitti Drottinn honum mikinn sigur.
15 Einhverju sinni þegar herbúðir Filistea voru á Refaímsléttu fóru þrír af köppunum þrjátíu niður af klettinum til Davíðs í Adúllamhelli. 16 Davíð dvaldist þá í fjallavirkinu en framvarðarsveit Filistea í Betlehem. 17 Þá þyrsti Davíð mjög og hann spurði: „Hver vill sækja mér vatn úr brunninum við borgarhliðið í Betlehem?“ 18 Þá brutust kapparnir þrír inn í herbúðir Filistea, jusu vatni úr brunninum við borgarhliðið í Betlehem, tóku það með sér og færðu Davíð. Hann vildi þó ekki drekka vatnið heldur dreypti því í dreypifórn handa Drottni 19 og sagði: „Guð minn forði mér frá að gera slíkt. Á ég að drekka blóð þessara manna sem hættu lífi sínu til að sækja vatnið?“ Þess vegna vildi hann ekki drekka það. Þetta afrek unnu kapparnir þrír.
20 Abísaí, bróðir Jóabs, var foringi hinna þrjátíu. Hann sveiflaði spjóti sínu yfir þrjú hundruð mönnum og felldi þá. Hann var virtur af köppunum þremur. 21 Hann var mikils metinn af hinum þrjátíu og varð foringi þeirra en hann jafnaðist ekki á við kappana þrjá.
22 Benaja Jójadason, sem var frá Kapseel, var hraustur maður og vann mörg afrek. Hann drap báða syni Aríels frá Móab. Eitt sinn þegar snjóaði fór hann niður í gryfju og drap þar ljón. 23 Hann felldi einnig risavaxinn Egypta sem var fimm álnir á hæð. Egyptinn hafði spjót í hendi, digurt sem vefjarrif. En Benaja réðst á hann með staf, reif spjótið úr hendi Egyptans og drap hann með hans eigin spjóti. 24 Slík afrek vann Benaja Jójadason og var virtur af köppunum þremur. 25 Hann var mikils metinn af hinum þrjátíu en hann jafnaðist ekki á við kappana þrjá. Davíð setti hann yfir lífvörð sinn.
26 Hraustar stríðshetjur voru: Asahel, bróðir Jóabs, Elhanan Dódóson frá Betlehem, 27 Sammót frá Harór, Heles frá Palon, 28 Íra Íkkesson frá Tekóa, Abíeser frá Anatót, 29 Sibbekaí frá Húsa, Ílaí frá Ahó, 30 Maharí frá Netófa, Heled Baanason frá Netófa, 31 Íttaí Ríbaíson frá Gíbeu í Benjamín, Benaja frá Píraton, 32 Húraí frá Nahale Gaas, Abíel frá Araba, 33 Asmavet frá Bahúrím, Eljahba frá Saalbón, 34 Hasem frá Gíson, Jónatan Sageson frá Harar, 35 Ahíam Sakarsson frá Harar, Elífal Úrsson, 36 Hefer frá Mekera, Ahía frá Palon, 37 Hesró frá Karmel, Naaraí Esbaíson, 38 Jóel, bróðir Natans, Míbhar Hagríson, 39 Selek Ammóníti, Nahraí Beerótíti, skjaldsveinn Jóabs Serújusonar, 40 Íra frá Jattír, Gareb frá Jattír, 41 Úría Hetíti, Sabad Ahlaíson, 42 Adína Sísason, af ættbálki Rúbens, höfðingi Rúbensniðja og foringi þrjátíu manna liðs, 43 Hanan Maakason og Jósafat frá Meten, 44 Ússía frá Astera, Sama og Jeíel Hótamssynir frá Aróer, 45 Jedíael Simríson og Jóha, bróðir hans, frá Tís, 46 Elíel frá Mahanaím og Jeríbaí og Jósavja Elnaamssynir og Jítma Móabíti, 47 Elíel og Óbeð og Jaasíel frá Mesóbaja.