1 Og hann sýndi mér móðu lífsvatnsins, skæra sem kristall. Hún rann frá hásæti Guðs og lambsins 2 eftir miðju stræti borgarinnar. Beggja vegna móðunnar var lífsins tré sem ber tólf sinnum ávöxt. Í hverjum mánuði ber það ávöxt sinn. Blöð trésins eru til lækningar þjóðunum. 3 Engin bölvun mun framar til vera. Og hásæti Guðs og lambsins mun vera í borginni og þjónar hans munu þjóna honum. 4 Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. 5 Nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa hvorki lampaljós né sólarljós því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda.

Kom þú, Jesús

6 Og engillinn sagði við mig: „Þessi eru orðin trúu og sönnu. Og Drottinn Guð, sem veitir spámönnunum anda sinn, sendi engil sinn til að sýna þjónum sínum það sem verða á innan skamms. 7 Sjá, ég kem skjótt. Sæll er sá sem varðveitir spádómsorð þessarar bókar.“
8 Og ég, Jóhannes, er sá sem heyrði og sá þetta. Er ég hafði heyrt það og séð féll ég niður fyrir fótum engilsins sem sýndi mér þetta til þess að tilbiðja hann. 9 Hann segir við mig: „Varastu þetta! Ég er samþjónn þinn og systkina[ þinna, spámannanna, og þeirra sem varðveita orð þessarar bókar. Tilbið þú Guð.“
10 Og hann sagði við mig: „Innsigla þú ekki spádómsorð þessarar bókar því að þau eru að koma fram. 11 Hinn rangláti haldi áfram að fremja ranglæti, hinn saurugi haldi áfram saurlífi sínu og hinn réttláti stundi áfram réttlæti og hinn heilagi helgist áfram heilögu líferni.
12 Sjá, ég kem skjótt og launin hef ég með mér til að gjalda hverjum og einum eins og verk hans er. 13 Ég er Alfa og Ómega, hinn fyrsti og hinn síðasti, upphafið og endirinn. 14 Sælir eru þeir sem þvo skikkjur sínar. Þeir fá aðgang að lífsins tré og mega ganga um hliðin inn í borgina. 15 Úti gista hundarnir og töframennirnir og frillulífismennirnir og manndrápararnir og skurðgoðadýrkendurnir og hver sem elskar og iðkar lygi.
16 Ég, Jesús, hef sent engil minn til að votta fyrir yður þessa hluti í söfnuðunum. Ég er rótarkvistur Davíðs, stjarnan skínandi, morgunstjarnan.“
17 Og andinn og brúðurin segja: „Kom þú!“ Og sá sem heyrir segi: „Kom þú!“ Og sá sem þyrstur er, hann komi. Hver sem vill fær ókeypis lífsins vatn.

Lokaorð

18 Ég, Jóhannes, votta fyrir hverjum þeim manni, sem heyrir spádómsorð þessarar bókar, að leggi nokkur við þau mun Guð á hann leggja þær plágur sem um er ritað í þessari bók. 19 Og taki nokkur burt nokkuð af orðum spádómsbókar þessarar, þá mun Guð burt taka hlut hans í lífsins tré og í borginni helgu sem um er ritað í þessari bók.
20 Sá sem þetta vottar segir: „Já, ég kem skjótt.“ Amen. Kom þú, Drottinn Jesús!
21 Náðin Drottins Jesú sé með öllum.