Sigrar Davíðs

1 Eftir þetta vann Davíð sigur á Filisteum. Hann braut þá undir sig og náði Gat og þorpunum umhverfis hana undan yfirráðum Filistea. 2 Einnig sigraði hann Móabíta sem urðu skattskyldir þegnar Davíðs. 3 Davíð sigraði einnig Hadadeser, konung í Sóba, í nánd við Hamat þar sem Hadadeser var í leiðangri til að endurreisa veldi sitt við Efratfljót. 4 Davíð vann af honum þúsund vagna, sjö þúsund vagnliða og tuttugu þúsund fótgönguliða. Hann lét skera í sundur hásinarnar á öllum hestunum, nema á hundrað sem hann hélt eftir.
5 Þegar Aramearnir frá Damaskus komu Hadadeser, konungi í Sóba, til hjálpar felldi Davíð tuttugu og tvö þúsund Aramea. 6 Því næst setti Davíð landstjóra yfir ríki Aramea í Damaskus og urðu þeir skattskyldir þegnar Davíðs. Þannig studdi Drottinn Davíð hvert sem hann fór. 7 Gullskildina, sem menn Hadadesers áttu, tók Davíð herfangi og flutti til Jerúsalem. 8 Davíð tók einnig mjög mikinn eir að herfangi úr borgum Hadadesers, Tebak og Kún. Úr því lét Salómon gera eirhafið, súlurnar og áhöld úr eir.
9 Þegar Tóú, konungur í Hamat, frétti að Davíð hefði sigrað allan her Hadadesers, konungs í Sóba, 10 sendi hann Haóram, son sinn, með gripi úr gulli, silfri og eir til Davíðs konungs. Hann lét flytja honum kveðju og heillaóskir vegna þess að hann hafði barist við Hadadeser og sigrað hann en Tóú hafði átt í stríði við Hadadeser. 11 Davíð helgaði gripina Drottni ásamt silfrinu og gullinu sem hann hafði tekið að herfangi frá öllum þjóðunum, frá Edóm, Móab, Ammónítum, Filisteum og Amalek.
12 Þegar Davíð sneri heim sigraði hann Edóm í Saltdalnum og felldi átján þúsund menn. 13 Því næst setti hann landstjóra yfir Edóm og allir Edómítar urðu þegnar Davíðs. Þannig studdi Drottinn Davíð hvert sem hann fór.

Embættismenn við hirð Davíðs

14 Davíð ríkti yfir öllum Ísrael. Hann lét alla þjóð sína njóta réttar og réttlætis.
15 Jóab Serújuson var settur yfir herinn, Jósafat Ahílúðsson var kallari konungs, 16 Sadók Akítúbsson og Abímelek Abjatarsson voru prestar og Savsa var ríkisritari. 17 Benaja Jójadason var foringi Kreta og Pleta. Synir Davíðs voru fremstir þeirra sem voru konungi til aðstoðar.