Dómur yfir Seír

1 Orð Drottins kom til mín: 2 Mannssonur, snúðu þér að Seírfjalli, spáðu gegn því 3 og segðu: Svo segir Drottinn Guð:
Nú held ég gegn þér, Seírfjalllendi,
og rétti út hönd mína gegn þér.
Ég geri þig að eyðimörk og auðn,
4borgir þínar legg ég í rúst
og þú skalt verða eyðimörk.
Þá muntu skilja að ég er Drottinn.

5 Þú hefur alið á fjandskap við Ísraelsmenn frá fornu fari og þú ofurseldir þá sverðinu á neyðarstund þeirra, á stund lokauppgjörsins við þá. 6 Þess vegna, svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn Guð, mun ég láta þér blæða og blóð skal ofsækja þig. Þú bakaðir þér blóðskuld, því skal blóð ofsækja þig. 7 Ég mun gera Seírfjall að eyðimörk og auðn og tortíma öllum sem fara þar um. 8 Ég mun þekja fjöll þess vegnum mönnum. Á hólum þínum, í dölum þínum og gljúfrum munu þeir falla sem lagðir verða sverði.
9Ég mun gera þig að ævarandi eyðimörk,
borgir þínar verða auðar.
Þá munuð þið skilja að ég er Drottinn.

10 Þú sagðir: Báðar þjóðirnar og bæði löndin eru mín eign og ég slæ eign minni á þau þó að Drottinn sé þar. 11 Þess vegna segir Drottinn Guð: Svo sannarlega sem ég lifi mun ég láta þig kenna á sams konar reiði og öfund og þú lést þá kenna á í hatri þínu. Ég mun sýna þér hver ég er þegar ég dæmi þig. 12 Þá muntu skilja að ég er Drottinn. Ég hef heyrt öll smánaryrðin sem þú mæltir gegn fjöllum Ísraels þegar þú sagðir: „Þau eru í eyði, þau hafa verið gefin okkur til viðurværis.“ 13 Þið hafið talað gegn mér með gífuryrðum og beint að mér ósvífnum orðum. Ég heyrði það.
14 Svo segir Drottinn Guð: Þar sem þú gladdist yfir því að land mitt er í eyði mun ég fara eins með þig. 15 Þar sem þú gladdist yfir að erfðaland Ísraelsmanna var lagt í eyði mun ég fara eins með þig. Fjalllendi Seír og allt Edóm skal verða eyðimörk. Þá munu þeir skilja að ég er Drottinn.