Kveðja

1 Júdas, þjónn Jesú Krists, bróðir Jakobs, heilsar þeim sem Guð faðir elskar og hefur kallað og Jesús Kristur varðveitir.

Að misnota náð Guðs

2 Miskunn, friður og kærleiki margfaldist með ykkur.
3 Þið elskuðu, mér var það ríkt í huga að rita ykkur um sameiginlegt hjálpræði okkar. En nú kemst ég ekki hjá því að skrifa og hvetja ykkur til að berjast fyrir þeirri trú sem heilögum hefur í eitt skipti fyrir öll verið í hendur seld. 4 Nokkrir menn hafa laumast inn í söfnuðinn. Það eru óguðlegir menn sem misnota náð Guðs okkar til taumleysis og afneita okkar eina lávarði og Drottni, Jesú Kristi. Fyrir löngu var ritað um þann dóm sem biði þeirra. 5 Ég vil minna ykkur á, þótt þið vitið það allt, að Drottinn[ frelsaði lýðinn úr Egyptalandi en tortímdi samt síðar þeim sem ekki trúðu. 6 Minnist englanna sem ekki gættu tignar sinnar heldur yfirgáfu eigin bústað. Guð hefur geymt þá í myrkri í ævarandi fjötrum til dómsins á deginum mikla. 7 Gleymið ekki heldur Sódómu og Gómorru og borgunum umhverfis þær sem drýgt höfðu saurlifnað, á líkan hátt og englarnir, og stunduðu óleyfilegt kynlíf. Guð setti þær til viðvörunar og refsaði þeim með eilífum eldi.
8 Á sama hátt saurga og þessir draumvilltu menn líkamann, meta að engu drottinvald og lastmæla himnaverum. 9 Eigi dirfðist einu sinni höfuðengillinn Mikael að saka djöfulinn um guðlast, er hann átti í orðadeilu við hann um líkama Móse, heldur sagði: „Drottinn refsi þér!“ 10 En þessir menn lastmæla öllu því sem þeir þekkja ekki en það sem þeir skilja af eðlisávísun sinni eins og skynlausar skepnur verður þeim til falls. 11 Vei þeim, því að þessir menn hafa gengið á vegi Kains og sökkt sér í villu Bíleams af gróðafíkn, gert uppreisn gegn Guði eins og Kóra og tortímst. 12 Þeir eru smánarblettur á kærleiksmáltíðum ykkar er þeir sitja að veislum með ykkur og háma í sig blygðunarlaust og hugsa aðeins um eigin hag. Þeir eru eins og vatnslaus ský sem rekast fyrir vindum, eins og tré sem bera ekki ávöxt að hausti, steindauð og rifin upp með rótum. 13 Þeir eru eins og ofsalegar hafsbylgjur sem freyða eigin smánarverkum og stjörnur sem farið hafa út af braut sinni og eiga dýpsta myrkur í vændum til eilífðar. 14 Um þessa menn spáði Enok líka, sjöundi maður frá Adam, er hann segir: „Sjá, Drottinn er kominn með sínum þúsundum heilagra 15 til að halda dóm yfir öllum, og til að sanna alla óguðlega menn seka um öll þau óguðlegu verk sem þeir hafa drýgt og um öll þau hörðu orð sem óguðlegir syndarar hafa talað gegn honum.“
16 Þessir menn eru síkvartandi og kenna öðrum um örlög sín og lifa eftir girndum sínum. Munnur þeirra mælir ofstopaorð og þeir smjaðra fyrir öðrum, sér til ávinnings.

Varnaðarorð

17 En þið elskuðu, minnist þeirra orða sem postular Drottins vors Jesú Krists hafa áður talað. 18 Þeir sögðu við ykkur: „Á síðasta tíma munu koma spottarar sem stjórnast af sínum eigin óguðlegu girndum.“ 19 Það eru þeir sem valda sundrungu, þeir eru bundnir við þennan heim og hafa eigi andann. 20 En þið elskuðu, byggið ykkur sjálf upp í helgustu trú ykkar. Biðjið í heilögum anda. 21 Látið kærleika Guðs varðveita ykkur sjálf og bíðið eftir að Drottinn vor Jesús Kristur sýni ykkur náð og veiti ykkur eilíft líf.
22 Sumir eru efablandnir, sýnið þeim mildi, 23 suma skuluð þið frelsa með því að hrífa þá út úr eldinum, sýnið sumum óttablandna mildi og forðist jafnvel klæði þeirra sem flekkuð eru af synd.

Bæn

24 En Guði, sem megnar að varðveita yður frá hrösun og láta yður koma fram fyrir dýrð sína lýtalaus í fögnuði, 25 einum Guði sem frelsar oss fyrir Jesú Krist, Drottin vorn, sé dýrð, hátign, máttur og vald frá alda öðli, nú og um allar aldir. Amen.