1Drottinn er konungur, jörðin fagni,
eyjafjöldinn gleðjist.
2Ský og sorti umlykja hann,
réttlæti og réttur eru grundvöllur hásætis hans.
3Eldur fer fyrir honum
og eyðir fjandmönnum hans allt um kring.
4Leiftur hans lýsa um jarðríki,
jörðin sér það og nötrar,
5björgin bráðna sem vax fyrir augliti Drottins,
frammi fyrir Drottni gjörvallrar jarðarinnar.
6Himnarnir kunngjöra réttlæti hans
og allar þjóðir sjá dýrð hans.
7Allir skurðgoðadýrkendur verða til skammar,
þeir sem stæra sig af falsguðum.
Allir guðir munu falla fram fyrir honum.
8Síon heyrir þetta og gleðst
og dætur Júda fagna [
yfir dómum þínum, Drottinn.
9Því að þú, Drottinn, ert Hinn hæsti yfir allri jörðinni,
mjög hátt hafinn yfir alla guði.
10Þér, sem elskið Drottin, hatið illt.
Hann verndar dýrkendur sína,
frelsar þá úr hendi óguðlegra.
11Ljós skín réttlátum
og gleði hjartahreinum.
12Gleðjist, þér réttlátir, yfir Drottni,
vegsamið hans heilaga nafn.