Verk Guðs opinber

1 Á leið sinni sá Jesús mann sem var blindur frá fæðingu. 2 Lærisveinar hans spurðu hann: „Rabbí, hvort hefur þessi maður syndgað eða foreldrar hans fyrst hann fæddist blindur?“
3 Jesús svaraði: „Hvorki er það af því að hann hafi syndgað eða foreldrar hans heldur til þess að verk Guðs verði opinber á honum. 4 Okkur[ ber að vinna verk þess er sendi mig meðan dagur er. Það kemur nótt þegar enginn getur unnið. 5 Meðan ég er í heiminum er ég ljós heimsins.“
6 Að svo mæltu skyrpti hann á jörðina, gerði leðju úr munnvatninu, strauk leðju á augu hans 7 og sagði við hann: „Farðu og þvoðu þér í lauginni Sílóam.“ (Sílóam þýðir sendur.) Hann fór og þvoði sér og kom aftur sjáandi.
8 Nágrannar hans og þeir sem höfðu áður séð hann ölmusumann sögðu þá: „Er þetta ekki sá er setið hefur og beðið sér ölmusu?“
9 Sumir sögðu: „Sá er maðurinn,“ en aðrir sögðu: „Nei, en líkur er hann honum.“
Sjálfur sagði hann: „Ég er sá.“
10 Þá sögðu þeir við hann: „Hvernig fékkst þú sjónina?“
11 Hann svaraði: „Maður að nafni Jesús gerði leðju og smurði á augu mín og sagði mér að fara til Sílóam og þvo mér. Ég fór og fékk sjónina þegar ég var búinn að þvo mér.“
12 Þeir sögðu við hann: „Hvar er hann?“
Hann svaraði: „Það veit ég ekki.“
13 Þeir fara til faríseanna með manninn sem áður var blindur. 14 En þá var hvíldardagur þegar Jesús bjó til leðjuna og opnaði augu hans. 15 Farísearnir spurðu hann nú líka hvernig hann hefði fengið sjónina. Hann svaraði þeim: „Hann lagði leðju á augu mín, ég þvoði mér og nú sé ég.“
16 Þá sögðu nokkrir farísear: „Þessi maður er ekki frá Guði fyrst hann heldur ekki hvíldardaginn.“
Aðrir sögðu: „Hvernig getur syndugur maður gert þvílík tákn?“ Og ágreiningur varð með þeim.
17 Þá segja þeir aftur við hinn blinda: „Hvað segir þú um hann fyrst hann opnaði augu þín?“
Hann sagði: „Hann er spámaður.“
18 Farísearnir[ trúðu því ekki að hann hefði verið blindur og fengið sjón fyrr en þeir kölluðu á foreldra hans 19 og spurðu þá: „Er þetta sonur ykkar sem þið segið að hafi fæðst blindur? Hvernig er hann þá orðinn sjáandi?“
20 Foreldrar hans svöruðu: „Við vitum að þessi maður er sonur okkar og að hann fæddist blindur. 21 En við vitum hvorki hvernig hann er nú orðinn sjáandi né hver læknaði hann. Spyrjið hann sjálfan. Hann hefur aldur til. Hann getur svarað fyrir sig.“ 22 Þetta sögðu foreldrar hans af ótta við ráðamenn Gyðinga[ því að þeir höfðu þegar samþykkt að sá skyldi samkundurækur sem játaði að Jesús væri Kristur. 23 Vegna þessa sögðu foreldrar hans: „Hann hefur aldur til, spyrjið hann sjálfan.“
24 Nú kölluðu þeir í annað sinn á manninn, sem blindur hafði verið, og sögðu við hann: „Gef þú Guði dýrðina. Við vitum að þessi maður er syndari.“
25 Hann svaraði: „Ekki veit ég hvort hann er syndari. En eitt veit ég að ég, sem var blindur, er nú sjáandi.“
26 Þá sögðu þeir við hann: „Hvað gerði hann við þig? Hvernig opnaði hann augu þín?“
27 Hann svaraði þeim: „Ég er búinn að segja ykkur það og þið hlustuðuð ekki á það. Hví viljið þið heyra það aftur? Viljið þið líka verða lærisveinar hans?“
28 Þeir atyrtu hann og sögðu: „Þú ert lærisveinn hans, við erum lærisveinar Móse. 29 Við vitum að Guð talaði við Móse en við vitum ekki hvaðan þessi maður er.“
30 Maðurinn svaraði þeim: „Þetta er furðulegt, að þið vitið ekki hvaðan hann er og þó opnaði hann augu mín. 31 Við vitum að Guð heyrir ekki bænir syndara. Hann bænheyrir hvern þann sem er guðrækinn og fer að Guðs vilja. 32 Frá alda öðli hefur ekki heyrst að nokkur hafi gert þann sjáandi sem blindur var borinn. 33 Ef þessi maður væri ekki frá Guði gæti hann ekkert gert.“
34 Þeir svöruðu honum: „Þú ert syndum vafinn frá fæðingu og ætlar að kenna okkur!“ Og þeir ráku hann út.
35 Jesús heyrði að þeir hefðu rekið hann út. Hann fann hann og sagði við hann: „Trúir þú á Mannssoninn?“
36 Hinn svaraði: „Herra, hver er sá að ég megi trúa á hann?“
37 Jesús sagði við hann: „Þú hefur séð hann, hann er sá sem er nú að tala við þig.“
38 En hann sagði: „Ég trúi, Drottinn,“ og féll fram fyrir honum.
39 Jesús sagði: „Til dóms er ég kominn í þennan heim, til þess að blindir sjái og sjáandi verði blindir.“
40 Þetta heyrðu þeir farísear sem með honum voru og spurðu: „Erum við þá líka blindir?“
41 Jesús sagði við þá: „Ef þið væruð blindir væruð þið án sakar. En nú segist þið vera sjáandi, því varir sök ykkar.“