1 Til söngstjórans. Davíðssálmur.
2Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis,
lát mig aldrei verða til skammar.
Bjarga mér í réttlæti þínu.
3Hneig eyra þitt að mér,
kom skjótt mér til hjálpar.
Ver mér verndarbjarg,
vígi mér til hjálpar,
4því að þú ert bjarg mitt og vígi
og sakir nafns þíns munt þú leiða mig og stjórna mér.
5Leystu mig úr netinu sem lagt var fyrir mig
því að þú ert vörn mín.
6Í þínar hendur fel ég anda minn,
þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð.
7Ég hata [ þá sem dýrka fánýt skurðgoð
en treysti Drottni.
8Ég gleðst og fagna yfir trúfesti þinni
því að þú sást neyð mína
og gafst gætur að mér í þrengingum,
9lést mig ekki ganga í greipar óvinarins
heldur beindir fótum mínum á víða velli.
10Miskunna mér, Drottinn, því að ég er í nauðum staddur,
döpruð af harmi eru augu mín,
sál mín og líkami.
11Ár mín líða í harmi
og líf mitt í andvörpum,
mér förlast kraftur sakir sektar minnar
og bein mín tærast.
12Ég verð öllum óvinum mínum að spotti,
háðsefni grönnum mínum
og kunningjar hræðast mig
og þeir sem mæta mér á götu sneiða hjá mér.
13Ég er gleymdur sem látinn væri,
orðinn eins og brotið ker.
14Ég heyri hvískur margra,
ógn í öllum áttum.
Þeir sitja á svikráðum við mig
og ætla að svipta mig lífi.
15En ég treysti þér, Drottinn,
og segi: „Þú ert Guð minn.“
16Í þinni hendi eru dagar mínir,
frelsa mig úr greipum óvina minna og ofsækjenda.
17Lát ásjónu þína lýsa yfir þjón þinn,
hjálpa mér sakir elsku þinnar.
18Lát mig ekki verða til háðungar, Drottinn,
þegar ég hrópa til þín.
Lát hina guðlausu verða til skammar,
hverfa hljóða til heljar.
19Lát þagna lygavarir
sem mæla drambsyrði gegn réttlátum
með hroka og fyrirlitningu.
20Hversu mikil er gæska þín
sem þú hefur geymt þeim sem óttast þig
og auðsýnir þeim sem leita hælis hjá þér
í augsýn allra.
21Þú hylur þá í skjóli auglitis þíns
fyrir svikráðum manna,
varðveitir þá í húsi þínu
fyrir illum tungum.
22 Lofaður sé Drottinn
því að hann hefur sýnt mér dásamlega náð
í öruggri borg.
23 Ég hugsaði í angist minni:
„Ég er burtrekinn frá augum þínum.“
Samt heyrðir þú ákall mitt
er ég hrópaði til þín.
24 Elskið Drottin, allir þér hans trúuðu.
Drottinn varðveitir hina trúföstu en geldur hrokafullum margfalt.
25 Verið sterkir og hughraustir,
allir sem bíðið Drottins.