Von og staðfesta

1 Á dögum Akasar, konungs í Júda, Jótamssonar, Ússíasonar, héldu Resín, konungur í Aram, og Peka Remaljason Ísraelskonungur upp til Jerúsalem til að ráðast á borgina en gátu ekki unnið hana.
2 Þegar húsi Davíðs var tilkynnt að Aramear hefðu náð fótfestu í Efraím skalf hjarta konungs og hjarta þjóðar hans eins og skógartré skjálfa fyrir vindi.
3 Þá sagði Drottinn við Jesaja: „Gakktu með son þinn Sear-Jasúb[ að efri enda vatnsleiðslunnar úr efri tjörninni, við götuna út á þvottavöllinn, til móts við Akas 4 og segðu við hann: Gættu þín, haltu ró þinni, óttastu ekki. Láttu ekki hugfallast fyrir þessum tveimur hálfbrunnu sprekum, fyrir brennandi reiði Resíns, Arams og sona Remalja. 5 Aram, Efraím og sonur Remalja hafa illt í hyggju gegn þér og segja: 6 Vér skulum fara gegn Júdamönnum, hræða þá og leggja landið undir oss og gera son Tabels að konungi yfir þeim. 7 Þess vegna segir Drottinn Guð:
Það skal ekki takast, það skal ekki verða,
8því að Damaskus er höfuð Arams
og Resín er höfuð Damaskus.
Innan sextíu og fimm ára
verður Efraím gjörsigrað og ekki framar þjóð.
9Samaría er höfuð Efraíms
og sonur Remalja höfuð Samaríu.
Standist trú yðar ekki
standist þér alls ekki.“

Fæðing Immanúels boðuð

10 Drottinn talaði aftur við Akas og sagði: 11 „Bið þú Drottin, Guð þinn, um tákn, hvort heldur neðst neðan úr undirheimum eða ofan frá hæstu hæðum.“ 12 Akas svaraði: „Ég bið einskis því að ég vil ekki freista Drottins.“ 13 Þá sagði Jesaja: „Hlýðið nú á, niðjar Davíðs. Finnst yður ekki nóg að reyna á þolinmæði manna? Ætlið þér einnig að reyna á þolinmæði Guðs míns? 14 Þess vegna mun Drottinn sjálfur gefa yður tákn. Sjá, yngismær[ verður þunguð og fæðir son og lætur hann heita Immanúel.[ 15 Rjómi og hunang verður fæða hans þar til hann hefur vit á að hafna hinu illa og velja hið góða. 16 Áður en sveinninn hefur lært að hafna hinu illa og velja hið góða verður mannauðn í landi þeirra tveggja konunga sem þú óttast. 17 Drottinn mun senda yfir þig, þjóð þína og fjölskyldu þvílíka daga að aðrir eins dagar hafa ekki komið síðan Efraím skildist frá Júda – hann mun senda Assýríukonung.“

Sagt fyrir um innrás

18 Á þeim degi mun Drottinn blístra á flugurnar við ósa Nílar í Egyptalandi og býflugurnar í Assýríu.
19Þær munu allar koma
og setjast að í gljúfrum
og hamragiljum,
þyrnirunnum
og vatnsbólum.
20Á þeim degi mun Drottinn raka bæði höfuð- og skapahár með rakhníf
sem hann leigði handan fljóts
– með Assýríukonungi –
hann mun jafnvel raka skeggið burt.
21Á þeim degi mun maður hafa kvígu og tvær ær
22 og þær mjólka svo vel
að hann hefur rjóma til matar.
Þeir sem eftir verða í landinu
munu nærast á rjóma og hunangi.
23 Á þeim degi mun svo fara
að alls staðar þar sem áður stóðu þúsund vínviðir,
þúsund sikla virði,
munu vaxa þyrnar og þistlar.
24 Menn fara þangað með boga og örvar
því að landið allt verður þyrnum og þistlum þakið.
25 Og á þau fjöll, sem nú eru erjuð með haka,
mun enginn koma
af ótta við þyrna og þistla.
Þau verða bithagi nauta
og niður tröðkuð af sauðfé.