Jefta berst við Efraímíta

1 Efraímítum var stefnt saman. Þeir héldu í norður og sögðu við Jefta: „Hví fórst þú að berjast við Ammóníta og kallaðir okkur ekki til liðs við þig? Nú munum við leggja eld í hús þitt.“ 2 Þá sagði Jefta við þá: „Ég og þjóð mín áttum í miklum deilum við Ammóníta. Beiddist ég þá liðs af ykkur en þið hjálpuðuð mér ekki úr höndum þeirra. 3 Þegar ég sá að þið ætluðuð ekki að hjálpa mér þá hætti ég lífi mínu og hélt gegn Ammónítum og Drottinn gaf þá mér í hendur. Hvers vegna komið þið þá til mín í dag til þess að berjast við mig?“ 4 Jefta safnaði saman öllum mönnum í Gíleað og barðist við Efraímíta og unnu íbúar Gíleaðs sigur á Efraímítum. Efraímítar höfðu sagt: „Þið eruð flóttamenn frá Efraím. Gíleað er mitt í Efraím, mitt í Manasse.“ 5 Íbúar Gíleaðs settust um Jórdanarvöðin yfir til Efraíms. Og þegar flóttamaður úr Efraím sagði: „Leyfið mér að fara yfir,“ þá sögðu íbúarnir í Gíleað við hann: „Ert þú Efraímíti?“ Ef hann svaraði: „Nei,“ 6 sögðu þeir við hann: „Segðu Sjibbólet.“ Ef hann sagði: „Sibbólet,“ og gætti þess ekki að bera það rétt fram gripu þeir hann og drápu hann við Jórdanarvöðin. Féllu þá fjörutíu og tvö þúsund af niðjum Efraíms.
7 Jefta var dómari í Ísrael í sex ár. Síðan andaðist Jefta frá Gíleað og var grafinn í einni af borgunum í Gíleað.

Þrír dómarar

8 Eftir Jefta varð Íbsan frá Betlehem dómari í Ísrael. 9 Hann átti þrjátíu syni og þrjátíu dætur gifti hann burt frá sér og þrjátíu konur fékk hann sonum sínum annars staðar að. Hann var dómari í Ísrael sjö ár. 10 Síðan andaðist Íbsan og var grafinn í Betlehem.
11 Eftir hann varð Elón, niðji Sebúlons, dómari í Ísrael. Hann var dómari í Ísrael tíu ár. 12 Síðan andaðist Elón, niðji Sebúlons, og var grafinn í Ajalon í Sebúlonslandi.
13 Eftir hann var Abdón Híllelsson frá Píratón dómari í Ísrael. 14 Hann átti fjörutíu syni og þrjátíu sonasyni sem riðu sjötíu ösnufolum. Hann var dómari í Ísrael átta ár. 15 Síðan andaðist Abdón Híllelsson frá Píratón og var grafinn í Píratón í Efraímslandi á fjöllum Amalekíta.