Páll í Korintu

1 Eftir þetta fór Páll frá Aþenu og kom til Korintu. 2 Þar hitti hann Gyðing nokkurn, Akvílas að nafni, ættaðan frá Pontus, nýkominn frá Ítalíu, og Priskillu konu hans en Kládíus hafði skipað svo fyrir að allir Gyðingar skyldu fara burt úr Róm. Páll fór til þeirra 3 og af því hann stundaði sömu iðn settist hann að hjá þeim og vann með þeim. Þeir voru tjaldgerðarmenn að iðn. 4 Hann ræddi við menn í samkunduhúsinu hvern hvíldardag og reyndi að sannfæra bæði Gyðinga og Grikki.
5 Þegar þeir Sílas og Tímóteus komu norðan frá Makedóníu gaf Páll sig allan að boðun orðsins og vitnaði fyrir Gyðingum að Jesús væri Kristur. 6 En er þeir snerust gegn honum og fóru að lastmæla hristi hann dustið af klæðum sínum og sagði: „Þið getið sjálfir ykkur um það kennt að þið farist. Ekki er mér um það að kenna. Upp frá þessu fer ég til heiðingjanna.“ 7 Og hann fór þaðan og kom í hús manns nokkurs er hét Títus Jústus og sótti samkundu Gyðinga. Hús hans var hjá samkunduhúsinu. 8 Krispus samkundustjóri tók trú á Drottin og allt heimili hans og margir Korintumenn, sem heyrðu Pál tala, tóku trú og létu skírast.
9 En Drottinn sagði við Pál um nótt í sýn: „Óttast þú eigi, haltu ótrauður áfram að tala, þagna ekki. 10 Ég er með þér. Enginn skal ráðast að þér og vinna þér mein því að ég á margt fólk í þessari borg.“ 11 Hann var þar um kyrrt þrjú misseri og kenndi þeim orð Guðs.
12 En þegar Gallíón[ var landstjóri í Akkeu bundust Gyðingar samtökum gegn Páli, drógu hann fyrir dómstólinn 13 og sögðu: „Maður þessi tælir menn til að dýrka Guð á þann hátt sem stríðir gegn lögmálinu.“
14 Páll bjóst til að svara en þá sagði Gallíón við Gyðingana: „Væri hér um einhver lögbrot eða illvirki að ræða bæri mér að sinna ykkur, Gyðingar. 15 En fyrst það eru þrætur um orð og nöfn og lögmál ykkar þá ráðið sjálfir fram úr því. Dómari í þeim sökum vil ég ekki vera.“ 16 Og hann rak þá burt frá dómstólnum. 17 Þá tóku þeir allir Sósþenes samkundustjóra og fóru að berja hann fyrir framan dómstólinn og lét Gallíón sig það engu skipta.

Til Sýrlands

18 Páll var þar enn um kyrrt allmarga daga, kvaddi síðan bræðurna og systurnar[ og sigldi til Sýrlands og með honum Priskilla og Akvílas. Lét hann áður skera hár sitt[ í Kenkreu því að heit hafði hvílt á honum. 19 Þau komu til Efesus. Þar skildi hann við þau en gekk sjálfur inn í samkunduhúsið og ræddi við Gyðinga. 20 Þeir báðu hann að standa lengur við en hann varð ekki við því 21 heldur kvaddi þá og sagði: „Ég skal koma aftur til ykkar ef Guð lofar.“ Síðan lét hann í haf frá Efesus, 22 lenti í Sesareu, fór upp eftir til Jerúsalem og heilsaði söfnuðinum. Síðan hélt hann norður til Antíokkíu. 23 Þegar hann hafði dvalist þar um hríð hélt hann af stað og fór eins og leið liggur um Galataland og Frýgíu og styrkti alla lærisveinana.

Apollós

24 En Gyðingur nokkur, Apollós að nafni, ættaður frá Alexandríu, kom til Efesus. Hann var maður vel máli farinn og fær í ritningunum. 25 Hann hafði verið fræddur um veg Drottins og brennandi í andanum talaði hann og kenndi kostgæfilega um Jesú. Þó þekkti hann aðeins skírn Jóhannesar. 26 Þessi maður tók nú að tala skörulega í samkunduhúsinu. Priskilla og Akvílas heyrðu til hans, tóku hann að sér og skýrðu nánar fyrir honum Guðs veg. 27 Nú fýsti hann að fara yfir til Akkeu. Kristnir menn[ í Efesus rituðu lærisveinunum þar og hvöttu þá að taka honum vel. Hann kom þangað og varð til mikillar hjálpar þeim sem fyrir Guðs náð höfðu tekið trú því að 28 hann hrakti skarplega rök Gyðinga í allra áheyrn og sannaði af ritningunum að Jesús væri Kristur.