Drottinn hvíldardagsins

1 En svo bar við á hvíldardegi að Jesús fór um sáðlönd og tíndu lærisveinar hans kornöx, neru milli handanna og átu. 2 Þá sögðu farísear nokkrir: „Hví gerið þið það sem er ekki leyfilegt á hvíldardegi?“
3 Og Jesús svaraði þeim: „Hafið þið þá ekki lesið hvað Davíð gerði er hann hungraði og menn hans? 4 Hann fór inn í Guðs hús, tók skoðunarbrauðin og át og gaf mönnum sínum en þau má enginn eta nema prestarnir einir.“ 5 Og hann sagði við þá: „Mannssonurinn er Drottinn hvíldardagsins.“
6 Annan hvíldardag gekk Jesús í samkunduna og kenndi. Þar var maður nokkur með visna hægri hönd. 7 En fræðimenn og farísear höfðu nánar gætur á Jesú, hvort hann læknaði á hvíldardegi, svo að þeir fengju tilefni að kæra hann. 8 En hann vissi hugsanir þeirra og sagði við manninn með visnu höndina: „Statt upp og kom hér fram.“ Og hann stóð upp og kom. 9 Jesús sagði við þá: „Ég spyr ykkur, hvort er heldur leyfilegt að gera gott eða gera illt á hvíldardegi, bjarga lífi eða granda því?“ 10 Jesús leit á þá alla, hvern af öðrum, og sagði[ við manninn: „Réttu fram hönd þína.“ Hann gerði svo og hönd hans varð heil.
11 En þeir urðu æfir við og ræddu sín á milli hvað þeir gætu gert Jesú.

Postular valdir

12 En svo bar við um þessar mundir að Jesús fór til fjalls að biðjast fyrir og var alla nóttina á bæn til Guðs. 13 Og er dagur rann kallaði hann til sín lærisveina sína, valdi tólf úr þeirra hópi og nefndi þá postula. 14 Þeir voru: Símon, sem hann nefndi Pétur, Andrés bróðir hans, Jakob og Jóhannes, Filippus og Bartólómeus, 15 Matteus og Tómas, Jakob Alfeusson og Símon, kallaður vandlætari, 16 og Júdas Jakobsson og Júdas Ískaríot sem varð svikari.

Læknir

17 Jesús gekk ofan með þeim og nam staðar á sléttri flöt. Þar var stór hópur lærisveina hans og mikill fjöldi fólks úr allri Júdeu, frá Jerúsalem og sjávarbyggðum Týrusar og Sídonar, 18 er komið hafði til að hlýða á hann og fá lækning meina sinna. Einnig voru þeir læknaðir er þjáðir voru af óhreinum öndum. 19 Allt fólkið reyndi að snerta hann því að frá honum kom kraftur er læknaði alla.

Sælir eruð þér

20 Þá hóf Jesús upp augun, leit á lærisveina sína og sagði:
„Sælir eruð þér, fátækir,
því að yðar er Guðs ríki.
21Sælir eruð þér sem nú hungrar
því að þér munuð saddir verða.
Sælir eruð þér sem nú grátið
því að þér munuð hlæja.

22 Sælir eruð þér þá er menn hata yður, þá er þeir útskúfa yður og smána og bera út óhróður um yður vegna Mannssonarins.
23 Fagnið á þeim degi og leikið af gleði því að laun yðar eru mikil á himni og á sama veg fóru feður þeirra með spámennina.

Vei yður

24 En vei yður, þér auðmenn,
því að þér hafið fengið yðar skerf.
25 Vei yður, sem nú eruð saddir,
því að yður mun hungra.
Vei yður, sem nú hlæið,
því að þér munuð sýta og gráta.

26 Vei yður, þegar allir menn hæla yður því að eins fórst forfeðrum þeirra við falsspámennina.

Elskið óvini yðar

27 En ég segi yður er á mig hlýðið: Elskið óvini yðar, gerið þeim gott sem hata yður, 28 blessið þá sem bölva yður og biðjið fyrir þeim er misþyrma yður. 29 Slái þig einhver á kinnina skaltu og bjóða hina og taki einhver yfirhöfn þína skaltu ekki varna honum að taka kyrtilinn líka. 30 Gef þú hverjum sem biður þig og ef einhver tekur frá þér það sem þú átt þá skaltu ekki krefja hann um það aftur. 31 Og eins og þér viljið að aðrir menn geri við yður, svo skuluð þér og þeim gera.
32 Og þótt þér elskið þá sem yður elska, hvaða þökk eigið þér fyrir það? Syndarar elska þá líka sem þá elska. 33 Og þótt þér gerið þeim gott sem yður gera gott, hvaða þökk eigið þér fyrir það? Syndarar gera og hið sama. 34 Og þótt þér lánið þeim sem þér vonið að muni borga, hvaða þökk eigið þér fyrir það? Syndarar lána einnig syndurum til þess að fá allt aftur.
35 Nei, elskið óvini yðar og gerið gott og lánið án þess að vænta nokkurs í staðinn, og laun yðar munu verða mikil og þér verða börn Hins hæsta því að hann er góður við vanþakkláta og vonda. 36 Verið miskunnsöm eins og faðir yðar er miskunnsamur.

Dæmið ekki

37 Dæmið ekki og þér munuð eigi verða dæmd. Sakfellið eigi og þér munuð eigi verða sakfelld. Fyrirgefið öðrum og Guð mun fyrirgefa yður. 38 Gefið og yður mun gefið verða. Góður mælir, troðinn, skekinn, fleytifullur mun lagður í skaut yðar. Því með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður aftur mælt verða.“
39 Þá sagði Jesús þeim og líkingu: „Hvort fær blindur leitt blindan? Munu ekki báðir falla í gryfju? 40 Ekki er lærisveinn meistaranum fremri en hver sem er fullnuma verður eins og meistari hans. 41 Hví sérð þú flísina í auga bróður þíns en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu? 42 Hvernig færð þú sagt við bróður þinn: Bróðir, lát mig draga flísina úr auga þér, en sérð ekki bjálkann í þínu auga? Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns.

Af ávöxtunum þekkist tréð

43 Því að ekki er til gott tré er beri slæman ávöxt né heldur slæmt tré er beri góðan ávöxt. 44 En hvert tré þekkist af ávexti sínum enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af þyrnirunni. 45 Góður maður ber gott fram úr góðum sjóði hjarta síns en vondur maður ber vont fram úr vondum sjóði. Af gnægð hjartans mælir munnur hans.

Grundvallað á bjargi

46 En hví kallið þér mig Drottin, Drottin, og gerið ekki það sem ég segi? 47 Ég skal sýna yður hverjum sá er líkur sem kemur til mín, heyrir orð mín og breytir eftir þeim. 48 Hann er líkur manni er byggði hús, gróf djúpt fyrir og grundvallaði það á bjargi. Nú kom flóð og flaumurinn skall á því húsi en fékk hvergi hrært það vegna þess að það var vel byggt. 49 Hinn, er heyrir það sem ég segi og breytir ekki eftir því, er líkur manni sem byggði hús á jörðinni án undirstöðu. Flaumurinn skall á því og það hús féll þegar og fall þess varð mikið.“