Sigur trúarinnar

1 Hver sem trúir að Jesús sé Kristur er barn Guðs og hver sem elskar föðurinn elskar einnig barn hans. 2 Við vitum að við elskum börn Guðs af því að við elskum Guð og breytum eftir boðorðum hans. 3 Því að elskan til Guðs birtist í að við höldum boðorð hans. Og boðorð hans eru ekki þung 4 því að sérhvert barn Guðs sigrar heiminn og trú okkar er sigurinn, hún hefur sigrað heiminn.

Vitnisburður Guðs

5 Hver er sá sem sigrar heiminn nema sá sem trúir að Jesús sé sonur Guðs?
6 Hann er sá sem kom með vatni og blóði, Jesús Kristur. Ekki með vatninu eingöngu heldur með vatninu og með blóðinu. Og andinn er sá sem vitnar því að andinn er sannleikurinn. 7 Þrír eru þeir sem vitna [í himninum: Faðirinn, orðið og heilagur andi, og þessir þrír eru eitt. Og þeir eru þrír sem vitna á jörðunni:][ 8 Andinn og vatnið og blóðið og þeim þremur ber saman. 9 Við tökum manna vitnisburð gildan en vitnisburður Guðs er meiri. Þetta er vitnisburður Guðs sem hann hefur vitnað um son sinn. 10 Sá sem trúir á son Guðs hefur vitnisburðinn innra með sér. Sá sem ekki trúir Guði hefur gert hann að lygara af því að hann hefur ekki trúað á þann vitnisburð sem Guð hefur vitnað um son sinn. 11 Og þetta er vitnisburðurinn: Guð hefur gefið okkur eilíft líf og þetta líf er í syni hans. 12 Sá sem hefur soninn á lífið, sá sem ekki á son Guðs á ekki lífið.

Eilíft líf

13 Þetta hef ég skrifað ykkur sem trúið á nafn Guðs sonar til þess að þið vitið að þið eigið eilíft líf. 14 Og þetta er traustið sem við berum til hans: Ef við biðjum um eitthvað eftir hans vilja, þá heyrir hann okkur. 15 Og ef við vitum að hann bænheyrir okkur um hvað sem við biðjum, þá vitum við að við höfum þegar öðlast það sem við báðum hann um.
16 Ef einhver sér bróður sinn eða systur[ drýgja synd, sem leiðir ekki til dauða, þá skal hann biðja Guð og hann mun gefa líf þeim sem syndgar ekki til dauða. Til er synd sem leiðir til dauða. Fyrir henni segi ég ekki að hann skuli biðja. 17 Allt ranglæti er synd en til er synd sem ekki leiðir til dauða.
18 Við vitum að börn Guðs syndga ekki, hann sem er sonur Guðs varðveitir þau og hinn vondi snertir þau ekki.
19 Við vitum að við erum Guðs eign og allur heimurinn er á valdi hins vonda. 20 Við vitum að sonur Guðs er kominn og hefur gefið okkur skilning til þess að við þekkjum sannan Guð. Við lifum í hinum sanna Guði, í syni hans Jesú Kristi. Hann er hinn sanni Guð og eilífa lífið.
21 Börnin mín, gætið ykkar á falsguðunum.