Að stýra tungu sinni

1 Verðið eigi mörg kennarar, bræður mínir og systur.[ Þið vitið að við munum fá þyngri dóm. 2 Öll hrösum við margvíslega. Hrasi einhver ekki í orði þá er hann maður fullkominn, fær um að hafa stjórn á öllum líkama sínum. 3 Ef við leggjum hestunum beisli í munn til þess að þeir hlýði okkur, þá getum við stýrt öllum líkama þeirra. 4 Sjáið einnig skipin, svo stór sem þau eru og rekin af hörðum vindum. Þeim verður stýrt með mjög litlu stýri, hvert sem stýrimaðurinn vill. 5 Þannig er einnig tungan lítill limur en lætur mikið yfir sér.
Sjáið hversu lítill neisti getur kveikt í miklum skógi. 6 Tungan er líka eldur. Tungan er ranglætisheimur meðal lima okkar. Hún flekkar allan manninn og kveikir í allri tilveru hans en er sjálf tendruð af helvíti. 7 Allar tegundir dýra og fugla, skriðkvikindi og sjávardýr má temja og hafa mennirnir tamið 8 en tunguna getur enginn maður tamið, þessa óhemju sem er full af banvænu eitri. 9 Með henni vegsömum við Drottin okkar og föður og með henni formælum við mönnum sem skapaðir eru í líkingu Guðs. 10 Af sama munni gengur fram blessun og bölvun. Þetta má ekki svo vera, bræður mínir og systur.[ 11 Gefur sama lindin bæði ferskt og beiskt vatn? 12 Mun fíkjutré, bræður mínir og systur,[ geta gefið af sér ólífur eða vínviður fíkjur? Eigi getur heldur saltur brunnur gefið ferskt vatn.

Spekin að ofan

13 Hver er vitur og skynsamur á meðal ykkar? Hann sýni það með því að vera hóglátur og vitur í allri breytni sinni. 14 En ef beiskur ofsi og eigingirni býr í hjarta ykkar, þá stærið ykkur ekki og ljúgið ekki. 15 Sú speki kemur ekki að ofan heldur er hún jarðnesk, andlaus, djöfulleg. 16 Því hvar sem ofsi og eigingirni er, þar er óstjórn og hvers kyns spilling. 17 En sú speki sem að ofan er, hún er í fyrsta lagi hrein, því næst friðsöm, ljúfleg, sáttgjörn, full miskunnar og góðra ávaxta, óhlutdræg, hræsnislaus. 18 En friðflytjendur uppskera réttlæti og frið.