Ættbálkur Íssakars

1 Og synir Íssakars voru Tóla og Púa og Jasúb og Simron, fjórir að tölu. 2 Og synir Tóla voru Ússí og Refaja og Jeríel og Jahemaí og Jíbsam og Samúel. Þeir voru höfðingjar yfir ættkvíslum Tóla, hraustir hermenn. Samkvæmt ættartölum þeirra voru þeir tuttugu og tvö þúsund og sex hundruð á dögum Davíðs. 3 Og synir Ússí voru Jísrahja og Míkael og Óbadía og Jóel og Jissía, fimm að tölu. Þeir voru allir höfðingjar. 4 Og til þeirra töldust eftir ættum þeirra, eftir frændliði þeirra, hermannasveitir, þrjátíu og sex þúsund manns, því að þeir áttu margar konur og börn. 5 Bræður þeirra úr öllum ættkvíslum Íssakars voru hraustir hermenn. Þeir voru alls áttatíu og sjö þúsund þegar þeir voru skráðir í ættartölur.

Ættbálkar Benjamíns og Naftalí

6 Synir Benjamíns voru Bela og Beker og Jedíael, þrír að tölu. 7 Og synir Bela voru Esbón og Ússí og Ússíel og Jerímót og Írí, fimm að tölu. Þeir voru höfðingjar ættkvísla sinna, hraustir hermenn. Þeir voru tuttugu og tvö þúsund þrjátíu og fjórir þegar þeir voru skráðir í ættartölur. 8 Og synir Bekers voru Semíra og Jóas og Elíeser og Eljóenaí og Omrí og Jeremót og Abía og Anatót og Alemet. Þetta voru allir synir Bekers. 9 Þegar þeir voru skráðir í ættartölur sínar eftir höfðingjum ættkvísla sinna voru þeir tuttugu þúsund og tvö hundruð, hraustir hermenn. 10 Og sonur Jedíaels var Bílhan og synir Bílhans voru Jeús og Benjamín og Ehúð og Kenaana og Setan og Tarsis og Ahísahar. 11 Þetta voru allir synir Jedíaels. Þeir voru höfðingjar ættkvísla sinna, hraustir hermenn, sautján þúsund og tvö hundruð, sem fylktu liði til orrustu. 12 Og Súppím og Húppím voru synir Írs og Húsím sonur Akers.
13 Synir Naftalí voru Jahsíel og Gúní og Jeser og Sallúm, synir Bílu.

Ættbálkur Manasse

14 Sonur Manasse var Asríel sem arameísk hjákona hans ól. Hún ól einnig Makír, föður Gíleaðs. 15 Og Makír tók konu handa Húppím og Súppím. Og systir hans hét Maaka og næstelsti sonur hans Selófhað. Og Selófhað átti aðeins dætur. 16 Og Maaka, kona Makírs, ól son og nefndi hann Peres. En bróðir hans hét Seres og synir hans voru Úlam og Rekem. 17 Og sonur Úlams var Bedan. Þetta voru synir Gíleaðs Makírssonar, Manassesonar. 18 Og Móleket, systir hans, ól Íshód og Abíeser og Mahela. 19 Og synir Semída voru Ahjan og Sekem og Líkhí og Aníam.

Ættbálkur Efraíms

20 Og sonur Efraíms var Sútela og sonur hans var Bered og sonur hans Tahat og sonur hans Eleada og sonur hans Tahat 21 og sonur hans Sóbad og synir hans Sútela, Eser og Elead. Menn frá Gat, sem fæddir voru í landinu, drápu þá af því að þeir höfðu farið suður eftir til að ræna búpeningi þeirra. 22 Efraím, faðir þeirra, syrgði þá lengi og bræður hans komu til að hugga hann. 23 Síðan gekk hann inn til konu sinnar og hún varð þunguð og ól son. Hann nefndi hann Bería[ því að ógæfa hafði hent heimili hans. 24 Og dóttir hans var Seera. Hún byggði bæði neðra og efra Bet Hóron og Ússen Seera.
25 Og synir hans voru Refa og Resef og sonur hans var Telak og sonur hans var Tahan, 26 Laedan var sonur hans, sonur hans Ammíhúd, sonur hans Elísama, 27 sonur hans Nún og sonur hans Jósúa.
28 Eignarlönd þeirra og bústaðir voru Betel ásamt þorpum hennar austur að Naaran og vestur að Geser ásamt þorpum hennar, enn fremur Síkem og þorp hennar til Aja og þorpa hennar. 29 Í höndum sona Manasse voru Bet Sean ásamt þorpunum umhverfis, Taana ásamt þorpunum umhverfis, Megiddó ásamt þorpunum umhverfis og Dór ásamt þorpunum umhverfis. Í þessum borgum bjuggu synir Jósefs, sonar Ísraels.

Ættbálkur Assers

30 Synir Assers voru Jímna og Jísva og Jísví og Bería og systir þeirra var Seera. 31 Og synir Bería voru Heber og Malkíel. Hann var faðir Birsaíts. 32 Og Heber gat Jaflet og Semer og Hótam og Súu, systur þeirra. 33 Og synir Jaflets voru Pasak og Bímhal og Asvat. Þetta voru synir Jaflets. 34 Og synir Semers, bróður hans, voru Róhga og Húbba og Aram. 35 Og synir Helems, bróður hans, voru Sófa og Jímna og Seles og Amal. 36 Og synir Sófa voru Súa og Harnefer og Súal og Berí og Jímra 37 og Beser og Hód og Samma og Silsa og Jítran og Beera. 38 Og synir Jeters voru Jefúnne og Pispa og Ara. 39 Og synir Úlla voru Ara og Hanníel og Risja. 40 Þetta voru allt synir Assers. Þeir voru höfðingjar yfir ættkvíslum, afburðamenn, fyrirmenn meðal höfðingja. Töldust þeir er skráðir voru til herþjónustu tuttugu og sex þúsund menn.