1 Þá lét Pílatus taka Jesú og húðstrýkja hann. 2 Hermennirnir fléttuðu kórónu úr þyrnum og settu á höfuð honum og lögðu yfir hann purpurakápu. 3 Þeir gengu hver af öðrum fyrir hann og sögðu: „Sæll þú, konungur Gyðinga,“ og slógu hann í andlitið.
4 Pílatus gekk aftur út fyrir og sagði við fólkið: „Nú leiði ég hann út til ykkar svo að þið skiljið að ég finn enga sök hjá honum.“ 5 Jesús kom þá út fyrir með þyrnikórónuna og í purpurakápunni. Pílatus segir við fólkið: „Sjáið manninn!“
6 Þegar æðstu prestarnir og verðirnir sáu hann æptu þeir: „Krossfestu, krossfestu!“
Pílatus sagði við þá: „Takið þið hann og krossfestið. Ég finn enga sök hjá honum.“
7 Þeir[ svöruðu: „Við höfum lögmál og samkvæmt lögmálinu á hann að deyja því hann hefur gert sjálfan sig að Guðs syni.“
8 Þegar Pílatus heyrði þessi orð varð hann enn hræddari. 9 Hann fór aftur inn í höllina og segir við Jesú: „Hvaðan ertu?“ En Jesús veitti honum ekkert svar. 10 Pílatus segir þá við hann: „Viltu ekki tala við mig? Veistu ekki að ég hef vald til að láta þig lausan og ég hef vald til að krossfesta þig?“
11 Jesús svaraði: „Þú hefðir ekkert vald yfir mér ef þér væri ekki gefið það að ofan. Fyrir því ber sá þyngri sök sem hefur selt mig þér í hendur.“
12 Eftir þetta reyndi Pílatus enn að láta hann lausan. En fólkið[ æpti: „Ef þú lætur hann lausan ert þú ekki vinur keisarans. Hver sem gerir sjálfan sig að konungi rís á móti keisaranum.“
13 Þegar Pílatus heyrði þessi orð leiddi hann Jesú út og settist í dómstólinn á stað þeim sem nefnist Steinhlað, á hebresku Gabbata. 14 Þá var aðfangadagur páska, um hádegi. Hann sagði við fólkið[ : „Sjáið þar konung ykkar!“
15 Þá æptu menn: „Burt með hann! Burt með hann! Krossfestu hann!“
Pílatus segir við þá: „Á ég að krossfesta konung ykkar?“
Æðstu prestarnir svöruðu: „Við höfum engan konung nema keisarann.“
16 Þá seldi hann þeim hann í hendur og bauð að láta krossfesta hann.

Jesús krossfestur

Hermennirnir tóku þá við Jesú. 17 Og hann bar kross sinn og fór út til staðar sem nefnist Hauskúpa, á hebresku Golgata. 18 Þar krossfestu þeir hann og með honum tvo aðra hvorn til sinnar handar, Jesú í miðið. 19 Pílatus hafði látið gera yfirskrift og setja á krossinn. Þar stóð skrifað: JESÚS FRÁ NASARET, KONUNGUR GYÐINGA. 20 Margir Gyðingar lásu þessa áletrun því staðurinn, þar sem Jesús var krossfestur, var nærri borginni og þetta var ritað á hebresku, latínu og grísku. 21 Þá sögðu æðstu prestar Gyðinga við Pílatus: „Skrifaðu ekki konungur Gyðinga, heldur að hann hafi sagt: Ég er konungur Gyðinga.“
22 Pílatus svaraði: „Það sem ég hef skrifað það hef ég skrifað.“
23 Þegar hermennirnir höfðu krossfest Jesú tóku þeir klæði hans og skiptu í fjóra hluti og fékk hver sinn hlut. Þeir tóku og kyrtilinn en hann var saumlaus, ofinn í eitt ofan frá og niður úr. 24 Þeir sögðu því hver við annan: „Rífum hann ekki sundur, köstum heldur hlut um hver skuli fá hann.“ Svo rættist ritningin:
Þeir skiptu með sér klæðum mínum
og köstuðu hlut um kyrtil minn.

Þetta gerðu hermennirnir.
25 En hjá krossi Jesú stóðu móðir hans og móðursystir, María, kona Klópa, og María Magdalena. 26 Þegar Jesús sá móður sína standa þar og lærisveininn, sem hann elskaði, segir hann við móður sína: „Kona, nú er hann sonur þinn.“ 27 Síðan sagði hann við lærisveininn: „Nú er hún móðir þín.“ Og frá þeirri stundu tók lærisveinninn hana heim til sín.

Dáinn, grafinn

28 Jesús vissi að allt var þegar fullkomnað. Þá sagði hann til þess að ritningin rættist: „Mig þyrstir.“
29 Þar stóð ker fullt af ediki. Hermennirnir vættu njarðarvött í ediki, settu hann á ísópslegg og báru að munni honum. 30 Þegar Jesús hafði fengið edikið sagði hann: „Það er fullkomnað.“ Þá hneigði hann höfuðið og gaf upp andann.
31 Nú var aðfangadagur og til þess að líkin væru ekki á krossunum hvíldardaginn báðu Gyðingar Pílatus að láta brjóta fótleggi þeirra og taka líkin ofan enda var mikil helgi þess hvíldardags. 32 Hermenn komu því og brutu fótleggi þeirra sem með honum voru krossfestir, fyrst annars, svo hins. 33 Þegar þeir komu að Jesú og sáu að hann var þegar dáinn brutu þeir ekki fótleggi hans. 34 En einn af hermönnunum stakk spjóti sínu í síðu hans og rann jafnskjótt út blóð og vatn. 35 Sá er séð hefur vitnar þetta svo að þið trúið líka og vitnisburður hans er sannur. Og hann veit að hann segir satt. 36 Þetta varð til þess að ritningin rættist: „Ekkert bein hans skal brotið.“ 37 Og enn segir önnur ritning: „Þeir munu horfa til hans sem þeir lögðu í gegn.“
38 Jósef frá Arímaþeu, sem var lærisveinn Jesú en á laun af ótta við ráðamenn Gyðinga,[ bað síðan Pílatus að mega taka ofan líkama Jesú. Pílatus leyfði það. Hann kom þá og tók ofan líkama hans. 39 Þar kom líka Nikódemus, er fyrrum hafði komið til hans um nótt, og hafði með sér blöndu af myrru og alóe, nær hundrað pundum. 40 Þeir tóku nú líkama Jesú og sveipuðu hann línblæjum með ilmjurtunum eins og Gyðingar búa lík til greftrunar. 41 En á staðnum, þar sem hann var krossfestur, var grasgarður og í garðinum ný gröf sem enginn hafði enn verið lagður í. 42 Þar lögðu þeir Jesú því það var aðfangadagur Gyðinga og gröfin var nærri.