1 Orð Drottins sem kom til Míka frá Móreset á dögum Jótams, Akasar og Hiskía, konunga í Júda, það er honum vitraðist um Samaríu og Jerúsalem.

Guð stígur ofan til dóms

2Heyrið, allar þjóðir.
Hlusta þú, veröld, og allt sem í þér er.
Drottinn, Guð minn, ber yður sökum,
Drottinn vitnar gegn yður úr sínu heilaga musteri.
3Sjá, Drottinn kemur úr dvalarstað sínum,
hann kemur ofan og treður hæðir jarðarinnar.
4Fjöllin bráðna fyrir honum
og dalirnir gliðna
sem vax fyrir eldi
líkt og vatn steypist ofan bratta hlíð.
5Og allt þetta sökum afbrota Jakobs
og synda Ísraelsættar.
Hver er misgjörð Jakobs? Er það ekki Samaría?
Og hver er synd Júda? [
Er það ekki Jerúsalem?
6Þess vegna geri ég Samaríu að rúst á víðavangi,
gróðurreit fyrir vínvið,
því að steinum hennar
mun ég ryðja niður í dalinn
og afhjúpa undirstöður hennar.
7Mölvaðar skulu allar höggmyndir hennar
og allur skækjuauður hennar borinn á eld.
Ég eyði öllum skurðgoðum hennar
því að fyrir hórgjöld eru þau fengin
og að hórgjöldum skulu þau aftur verða.
8Vegna þessa harma ég og kveina,
geng berfættur og klæðlaus,
ýlfra eins og sjakalinn,
væli eins og uglan.
9Því að sár Samaríu er ólæknandi,
það nær allt til Júda,
allt að hliðum þjóðar minnar,
allt til Jerúsalem.
10Segið ekki frá því í Gat.
Grátið ekki.
Veltið yður í rykinu
í Betleafra.
11Hverfið burt naktir og smáðir,
þér íbúar í Safír.
Ekki komast íbúar Saanan undan.
Í Bet Haesel hljóma harmakvein,
í henni eigið þér enga stoð framar.
12Íbúarnir í Marot
væntu sér heilla,
en hörmungar hefur Drottinn sent
allt að hliðum Jerúsalemborgar.
13Spennið hesta fyrir vagnana,
þér, íbúar í Lakís. [
Þar var drýgð höfuðsynd dótturinnar Síonar,
hjá yður birtust syndir Ísraels.
14Fyrir þá sök verður skilnaður
milli yðar og Móreset-Gat.
Húsin í Aksív munu bregðast konungum Ísraels
líkt og þorrin vatnslind.
15Enn sendi ég sigurvegara gegn yður
sem í Maresa búið.
Og enn mun tign Ísraels
hörfa til Adúllam.
16Skerðu hár þitt og rakaðu höfuðið
vegna barnanna sem áður voru yndi þitt.
Gerðu þig nauðasköllótta sem hrægamm
því að börnin hafa verið hrakin frá þér í útlegð.