Davíð í Jerúsalem

1 Híram, konungur í Týrus, sendi menn til Davíðs með sedrusvið og einnig sendi hann steinsmiði og trésmiði til þess að byggja hús handa honum. 2 Þá skildi Davíð að Drottinn hafði fest hann í sessi sem konung yfir Ísrael því að hann hafði hafið konungdóm hans til vegs vegna þjóðar sinnar, Ísraels.
3 Davíð tók sér fleiri konur í Jerúsalem og eignaðist fleiri börn. 4 Þetta eru nöfn sonanna sem hann eignaðist í Jerúsalem: Sammúa, Sóbab, Natan, Salómon, 5 Jíbhar, Elísúa, Elpalet, 6 Nóga, Nefeg, Jafía, 7 Elísama, Beeljada og Elífelet.

Davíð sigrar Filistea

8 Þegar Filistear fréttu að Davíð hefði verið smurður til konungs yfir öllum Ísrael héldu allir Filistear upp eftir til þess að taka Davíð til fanga. Um leið og Davíð frétti þetta fór hann á móti þeim. 9 Filistear voru þá komnir og höfðu dreift sér um Refaímsléttu.
10 Þá spurði Davíð Guð: „Á ég að fara gegn Filisteunum? Muntu selja þá mér í hendur?“ Drottinn svaraði honum: „Farðu upp eftir því að ég mun selja þá þér í hendur.“ 11 Þá fór hann upp eftir til Baal Perasím, sigraði þá þar og sagði: „Guð hefur rofið fylkingar fjandmanna minna með hendi minni líkt og vatn sem brýtur sér leið.“ Þess vegna er þessi staður nefndur Baal Perasím, það er Herra rofsins.[ 12 Filistearnir skildu skurðgoð sín þar eftir og Davíð skipaði að þau skyldu brennd í eldi.
13 Nú dreifðu Filistear sér aftur um Refaímsléttu. 14 Davíð spurði þá Guð á ný og hann svaraði: „Þú skalt ekki fara á eftir þeim. Farðu á svig við þá og gerðu árás á þá frá bakatrjánum. 15 Þegar þú heyrir þrusk skóhljóði líkast í hæstu greinum bakatrjánna skaltu bregðast skjótt við því að þá fer Guð á undan þér til þess að sigra her Filistea.“
16 Davíð gerði eins og Guð hafði fyrir hann lagt og sigraði Filistea á öllu svæðinu frá Gíbeon til Geser. 17 Frægð Davíðs barst um öll lönd og Drottinn lét allar þjóðir óttast hann.