1 Davíðsmiktam.[
Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.
2Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn,
ég á engin gæði nema þig.“
3Á hinum heilögu í landinu og hinum dýrlegu
hef ég alla velþóknun mína.
4Miklar eru þjáningar þeirra sem elta aðra guði.
Ég vil ekki dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum
og ekki taka nöfn þeirra mér í munn.
5Drottinn, þú ert hlutskipti mitt og minn afmældi bikar,
þú heldur uppi hlut mínum.
6Mér féllu að erfðahlut indælir staðir
og arfleifð mín líkar mér vel.
7Ég lofa Drottin sem gefur mér ráð,
jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra. [
8Ég hef Drottin ætíð fyrir augum,
þegar hann er mér til hægri handar hnýt ég ekki.
9Fyrir því fagnar hjarta mitt, hugur minn gleðst
og líkami minn hvílist í friði
10því að þú ofurselur helju ekki líf mitt,
sýnir ekki gröfina þeim sem treystir þér.
11Kunnan gerðir þú mér veg lífsins,
gleðignótt er fyrir augliti þínu,
yndi í hægri hendi þinni að eilífu.