Spekiorð

1Betra er gott mannorð en góð ilmsmyrsl
og betri er dauðadagur en fæðingardagur.
2Betra er að ganga í sorgarhús
en að ganga í veislusal
því að það eru endalok sérhvers manns
og sá sem lifir hugfestir það.
3Betri er hryggð en hlátur
því að þegar andlitið er dapurt
líður hjartanu vel.
4Hjarta spekinganna er í sorgarhúsi
en hjarta heimskingjanna í gleðihúsi.
5Betra er að hlýða á ávítur viturs manns
en á lofsöng heimskra manna.
6Hlátur heimskingjans er eins og
þegar snarkar í hrísi undir potti.
Einnig það er hégómi.
7Kúgun gerir vitran mann að heimskingja
og mútur spilla hjartanu.
8Betri er endir máls en upphaf,
betri er þolinmóður maður en þóttafullur.
9Vertu ekki auðreittur til reiði
því að gremja hvílir í brjósti heimskra manna.
10Segðu ekki: Hvernig stendur á því að hinir fyrri dagar voru betri en þessir?
Ekki er það skynsamlegt að þú spyrjir svo.
11Speki er eins góð og óðal
og ávinningur fyrir þá sem sólina líta.
12Því að spekin veitir forsælu
eins og silfrið veitir forsælu
en yfirburðir þekkingarinnar eru þeir
að spekin heldur lífinu í þeim sem hana á.
13Skoða þú verk Guðs.
Hver getur gert það beint sem hann hefur gert bogið?
14Vertu í góðu skapi á góðum degi
og hugleiddu þetta á illum degi:
Guð hefur gert þennan dag alveg eins og hinn
til þess að maðurinn verði einskis vísari um það sem síðar kemur.

Ver ekki of réttlátur

15Allt hef ég séð á minni fánýtu ævi:
Margur réttlátur maður ferst í réttlæti sínu
og margur guðlaus maður lifir lengi í illsku sinni.
16Vertu ekki um of réttlátur
og stærðu þig ekki af speki,
hví vilt þú tortíma sjálfum þér?
17Breyttu ekki of óguðlega
og vertu ekki heimskur,
hví vilt þú deyja áður en þinn tími er kominn?
18Það er gott að þú haldir fast við þetta
en sleppir þó ekki hendinni af hinu
því að sá sem óttast Guð kemst hjá því öllu.

19 Spekin veitir vitrum manni meiri mátt en tíu valdhafar sem eru í borginni.
20 Enginn réttlátur maður er til á jörðinni sem gert hefur gott eitt og aldrei syndgað.
21 Gefðu ekki heldur gaum öllum þeim orðum sem töluð eru, til þess að þú heyrir ekki þræl þinn bölva þér. 22 Sjálfur veistu að þú hefur einnig oft bölvað öðrum.
23 Allt þetta hef ég rannsakað með speki. Ég hugsaði: Ég vil verða vitur en hyggindin eru hulin. 24 Fjarlægt er það sem er og djúpt, já djúpt. Hver getur fundið það? 25 Ég sneri mér og einbeitti mér að því að þekkja og rannsaka og leita visku og hygginda og að gera mér ljóst að guðleysi er heimska og heimska vitleysa. 26 Og ég fann að konan er biturri en dauðinn því að hún er net og hjarta hennar snara, hendur hennar fjötrar. Sá sem Guði þóknast kemst undan henni en syndarinn verður fanginn af henni. 27 Sjá, þetta hef ég fundið, segir prédikarinn, með því að leggja eitt við annað til þess að komast að hyggindum. 28 Það sem ég hef leitað að án afláts en ekki fundið, það er þetta: Einn mann af þúsundi hef ég fundið en konu hef ég aldrei fundið á meðal allra þeirra. 29 Sjá, þetta eitt hef ég fundið, að Guð hefur skapað mennina rétt en vangaveltur þeirra urðu of margar.