1Betra er gott mannorð en góð ilmsmyrsl og dauðadagur betri en fæðingardagur.2Betra er að ganga í sorgarhús en að ganga í veislusal, því að það eru endalok sérhvers manns, og sá sem lifir, hugfestir það.3Betri er hryggð en hlátur, því að þegar andlitið er dapurt, líður hjartanu vel.4Hjarta spekinganna er í sorgarhúsi, en hjarta heimskingjanna í gleðihúsi.5Betra er að hlýða á ávítur viturs manns en á söng heimskra manna.6Því að hlátur heimskingjans er eins og þegar snarkar í þyrnum undir potti. Einnig það er hégómi.7Kúgun gjörir vitran mann að heimskingja, og mútur spilla hjartanu.8Betri er endir máls en upphaf, betri er þolinmóður maður en þóttafullur.9Ver þú eigi fljótur til að láta þér gremjast, því að gremja hvílir í brjósti heimskra manna.10Seg ekki: Hvernig stendur á því, að hinir fyrri dagar voru betri en þessir? Því að eigi er það af skynsemi, að þú spyr um það.11Speki er eins góð og óðal, og ávinningur fyrir þá sem sólina líta.12Því að spekin veitir forsælu eins og silfrið veitir forsælu, en yfirburðir þekkingarinnar eru þeir, að spekin heldur lífinu í þeim sem hana á.13Skoða þú verk Guðs. Hver getur gjört það beint, er hann hefir gjört bogið?14Ver þú í góðu skapi á hinum góða degi, og hugleið þetta á hinum vonda degi: Guð hefir gjört þennan alveg eins og hinn, til þess að maðurinn verði einskis vísari um það sem síðar kemur.15Allt hefi ég séð á mínum fánýtu ævidögum: Margur réttlátur maður ferst í réttlæti sínu, og margur guðlaus maður lifir lengi í illsku sinni.16Ver þú ekki of réttlátur og sýn þig ekki frábærlega vitran hví vilt þú tortíma sjálfum þér?17Breyttu eigi of óguðlega og ver þú eigi heimskingi hví vilt þú deyja áður en þinn tími er kominn?18Það er gott, að þú sért fastheldinn við þetta, en sleppir þó ekki hendinni af hinu, því að sá sem óttast Guð, kemst hjá því öllu.19Spekin veitir vitrum manni meiri kraft en tíu valdhafar, sem eru í borginni.20Enginn réttlátur maður er til á jörðinni, er gjört hafi gott eitt og aldrei syndgað.21Gef þú heldur ekki gaum öllum þeim orðum sem töluð eru, til þess að þú heyrir eigi þjón þinn bölva þér.22Því að þú ert þér þess meðvitandi, að þú hefir og sjálfur oftsinnis bölvað öðrum.23Allt þetta hefi ég rannsakað með speki. Ég hugsaði: Ég vil verða vitur, en spekin er fjarlæg mér.24Fjarlægt er það, sem er, og djúpt, já djúpt. Hver getur fundið það?25Ég sneri mér og beindi huga mínum að því að þekkja og rannsaka og leita visku og hygginda og að gera mér ljóst, að guðleysi er heimska og heimska vitleysa.26Og ég fann að konan er bitrari en dauðinn, því að hún er net og hjarta hennar snara, hendur hennar fjötrar. Sá sem Guði þóknast, kemst undan henni, en syndarinn verður fanginn af henni.27Sjá, þetta hefi ég fundið, segir prédikarinn, með því að leggja eitt við annað til þess að komast að hyggindum.28Það sem ég hefi stöðugt leitað að, en ekki fundið, það er þetta: Einn mann af þúsundi hefi ég fundið, en konu á meðal allra þessara hefi ég ekki fundið.29Sjá, þetta eitt hefi ég fundið, að Guð hefir skapað manninn beinan, en þeir leita margra bragða.

7.1 Mannorð Okv 22.1; Sír 41.12
7.4 Sorg og gleði sbr Slm 126.5; Lúk 6.25
7.9 Gremja Jak 1.19-20
7.11 Gildi spekinnar Okv 8.11+
7.13 Verk Guðs Préd 3.11+
7.14 Góður dagur og illur dagur Job 2.10
7.15 Réttlátur, guðlaus Préd 8.14; 9.2; sbr 3.17; 8.12-13
7.20 Enginn réttlátur Slm 143.2; Job 4.17; Okv 20.9; Sír 8.5; Róm 3.20; Jóh 1.8
7.26 Konan er gildra Okv 22.14; sbr Okv 2.16+