Mæl þú eitt orð

1 Þá er Jesús hafði lokið við að tala við fólkið fór hann til Kapernaúm. 2 Hundraðshöfðingi nokkur hafði þjón sem hann mat mikils. Þjónninn var sjúkur og dauðvona. 3 Þegar hundraðshöfðinginn heyrði um Jesú sendi hann til hans öldunga Gyðinga og bað hann koma og bjarga lífi þjóns síns. 4 Þeir komu til Jesú, báðu hann ákaft og sögðu: „Verður er hann þess að þú veitir honum þetta 5 því að hann elskar þjóð okkar og hann hefur reist samkunduna handa okkur.“
6 Jesús fór með þeim. Þegar hann átti skammt til hússins sendi hundraðshöfðinginn vini sína til hans og lét segja við hann: „Ómaka þig ekki, Drottinn, því að ég er ekki verður þess að þú gangir inn undir þak mitt. 7 Þess vegna hef ég ekki heldur talið sjálfan mig verðan þess að koma til þín. En mæl þú eitt orð og mun sveinn minn heill verða. 8 Því að sjálfur er ég maður sem verður að lúta valdi og ræður yfir hermönnum og ég segi við einn: Far þú, og hann fer og við annan: Kom þú, og hann kemur og við þjón minn: Ger þetta, og hann gerir það.“
9 Þegar Jesús heyrði þetta furðaði hann sig á honum, sneri sér að mannfjöldanum sem fylgdi honum og mælti: „Ég segi ykkur, ekki einu sinni í Ísrael hef ég fundið þvílíka trú.“ 10 Sendimenn sneru þá aftur heim og fundu þjóninn heilan heilsu.

Grát þú eigi

11 Skömmu síðar bar svo við að Jesús hélt til borgar sem heitir Nain og lærisveinar hans fóru með honum og mikill mannfjöldi. 12 Þegar hann nálgaðist borgarhliðið þá var verið að bera út látinn mann, einkason móður sinnar sem var ekkja, og mikill fjöldi úr borginni var með henni. 13 Og er Drottinn sá hana kenndi hann í brjósti um hana og sagði við hana: „Grát þú eigi!“ 14 Og hann gekk að og snart líkbörurnar en þeir sem báru námu staðar. Þá sagði hann: „Ungi maður, ég segi þér, rís þú upp!“ 15 Hinn látni settist þá upp og tók að mæla og Jesús gaf hann móður hans.
16 En ótti greip alla og þeir vegsömuðu Guð og sögðu: „Spámaður mikill er risinn upp meðal okkar,“ og „Guð hefur vitjað lýðs síns.“
17 Og þessi fregn um Jesú barst út um alla Júdeu og allt nágrennið.

Ert þú sá sem koma skal?

18 Lærisveinar Jóhannesar sögðu honum frá öllu þessu. Jóhannes kallaði þá til sín tvo lærisveina sína, 19 sendi þá til Drottins og lét spyrja: „Ert þú sá sem koma skal eða eigum við að vænta annars?“
20 Mennirnir fóru til hans og sögðu: „Jóhannes skírari sendi okkur til þín og spyr: Ert þú sá sem koma skal eða eigum við að vænta annars?“
21 Á þeirri stundu læknaði hann marga af sjúkdómum, meinum og illum öndum og gaf mörgum blindum sýn. 22 Og hann svaraði þeim: „Farið og kunngjörið Jóhannesi það sem þið hafið séð og heyrt: Blindir fá sýn, haltir ganga, líkþráir hreinsast[ og daufir heyra, dauðir rísa upp og fátækum er flutt fagnaðarerindi. 23 Og sæll er sá sem hafnar ekki því sem ég geri.“

Meira en spámaður

24 Þá er sendimenn Jóhannesar voru farnir burt tók Jesús að tala til mannfjöldans um Jóhannes: „Hvað fóruð þið að sjá í óbyggðum? Reyr af vindi skekinn? 25 Hvað fóruð þið að sjá? Prúðbúinn mann? Nei, í konungssölum er þá að finna sem skartklæðin bera og lifa í sællífi. 26 Hvað fóruð þið þá að sjá? Spámann? Já, segi ég ykkur, og það meira en spámann. 27 Hann er sá sem um er ritað:
Ég sendi sendiboða minn á undan þér,
hann á að ryðja þér braut.

28 Ég segi ykkur: Enginn er sá af konu fæddur sem er meiri en Jóhannes. En hinn minnsti í Guðs ríki er honum meiri.“
29 Og allir sem á hlýddu, jafnvel tollheimtumenn, viðurkenndu að hér var Guð að verki og létu skírast af Jóhannesi. 30 En farísear og lögvitringar gerðu að engu áform Guðs um þá og létu Jóhannes ekki skíra sig.
31 „Við hvað á ég þá að líkja mönnum þessarar kynslóðar? Hverju eru þeir líkir? 32 Líkir eru þeir börnum sem á torgi sitja og kallast á: Við lékum fyrir ykkur á flautu og ekki vilduð þið dansa. Við sungum ykkur sorgarljóð og ekki vilduð þið gráta. 33 Nú kom Jóhannes skírari, át hvorki brauð né drakk vín, og þið segið: Hann hefur illan anda. 34 Og Mannssonurinn er kominn, etur og drekkur og þið segið: Hann er mathákur og vínsvelgur, vinur tollheimtumanna og syndara! 35 En öll börn spekinnar sjá og játa hvar hún er að verki.“

Syndir fyrirgefnar

36 Farísei nokkur bauð Jesú til máltíðar og hann fór inn í hús faríseans og settist til borðs. 37 En kona ein í bænum, sem var bersyndug, varð þess vís að hann sat að borði í húsi faríseans. Kom hún þá með alabastursbuðk með smyrslum, 38 nam staðar að baki Jesú til fóta hans grátandi,[ tók að væta fætur hans með tárum sínum, þerraði þá með höfuðhári sínu, kyssti þá og smurði með smyrslunum. 39 Þegar faríseinn, sem hafði boðið honum, sá þetta sagði hann með sjálfum sér: „Væri þetta spámaður mundi hann vita hver og hvílík sú kona er sem snertir hann, að hún er bersyndug.“
40 Jesús sagði þá við hann: „Símon, ég hef nokkuð að segja þér.“
Hann svaraði: „Seg þú það, meistari.“
41 „Tveir menn voru skuldugir lánveitanda nokkrum. Annar skuldaði honum fimm hundruð denara[ en hinn fimmtíu. 42 Nú gátu þeir ekkert borgað og þá gaf hann báðum upp skuldina. Hvor þeirra skyldi nú elska hann meira?“
43 Símon svaraði: „Sá hygg ég sem hann gaf meira upp.“
Jesús sagði við hann: „Þú ályktaðir rétt.“ 44 Síðan sneri hann sér að konunni og sagði við Símon: „Sér þú konu þessa? Ég kom í hús þitt og þú gafst mér ekki vatn á fætur mína en hún vætti fætur mína tárum sínum og þerraði með hári sínu. 45 Ekki gafst þú mér koss en hún hefur ekki látið af að kyssa fætur mína allt frá því ég kom. 46 Ekki smurðir þú höfuð mitt olíu en hún hefur smurt fætur mína með smyrslum. 47 Þess vegna segi ég þér: Hinar mörgu syndir hennar eru fyrirgefnar enda elskar hún mikið en sá elskar lítið sem lítið er fyrirgefið.“ 48 Síðan sagði hann við hana: „Syndir þínar eru fyrirgefnar.“
49 Þá tóku þeir sem til borðs voru með honum að segja með sjálfum sér: „Hver er sá er fyrirgefur syndir?“
50 En Jesús sagði við konuna: „Trú þín hefur frelsað þig, far þú í friði.“