1Því er á annan veg farið um þann
er sökkvir sér niður í íhugun lögmáls Hins hæsta.
Hann rannsakar speki hinna fornu manna,
leggur sig eftir spádómum.
2 Hann safnar orðræðum víðkunnra manna
og kafar í dæmi orðskviðanna.
3 Hann ræður rúnir spakmæla
og leysir gátur dæmisagna.
4 Höfðingjar kveðja hann til þjónustu
og hann kemur fram fyrir þjóðhöfðingja.
Hann ferðast meðal framandi þjóða
og reynir menn að góðu og illu.
5 Hann leggur sig fram um að vakna árla,
leita Drottins sem skapaði hann
og ákalla Hinn hæsta.
Hann lýkur upp munni sínum í bæn
og biður um fyrirgefningu synda.
6 Sé það vilji hins volduga Drottins
fyllist hann anda skilnings.
Hann mun láta spekiorð sín streyma fram
og lofsyngja Drottni í bænum sínum.
7 Hann fellir ráð sín og skilning í farveg
og ígrundar leynda dóma Drottins.
8 Hann lætur það í ljós sem hann hefur lært
og fagnar yfir lögum og sáttmála Drottins.
9 Margir hrósa hyggindum hans,
nafn hans mun eigi afmáð um aldur.
Orðstír hans deyr aldrei,
nafn hans mun lifa frá kyni til kyns.
10 Hjá framandi þjóðum fer orð af speki hans
og söfnuðurinn mun kunngjöra orðstír hans.
11 Lifi hann lengi mun hann mærður meir en þúsundir
en deyi hann er orðstír hans ærinn.

Lofgjörð til Guðs

12Enn hef ég fleiru frá að greina,
er þrunginn þekkingu eins og tungl í fyllingu.
13 Hlýðið á mig, guðhrædd börn mín, og vaxið
eins og rósarunnar við læk.
14 Þér munuð anga sem reykelsið,
blómstra liljum líkust.
Hefjið raust yðar og syngið lofsöng,
lofið Drottin fyrir öll hans verk.
15 Miklið nafn hans stórum,
þakkið og lofsyngið honum
bæði með söngvum og hörpuleik,
flytjið lofgjörð þessum orðum:
16 „Allt er gott sem gerði Drottinn,
allt sem hann býður verður á réttum tíma.“
17 Eigi skal segja: „Hvað er þetta, til hvers er það?“
Svarið fæst þegar Drottinn metur hentast.
Með orði lét hann vatnið safnast efra,
eftir orði hans varð það að forðabúri.
18 Að boði hans verður allt sem hann óskar,
enginn fær rýrt þá hjálp sem hann veitir.
19 Verk allra manna eru honum augljós,
ekkert fær dulist augum hans.
20 Hann hefur auga á öllu frá eilífð til eilífðar,
ekkert er honum undrunarefni.
21 Eigi skal segja: „Hvað er þetta, til hvers er það?“
Sérhvað var skapað í ákveðnum tilgangi.
22 Blessun Drottins streymir yfir sem fljót
sem vökvar þurrlendið þegar það flæðir.
23 Þannig mun reiði hans koma yfir heiðingja
eins og þegar hann gerði vatnsauðugt land að saltsléttu.
24 Vegir Drottins eru guðræknum greiðir
en ófærir illum mönnum.
25 Í upphafi skapaði hann gott fyrir góða
en syndurum einnig hið illa.
26 Frumþörf allra manna til viðurværis
er vatn og eldur, járn og salt,
hveitimjöl, mjólk og hunang,
vínþrúgudreyri, ólífuolía og klæði.
27 Allt er þetta guðhræddum til góðs
en snýst illum til ófarnaðar.
28 Til eru andar skapaðir til að hegna,
þeir ljósta sárt í ofsa sínum.
Þeir úthella heift á skuldadegi
uns skaparanum er runnin reiðin.
29 Eldur og hagl, hungur og drepsótt,
allt þetta var skapað til að hegna,
30 einnig gin óargadýra, sporðdrekar og slöngur
og hegningarsverð sem eyða guðlausum.
31 Þeir fagna er þeir fá skipun hans
og búa sig til þjónustu á jörðu
og er stundin kemur breyta þeir í engu gegn orði hans.
32 Allt frá upphafi styrktist sannfæring mín,
ég grundaði þetta og skráði það síðan:
33 „Öll verk Drottins eru góð,
hann bætir úr allri þörf á hentugum tíma.“
34 Enginn skal segja: „Þetta er hinu síðra.“
Allt mun reynast gott á sínum tíma.
35 Syngið því lofsöng af öllu hjarta
og lofið nafn Drottins.