Náð Guðs vekur örlæti

1 En svo vil ég, bræður mínir og systur,[ skýra ykkur frá þeirri náð sem Guð hefur sýnt söfnuðunum í Makedóníu. 2 Þrátt fyrir þær miklu þrengingar sem þeir hafa orðið að reyna hefur hin ríka gleði þeirra leitt í ljós hve örlátir þeir eru þrátt fyrir sára fátækt. 3 Ég get vottað það hversu þeir hafa gefið eftir efnum, já, umfram efni sín. Af eigin hvötum 4 lögðu þeir fast að mér og báðu um að mega taka þátt í samskotunum til hinna heilögu. 5 Og þeir gerðu betur en ég hafði vonað, þeir gáfu sjálfa sig, fyrst og fremst Drottni og síðan mér að vilja Guðs. 6 Það varð til þess að ég bað Títus að hann skyldi og leiða til lykta hjá ykkur þessa gjöf eins og hann hefur byrjað. 7 Þið skarið fram úr í öllu, í trú, í mælsku og þekkingu, í allri alúð og í elsku ykkar sem ég hef vakið.[ Þannig skuluð þið skara fram úr í þessari gjöf.
8 Ég segi þetta ekki sem skipun heldur er ég að ganga úr skugga um hvort kærleiki ykkar sé einlægur samanborið við ósérplægni annarra. 9 Þið þekkið náð Drottins vors Jesú Krists. Hann gerðist fátækur ykkar vegna, þótt ríkur væri, til þess að þið auðguðust af fátækt hans.
10 Ég vil gefa ykkur ráð í þessu máli. Ég tel það vera ykkur til gagns að taka þátt í samskotunum. Í fyrra ákváðuð þið það og voruð þegar farin að hefjast handa. 11 Ljúkið nú við það og sýnið viljann í verki og gefið það sem efnin leyfa. 12 Því að ef viljinn er góður þá er hver metinn eftir því sem hann á og ekki eftir því sem hann á ekki til. 13 Ekki svo að þrengt sé að ykkur til þess að aðrir hafi það gott heldur er það til þess að jöfnuður verði. 14 Nú sem stendur bætir gnægð ykkar úr skorti hinna til þess að einnig gnægð hinna geti bætt úr skorti ykkar og þannig verði jöfnuður 15 eins og skrifað er:
Sá sem miklu safnaði hafði ekki afgangs
og þann skorti ekki sem litlu safnaði.

Títus og samferðamenn hans

16 En þökk sé Guði sem vakti í hjarta Títusar þessa sömu umhyggju fyrir ykkur og ég hef. 17 Hann varð ekki aðeins við áskorun minni heldur var áhugi hans svo mikill að hann ákvað að fara af eigin hvötum. 18 Með honum sendi ég þann bróður sem orð fer af í öllum söfnuðunum fyrir starf hans í þjónustu fagnaðarerindisins. 19 Og ekki það eitt heldur hefur söfnuðurinn kjörið hann til að vera samferðamaður minn með gjöf þessa sem ég hef látið safna Drottni til dýrðar og til að sýna fúsleika minn. 20 Ég hef viljað komast hjá því að nokkur gæti sett út á meðferð mína á hinni miklu gjöf sem ég hef gengist fyrir. 21 Því að ég leitaðist við að ástunda það sem gott er, ekki aðeins í augum Drottins heldur og í augum manna. 22 Með þeim sendi ég annan bróður, sem ég oftsinnis og í mörgu hef reynt kostgæfinn, en nú miklu fremur en ella vegna hans mikla trausts til ykkar. 23 Títus er félagi minn og starfsbróðir hjá ykkur og hinir eru bræður okkar og sendiboðar safnaðanna og eru Kristi til vegsemdar. 24 Sýnið þeim því merki elsku ykkar og ástæðuna fyrir að ég hrósaði ykkur. Þá verður söfnuðunum það ljóst.