1 Allir þeir sem eru ánauðugir skulu sýna húsbændum sínum allan skyldugan heiður til þess að nafni Guðs og kenningunni verði ekki lastmælt. 2 En þeir sem eiga trúaða húsbændur skulu ekki lítilsvirða þá vegna þess að þeir eru systkin í trúnni[ heldur þjóni þeir þeim því betur af því að þeir eru trúaðir og elskaðir og gera sér far um að koma vel fram við þá.
Kenn þú þetta og boða það.

Sönn guðhræðsla og fölsk

3 Ef einhver fer með villukenningar og fylgir ekki hinum heilnæmu orðum Drottins vors Jesú Krists og því sem trú okkar kennir, 4 þá hefur hann ofmetnast og veit ekki neitt. Hann er sótttekinn af þrætum og orðastælum. Af þessu fæðist öfund, deilur, lastmæli, vondar hugsanir, 5 þjark og þras hugspilltra manna sem eru sneyddir sannleikanum en skoða trúna sem gróðaveg.
6 Já, trúin samfara nægjusemi er mikill gróðavegur. 7 Því að ekkert höfum við inn í heiminn flutt og ekki getum við heldur flutt neitt út þaðan.
8 Ef við höfum fæði og klæði þá látum okkur það nægja. 9 En þeir sem ríkir vilja verða falla í freistni og lenda í snöru alls kyns óviturlegra og skaðlegra fýsna er sökkva mönnunum niður í tortímingu og glötun.
10 Fégirndin er rót alls ills. Við þá fíkn hafa nokkrir villst frá trúnni og valdið sjálfum sér mörgum harmkvælum.

Trúarinnar góða barátta

11 En þú, Guðs maður, forðast þú þetta en stunda réttlæti, guðrækni, trú, kærleika, stöðuglyndi og hógværð.
12 Berstu trúarinnar góðu baráttu, höndla þú eilífa lífið sem þú varst kallaður til og þú játaðist með góðu játningunni í viðurvist margra votta.
13 Fyrir augliti Guðs, sem veitir öllu líf, og Krists Jesú, er gerði góðu játninguna frammi fyrir Pontíusi Pílatusi, býð ég þér: 14 Gæt þess sem þér er falið lýtalaust og óaðfinnanlega allt til endurkomu Drottins vors Jesú Krists 15 sem hinn blessaði og eini alvaldur mun á sínum tíma láta birtast, konungur konunganna og Drottinn drottnanna.
16 Hann einn er ódauðlegur og býr í því ljósi sem enginn fær nálgast, hann sem enginn maður leit né litið getur. Honum sé heiður og eilífur máttur. Amen.
17 Vara ríkismenn þessarar aldar við að hreykja sér og treysta fallvöltum auði, bjóð þeim heldur að treysta Guði sem lætur okkur allt ríkulega í té sem við þörfnumst. 18 Bjóð þeim að gera gott, vera ríkir að góðum verkum, örlátir, fúsir að miðla öðrum, 19 með því safna þeir handa sjálfum sér fjársjóði sem er góð undirstaða til hins ókomna og munu geta höndlað hið sanna líf.
20 Þú, Tímóteus, varðveit það sem þér er trúað fyrir og forðast hinar vanheilögu hégómaræður og mótsagnir þeirrar speki sem svo er rangnefnd 21 og nokkrir hafa játast undir og orðið frávillingar frá trúnni.
Náð sé með yður.