Boðið til brúðkaups

1 Þá tók Jesús enn að segja þeim dæmisögu: 2 „Líkt er um himnaríki og konung einn sem gerði brúðkaup sonar síns. 3 Hann sendi þjóna sína að kalla boðsgestina til brúðkaupsins en þeir vildu ekki koma. 4 Aftur sendi hann aðra þjóna og mælti: Segið boðsgestunum: Veislu mína hef ég búið, uxum mínum og alifé er slátrað og allt er tilbúið, komið í brúðkaupið. 5 En boðsgestirnir skeyttu því ekki. Einn fór á akur sinn, annar til kaupskapar síns 6 en hinir tóku þjóna hans, misþyrmdu þeim og drápu.
7 Konungur reiddist, sendi út her sinn og lét tortíma morðingjum þessum og brenna borg þeirra. 8 Síðan segir hann við þjóna sína: Brúðkaupsveislan er tilbúin en boðsgestirnir voru ekki verðugir. 9 Farið því út á stræti og torg og bjóðið í brúðkaupið hverjum þeim sem þið finnið. 10 Þjónarnir fóru út á vegina og söfnuðu öllum, sem þeir fundu, vondum og góðum, svo að brúðkaupssalurinn varð alskipaður gestum.
11 Konungur gekk þá inn að sjá gestina og leit þar mann sem var ekki búinn brúðkaupsklæðum. 12 Hann segir við hann: Vinur, hvernig ert þú hingað kominn og ert ekki í brúðkaupsklæðum? Maðurinn gat engu svarað. 13 Konungur sagði þá við þjóna sína: Bindið hann á höndum og fótum og varpið honum í ystu myrkur. Þar verður grátur og gnístran tanna. 14 Því að margir eru kallaðir en fáir útvaldir.“

Keisarinn og Guð

15 Þá gengu farísearnir burt og tóku saman ráð sín hvernig þeir gætu flækt Jesú í orðum. 16 Þeir senda til hans lærisveina sína ásamt Heródesarsinnum og þeir segja: „Meistari, við vitum að þú ert sannorður og kennir Guðs veg í sannleika, þú hirðir ekki um álit neins enda gerir þú þér engan mannamun. 17 Seg okkur því hvað þér líst? Leyfist að gjalda keisaranum skatt eða ekki?“
18 Jesús þekkti illsku þeirra og sagði: „Hvers vegna leggið þið snöru fyrir mig, hræsnarar? 19 Sýnið mér peninginn sem goldinn er í skatt.“
Þeir fengu honum denar. 20 Hann spyr: „Hvers mynd og nafn er á peningnum?“
21 Þeir svara: „Keisarans.“ Hann segir: „Gjaldið þá keisaranum það sem keisarans er og Guði það sem Guðs er.“
22 Þegar þeir heyrðu þetta undruðust þeir, yfirgáfu hann og gengu burt.

Guð lifenda

23 Sama dag komu saddúkear til Jesú, en þeir neita því að upprisa sé til, og sögðu við hann: 24 „Meistari, Móse segir: Deyi maður barnlaus þá skal bróðir hans ganga að eiga konu hans og vekja honum niðja. 25 Hér voru með okkur sjö bræður. Sá fyrsti kvæntist og dó. Hann átti engan niðja og eftirlét því bróður sínum konuna. 26 Eins varð um næsta og þriðja og þá alla sjö. 27 Síðast allra dó konan. 28 Kona hvers þeirra sjö verður hún í upprisunni? Allir höfðu þeir átt hana.“
29 En Jesús svaraði þeim: „Þið villist því að þið þekkið ekki ritningarnar né mátt Guðs. 30 Í upprisunni kvænast menn hvorki né giftast. Þeir eru sem englar á himni. 31 En um upprisu dauðra ættuð þið að hafa lesið það sem Guð segir við ykkur: 32 Ég er Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs. Ekki er hann Guð dauðra heldur lifenda.“
33 En mannfjöldinn hlýddi á og undraðist mjög kenningu hans.

Hið æðsta boðorð

34 Þegar farísear heyrðu að Jesús hafði gert saddúkea orðlausa komu þeir saman. 35 Og einn þeirra, sem var lögvitringur, vildi reyna hann og spurði: 36 „Meistari, hvert er hið æðsta boðorð í lögmálinu?“
37 Jesús svaraði honum: „Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum. 38 Þetta er hið æðsta og fremsta boðorð. 39 Annað er hliðstætt þessu: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. 40 Á þessum tveimur boðorðum hvílir allt lögmálið og spámennirnir.“

Kristur er Drottinn

41 Þegar farísearnir voru saman komnir spurði Jesús þá: 42 „Hvað virðist ykkur um Krist? Hvers son er hann?“
Þeir svara: „Davíðs.“
43 Hann segir: „Hvernig getur þá Davíð, innblásinn andanum, kallað hann drottin? Hann segir:
44 Drottinn sagði við minn drottin:
Set þig mér til hægri handar
þangað til ég geri óvini þína að fótskör þinni.

45 Fyrst Davíð kallar hann drottin, hvernig getur hann þá verið sonur hans?“
46 Enginn gat svarað Jesú einu orði og frá þeim degi þorði enginn að spyrja hann neins framar.