Jósía

1Minning Jósía er líkust reykelsisblöndu,
haglega gerðri af kunnáttumanni.
Hverjum munni er hún hunangssæt
eins og tónlist við samdrykkju.
2 Hann gerði rétt er hann sneri þjóðinni til rétts vegar
og afmáði svívirðu siðleysisins.
3 Hann gekk Drottni á hönd af öllu hjarta
og efldi guðrækni á tímum siðleysis.

Jeremía

4Að Davíð frátöldum, Hiskía og Jósía
syndguðu allir konungarnir stórum.
Þeir voru fráhverfir lögmáli Hins hæsta
og konungarnir í Júda hurfu.
5 Þeir seldu öðrum völd sín í hendur
og vegsemd sína framandi þjóð
6 sem brenndi hina útvöldu borg helgidómsins
og gerði götur hennar mannlausar.
Það varð fyrir atbeina Jeremía.
7 Þeir ofsóttu hann sem í móðurlífi var helgaður spámaður
til að uppræta, umturna og eyða
en einnig til að byggja og gróðursetja.

Esekíel

8Esekíel fékk að líta dýrð Drottins í sýn
sem var birt honum á kerúbavagni.
9 Hann hótaði óvinunum steypiregni
en hét þeim velfarnaði sem lifðu réttlátlega. [

Spámennirnir tólf

10Megi nýjar greinar vaxa upp
af beinum spámannanna tólf, þar sem þau liggja,
því að þeir hughreystu Jakob
og frelsuðu þjóðina er þeir gáfu henni örugga von.

Serúbabel og Jósúa

11Hvernig fáum vér nógsamlega lofað Serúbabel
sem var líkur innsiglishring á hægri hendi?
12 Sama má og segja um Jósúa Jósadaksson.
Þeir reistu helgidóminn á sínum dögum
og byggðu Drottni heilagt musteri
sem var búið til eilífrar dýrðar.

Nehemía

13Orðstír Nehemía skal lifa lengi,
hann reisti hina föllnu múra fyrir oss,
styrkti hliðin og þverslárnar
og reisti hús vor upp af rústum.

Önnur stórmenni til forna

14Enginn var á jörðu skapaður jafnoki Enoks
enda var hann numinn frá jörðu.
15 Ekki hefur heldur fæðst neinn jafningi Jósefs
sem varð leiðtogi bræðra, lýðnum stoð,
jafnvel beinum hans sýndu menn virðingu.
16 Sem og Set hlutu vegsemd af mönnum
en æðri öllu lifandi lífi er Adam.