Hólpin af náð

1 Þið voruð dauð vegna afbrota ykkar og synda 2 sem þið lifðuð í áður samkvæmt aldarhætti þessa heims að vilja valdhafans í loftinu, anda þess, sem nú verkar í þeim, sem ekki trúa. 3 Eins lifðum við öll fyrrum, lutum jarðbundnum girndum, gerðum það sem okkur lysti og refsidómur Guðs vofði yfir okkur eins og öðrum mönnum.
4 En Guð er auðugur að miskunn. Svo mikil var elska hans til okkar að þótt við værum dauð vegna misgjörða okkar 5 endurlífgaði hann okkur með Kristi – af náð eruð þið hólpin orðin – 6 og reisti okkur upp með Kristi Jesú og bjó okkur stað hjá honum í himinhæðum. 7 Þannig vildi hann sýna á komandi öldum ómælanlega auðlegð náðar sinnar og gæsku við okkur í Kristi Jesú, 8 því að af náð eruð þið hólpin orðin fyrir trú. Þetta er ekki ykkur að þakka. Það er Guðs gjöf. 9 Ekki byggt á verkum, enginn skal geta miklast af því. 10 Við erum smíð Guðs, sköpuð í Kristi Jesú til góðra verka sem hann hefur áður fyrirbúið til þess að við skyldum leggja stund á þau.

Eitt í Kristi

11 Þið skuluð því minnast þessa: Þið voruð upprunalega heiðingjar og kallaðir óumskornir af mönnum sem kalla sig umskorna og eru umskornir á holdi með höndum manna. 12 Sú var tíðin er þið voruð án Krists, lokaðir úti frá þegnrétti Ísraelsmanna. Þið stóðuð fyrir utan sáttmálana og fyrirheit Guðs, vonlausir og guðvana í heiminum. 13 Nú þar á móti eruð þið, sem eitt sinn voruð fjarlægir, nálægir orðnir í Kristi fyrir blóð hans. 14 Því að hann er friður okkar. Hann gerði heiðingja og Ísraelsmenn að einum, hann reif niður vegginn sem skildi þá að, fjandskapinn milli þeirra. Með lífi sínu og dauða 15 afmáði hann lögmálið með boðorðum þess og skipunum til þess að setja frið og skapa í sér einn nýjan mann úr báðum. 16 Í einum líkama sætti hann þá báða við Guð með því að deyja á krossi þar sem hann deyddi fjandskapinn. 17 Og hann kom og boðaði ykkur frið sem fjarlægir voruð, og frið hinum sem nálægir voru. 18 Því að fyrir hans tilverknað getum við hvor tveggja nálgast föðurinn í einum anda.
19 Þess vegna eruð þið ekki framar gestir og útlendingar heldur eruð þið samþegnar hinna heilögu og heimamenn Guðs. 20 Þið eruð bygging sem hefur að grundvelli postulana og spámennina en Krist Jesú sjálfan að hyrningarsteini. 21 Í honum tengist öll sú bygging saman, vex og verður heilagt musteri í Drottni. 22 Með honum eruð einnig þið sambyggðir til andlegs bústaðar handa Guði.