Leiðin til spekinnar

1Sonur minn, gleymdu ekki kenningu minni
og hjarta þitt varðveiti ráð mín
2því að langa lífdaga, farsæl ár
og velgengni munu þau veita þér ríkulega.
3Kærleikur og tryggð munu aldrei yfirgefa þig.
Festu þau um háls þér og ritaðu þau á spjald hjarta þíns,
4þá muntu hljóta hylli og góð hyggindi,
jafnt í augum Guðs sem manna.
5Treystu Drottni af öllu hjarta
en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit.
6Minnstu hans á öllum vegum þínum,
þá mun hann gera leiðir þínar greiðar.
7Þú skalt ekki þykjast vitur
en óttast Drottin og forðast illt,
8það er heilnæmt líkama þínum
og hressing beinum þínum.
9Tignaðu Drottin með eigum þínum
og með frumgróða allrar uppskeru þinnar,
10þá verða hlöður þínar fullar
og vínberjalögurinn mun flóa úr vínþróm þínum.
11Sonur minn, hafnaðu ekki leiðsögn Drottins
og láttu þér ekki gremjast umvöndun hans.
12Drottinn agar þann sem hann elskar
og lætur þann son finna til sem hann hefur mætur á.
13Sæll er sá maður sem öðlast speki,
sá sem hlýtur hyggindi.
14Því að betra er að afla sér hennar en silfurs
og arðurinn af henni er betri en gull.
15Hún er dýrmætari en perlur,
allir dýrgripir þínir jafnast ekki á við hana.
16Langir lífdagar eru í hægri hendi hennar,
auður og sæmd í vinstri hendi hennar.
17Vegir hennar eru yndislegir vegir
og allar götur hennar liggja til velfarnaðar.
18Hún er tré lífsins þeim sem höndla hana
og sæll er hver sá er heldur fast í hana.
19Drottinn grundvallaði jörðina með visku
og kom himninum fyrir af speki.
20Fyrir þekkingu hans mynduðust hafdjúpin
og döggin drýpur úr skýjunum.
21Sonur minn, varðveittu visku og gætni,
láttu þær ekki víkja frá augum þínum,
22 þá verða þær sálu þinni til lífs
og hálsi þínum til prýði.
23 Þá muntu ganga veg þinn óhultur
og ekki hrasa.
24 Þegar þú leggst til hvíldar þarftu ekki að hræðast
og sofnir þú verður svefninn vær.
25 Þú þarft hvorki að kvíða felmtrinu
né eyðingu hinna ranglátu þegar hún dynur yfir
26 því að Drottinn verður athvarf þitt
og varðveitir fót þinn svo að hann verði ekki fanginn.
27 Synjaðu ekki góðs þeim sem þarfnast
ef það er á þínu valdi að veita það.
28 Segðu ekki við náunga þinn: „Farðu og komdu aftur.
Á morgun skal ég gefa þér,“ ef þú átt það til.
29 Bruggaðu ekki vélræði gegn náunga þínum
meðan hann dvelst öruggur hjá þér.
30 Deildu ekki við neinn að ástæðulausu
hafi hann ekki gert neitt á hlut þinn.
31 Öfundaðu ekki ofbeldismanninn
og sækstu ekki eftir neinum verkum hans.
32 Því að andstyggð er sá Drottni sem afvega fer
en ráðvandir menn eru alúðarvinir hans.
33 Bölvun Drottins er yfir húsi hins rangláta
en bústað réttlátra blessar hann.
34 Háðska menn hæðir hann
en hógværum veitir hann náð.
35 Vitrir menn hljóta heiður
en heimskingjar bera smán úr býtum.