1Mildilegt svar stöðvar bræði
en fúkyrði vekja reiði.
2Af tungu hinna vitru drýpur þekking,
af munni heimskingjanna streymir flónskan.
3Augu Drottins eru alls staðar
og vaka yfir vondum og góðum.
4Hógværð tungunnar er lífstré
en fals hennar veldur hugarkvöl.
5Afglapinn smáir leiðsögn föður síns
en sá sem tekur umvöndun verður hygginn.
6Í húsi hins réttláta er mikill auður
en í gróða hins rangláta er óreiða.
7Varir hinna vitru dreifa þekkingu
en hjarta heimskingjanna fer villt vegar.
8Fórn ranglátra er Drottni andstyggð
en bæn réttsýnna er honum þóknanleg.
9Vegur hins rangláta er Drottni andstyggilegur
en þann sem ástundar réttlæti elskar hann.
10Vægðarlaus hirting bíður þess sem hverfur af réttri leið,
sá sem hatar umvöndun hlýtur að deyja.
11Dánarheimur og undirdjúpin eru Drottni auðsæ,
hve miklu fremur hjörtu mannanna.
12Spottaranum hugnast ekki fortölur,
til viturra manna leitar hann ekki.
13Glatt hjarta gerir andlitið hýrlegt
en sé hryggð í hjarta er hugurinn dapur.
14Hjarta hins vitra leitar að þekkingu
en heimskinginn gæðir sér á fíflsku.
15Fátæklingurinn lítur aldrei glaðan dag
en sá sem vel liggur á er sífellt í veislu.
16Betra er að eiga lítið og óttast Drottin
en mikinn fjársjóð með áhyggjum.
17Betri er einn skammtur kálmetis með kærleika
en alinaut með hatri.
18Bráðlyndur maður vekur deilur
en sá sem seinn er til reiði stillir þrætur.
19Vegur letingjans er eins og þyrnigerði
en gata trúmennskunnar sem rudd braut.
20Vitur sonur gleður föður sinn
en heimskinginn fyrirlítur móður sína.
21Heimskingjanum er fíflskan gleði
en skynsamur maður gengur beinar brautir.
22 Áform verða að engu þar sem engin er ráðagerðin
en ef margir leggja á ráðin rætast þau.
23 Sá fagnar sem svara kann
og fagurt er orð í tíma talað.
24 Leið lífsins liggur upp á við fyrir hinn hyggna
til þess að hann lendi ekki niðri í helju.
25 Drottinn rífur niður hús hrokagikksins
en setur föst landamerki ekkjunnar.
26 Ill áform eru Drottni andstyggð
en hrein eru vingjarnleg orð.
27 Sá spillir heimilishögum sínum sem girnist rangfenginn gróða
en sá lifir lengi sem hatar mútugjafir.
28 Hjarta hins réttláta íhugar hverju svara skuli
en munnur ranglátra eys úr sér illsku.
29 Drottinn er fjarlægur ranglátum
en bæn réttlátra heyrir hann.
30 Vingjarnlegt augnaráð gleður hjartað,
góð frétt eykur holdi á bein.
31 Sá sem hlýðir á holla umvöndun
mun búa meðal hinna vitru.
32 Sá sem hafnar leiðsögn lítilsvirðir sjálfan sig
en sá sem hlýðir á umvöndun eykur skynsemi sína.
33 Að óttast Drottin er leiðsögn til visku,
hógværð er undanfari sæmdar.