Vondir vínyrkjar

1 Þá tók Jesús að segja þeim dæmisögu: „Maður plantaði víngarð. Hann hlóð garð um hann, gróf fyrir vínþröng og reisti turn, seldi hann síðan vínyrkjum á leigu og fór úr landi. 2 Á settum tíma sendi hann þjón til vínyrkjanna að fá hjá þeim hlut af ávexti víngarðsins. 3 En þeir tóku hann og börðu og sendu burt tómhentan. 4 Aftur sendi hann til þeirra annan þjón. Hann lömdu þeir í höfuðið og svívirtu. 5 Enn sendi hann annan og hann drápu þeir og marga fleiri ýmist börðu þeir eða drápu. 6 Einn átti hann eftir enn, elskaðan son. Hann sendi hann síðastan til þeirra og sagði: Þeir munu virða son minn. 7 En vínyrkjar þessir sögðu sín á milli: Þetta er erfinginn. Förum og drepum hann, þá fáum við arfinn. 8 Og þeir tóku hann og drápu og köstuðu honum út fyrir víngarðinn.
9 Hvað mun nú eigandi víngarðsins gera? Hann mun koma, tortíma vínyrkjunum og fá öðrum víngarðinn. 10 Hafið þið eigi lesið þessa ritningu:
Steinninn sem smiðirnir höfnuðu
er orðinn að hyrningarsteini.
11Þetta er verk Drottins
og undursamlegt í augum vorum.“

12 Æðstu prestarnir, fræðimennirnir og öldungarnir vildu taka hann höndum en óttuðust fólkið. Þeir skildu að hann átti við þá með dæmisögunni. Og þeir yfirgáfu hann og gengu burt.

Keisarinn og Guð

13 Þá sendu þeir til Jesú nokkra farísea og Heródesarsinna og skyldu þeir veiða hann í orðum. 14 Þeir koma og segja við hann: „Meistari, við vitum að þú ert sannorður og hirðir ekki um álit neins enda gerir þú þér engan mannamun heldur kennir Guðs veg í sannleika. Leyfist að gjalda keisaranum skatt eða ekki? Eigum við að gjalda eða ekki gjalda?“
15 En Jesús sá hræsni þeirra og sagði við þá: „Hvers vegna leggið þið snörur fyrir mig? Fáið mér denar, látið mig sjá.“
16 Þeir fengu honum pening. Hann spyr: „Hvers mynd og nafn er á peningnum?“
Þeir svöruðu: „Keisarans.“
17 En Jesús sagði við þá: „Gjaldið keisaranum það sem keisarans er og Guði það sem Guðs er.“
Og þá furðaði stórlega á honum.

Guð lifenda

18 Saddúkear, sem neita því að upprisa sé til, komu til hans og sögðu við hann: 19 „Meistari, Móse segir okkur í ritningunum að deyi maður barnlaus, en láti eftir sig konu, skuli bróðir hans ganga að eiga ekkjuna og vekja honum niðja. 20 Nú voru sjö bræður. Sá fyrsti tók sér konu en dó barnlaus. 21 Annar bróðirinn gekk að eiga hana og dó barnlaus. Eins hinn þriðji 22 og allir sjö urðu barnlausir. Síðast allra dó konan. 23 Kona hvers þeirra verður hún í upprisunni þegar menn rísa upp? Allir sjö höfðu átt hana.“
24 Jesús svaraði þeim: „Er það ekki þetta sem veldur því að þið villist: Þið þekkið ekki ritningarnar né mátt Guðs? 25 Þegar menn rísa upp frá dauðum kvænast þeir hvorki né giftast. Þeir eru sem englar á himnum. 26 En hafið þið ekki lesið í sögunni um þyrnirunninn í bók Móse að dauðir rísa upp? Guð segir við Móse: Ég er Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs. 27 Ekki er hann Guð dauðra heldur lifenda. Þið villist stórlega.“

Æðsta boðorð

28 Þá kom til Jesú fræðimaður einn. Hann hafði hlýtt á orðaskipti þeirra og fann að Jesús hafði svarað þeim vel. Hann spurði: „Hvert er æðst allra boðorða?“
29 Jesús svaraði: „Æðst er þetta: Heyr, Ísrael! Drottinn, Guð vor, hann einn er Drottinn. 30 Og þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum huga þínum og öllum mætti þínum. 31 Annað er þetta: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Ekkert boðorð annað er þessum meira.“
32 Fræðimaðurinn sagði þá við Jesú: „Rétt er það, meistari, satt sagðir þú. Einn er Guð og enginn er Guð annar en hann. 33 Og að elska hann af öllu hjarta, öllum skilningi og öllum mætti og elska náungann eins og sjálfan sig, það er öllum brennifórnum og sláturfórnum meira.“
34 Jesús sá að hann svaraði viturlega og sagði við hann: „Þú ert ekki fjarri Guðs ríki.“
Og enginn þorði framar að spyrja hann.

Kristur er Drottinn

35 Þegar Jesús var að kenna í helgidóminum sagði hann: „Hvernig geta fræðimennirnir sagt að Kristur sé sonur Davíðs? 36 Sjálfur mælti Davíð af heilögum anda:
Drottinn sagði við minn drottin:
Set þig mér til hægri handar
þangað til ég geri óvini þína að fótskör þinni.

37 Davíð kallar hann sjálfur drottin. Hvernig getur hann þá verið sonur hans?“
Og hinn mikli mannfjöldi hlýddi fúslega á hann.

Viðvörun

38 Þegar Jesús var að kenna þeim sagði hann: „Varist fræðimennina sem fýsir að ganga í síðskikkjum og láta heilsa sér á torgum, 39 vilja skipa æðsta bekk í samkundum og hefðarsæti í veislum. 40 Þeir mergsjúga heimili ekkna en flytja langar bænir að yfirskini. Þeir munu fá því þyngri dóm.“

Eyrir ekkjunnar

41 Jesús settist gegnt fjárhirslunni og horfði á fólkið leggja peninga í hana. Margir auðmenn lögðu þar mikið. 42 Þá kom ekkja ein fátæk og lét þar tvo smápeninga, eins eyris virði. 43 Og Jesús kallaði til sín lærisveina sína og sagði við þá: „Sannlega segi ég ykkur, þessi fátæka ekkja gaf meira en allir hinir er lögðu í fjárhirsluna. 44 Allir gáfu þeir af allsnægtum sínum en hún gaf af skorti sínum allt sem hún átti, alla björg sína.“