Stríð við Midían

1 Drottinn talaði til Móse og sagði:
2 „Láttu Ísraelsmenn hefna sín á Midíanítum. Eftir það skaltu safnast til feðra þinna.“
3 Þá ávarpaði Móse þjóðina og sagði: „Látið nokkra af mönnum ykkar búast til herþjónustu. Þeir skulu ráðast á Midían til þess að koma fram hefnd Drottins á Midían. 4 Þið skuluð senda þúsund manns úr hverjum ættbálki alls Ísraels til herþjónustu.“
5 Voru þá þúsund menn valdir til herþjónustu af hverjum ættbálki Ísraels, tólf þúsund vígbúnir menn. 6 Móse sendi þessa þúsund menn frá hverjum ættbálki í herinn ásamt Pínehas Eleasarssyni presti sem hafði með sér hin heilögu áhöld og lúðra til að gefa merki. 7 Þeir réðust gegn Midían eins og Drottinn hafði boðið Móse og drápu alla karlmenn. 8 Þeir drápu einnig konunga Midíans auk annarra sem höfðu verið felldir, þá Eví, Rekem, Súr, Húr og Reba, fimm konunga Midíans. Þeir drápu einnig Bíleam Beórsson með sverði. 9 Ísraelsmenn tóku konur Midíaníta og börn þeirra að herfangi og auk þess allt búfé þeirra, nautgripi og öll auðæfi. 10 Þeir brenndu allar borgir á landsvæði þeirra og einnig tjaldbúðir þeirra til ösku. 11 Þeir tóku með sér allt herfangið og ránsfenginn, bæði menn og skepnur. 12 Þeir fóru með fangana, ránsfenginn og herfangið til Móse og Eleasars prests og alls safnaðar Ísraelsmanna inn í herbúðirnar á gresjum Móabs við Jórdan gegnt Jeríkó.
13 Móse, Eleasar prestur og allir höfðingjar safnaðarins gengu út úr herbúðunum til móts við þá. 14 En Móse reiddist hershöfðingjunum, höfuðsmönnum þúsundmannaliða og hundraðshöfðingjunum sem komu heim úr stríðinu 15 og sagði við þá: „Hvers vegna hafið þið gefið öllum konunum líf? 16 Það voru einmitt þær sem fylgdu ráði Bíleams og urðu til þess að Ísrael brást Drottni í málinu við Peór svo að plága kom yfir söfnuð Drottins. 17 Drepið nú öll sveinbörn, drepið einnig allar konur sem hafa haft mök við karlmann og sofið hjá honum. 18 En öllum stúlkubörnum, sem ekki hafa enn haft mök við karlmann, skuluð þið gefa líf og halda þeim fyrir ykkur sjálfa. 19 En sjálfir skuluð þið tjalda í sjö daga utan við herbúðirnar. Sérhver sem hefur drepið einhvern og sérhver sem hefur snert veginn mann verður að hreinsa sig af synd á þriðja og sjöunda degi, bæði þið sjálfir og fangar ykkar. 20 Þið verðið einnig að hreinsa synd af öllum klæðisplöggum, öllu sem gert er úr leðri, öllu sem gert er úr geitahári og öllum áhöldum úr tré.“
21 Eleasar prestur sagði við hermennina sem höfðu farið í stríðið: „Þetta er lagaákvæði sem Drottinn hefur boðið Móse: 22 Gull, silfur, eir, járn, tin og blý, 23 í stuttu máli allt sem þolir að fara gegnum eld, skuluð þið senda gegnum eld svo að það verði hreint. En það þarf einnig að hreinsa það af synd með hreinsunarvatni. Allt, sem ekki þolir að fara gegnum eld, skuluð þið senda gegnum vatn. 24 Þið skuluð þvo klæði ykkar sjöunda daginn svo að þið verðið hreinir. Því næst megið þið ganga aftur inn í herbúðirnar.“
25 Drottinn talaði til Móse og sagði:
26 „Kastaðu tölu á herfangið, bæði menn og skepnur, þú sjálfur, Eleasar prestur og ættarhöfðingjar safnaðarins. 27 Síðan skaltu skipta því sem tekið var til helminga á milli þeirra sem tóku þátt í stríðinu, þeirra sem fóru á vígvöllinn og alls safnaðarins. 28 Þú skalt taka gjald til Drottins af hermönnunum sem fóru í stríðið, eitt af hverjum fimm hundruð sem tekin voru herfangi, af mönnum, nautum, ösnum, sauðfé og geitfé. 29 Þú skalt taka þetta af hlut hermannanna og fá það Eleasar presti í afgjald til Drottins. 30 Af helmingi Ísraelsmanna skaltu taka af handahófi eitt af hverjum fimmtíu, af mönnum, nautum, ösnum, sauðfé og geitfé, það er af öllu búfé, og fá það Levítunum sem gæta bústaðar Drottins.“
31 Móse og Eleasar prestur gerðu það sem Drottinn bauð Móse. 32 Herfangið, það sem eftir var af því sem hermennirnir höfðu tekið, taldist vera 675.000 sauðfjár og geitfjár, 33 72.000 nautgripir, 34 61.000 asnar 35 og 32.000 konur sem ekki höfðu haft mök við karlmann. 36 Helmingur hlutar þeirra sem höfðu farið í stríðið taldist vera 337.500 sauðfjár og geitfjár, 37 af þeim komu 675 í hlut Drottins. 38 Nautin voru 36.000 og 72 voru hlutur Drottins. 39 Asnar voru 30.500 og var 61 hlutur Drottins. 40 Konurnar voru 16.000 og 32 voru hlutur Drottins.
41 Móse fékk Eleasar presti hlut Drottins eins og Drottinn hafði boðið Móse.
42 Sá hlutur Ísraelsmanna, sem Móse hafði tekið af öllu herfangi hermannanna, 43 taldist vera 337.500 sauðfjár og geitfjár, 44 36.000 naut, 45 30.500 asnar 46 og 16.000 konur. 47 Af þessum helmingi, sem ætlaður var Ísraelsmönnum, tók Móse einn af hverjum fimmtíu, bæði af mönnum og búfénaði, og fékk Levítunum sem gættu bústaðar Drottins eins og Drottinn hafði boðið honum.
48 Leiðtogarnir, sem settir voru yfir þúsundir Ísraels, höfuðsmenn þúsundmannaliða og hundraðshöfðingjar, komu til Móse 49 og sögðu: „Þjónar þínir hafa talið hermennina sem voru undir stjórn okkar og einskis þeirra var saknað. 50 Við færum því fram gjöf til Drottins, sérhver það sem hann hefur fundið: gripi úr gulli, armbönd, armhringi, fingurgull, eyrnahringi og hálsmen til að friðþægja fyrir líf okkar.“
51 Móse og Eleasar prestur tóku við gullinu af þeim og var það allt listasmíð. 52 Allt gullið, sem þeir færðu Drottni í fórnargjöf, var 16.750 siklar. 53 Hermennirnir höfðu tekið herfang handa sjálfum sér. 54 Móse og Eleasar prestur tóku við gullinu og fóru með það í samfundatjaldið til þess að Ísraelsmanna yrði minnst frammi fyrir augliti Drottins.