Lasarus deyr

1 Maður sá var sjúkur er Lasarus hét, frá Betaníu, þorpi Maríu og Mörtu, systur hennar. 2 En María var sú er smurði Drottin smyrslum og þerraði fætur hans með hári sínu. Bróðir hennar, Lasarus, var sjúkur. 3 Nú gerðu systurnar Jesú orðsending: „Drottinn, sá sem þú elskar er sjúkur.“
4 Þegar hann heyrði það mælti hann: „Þessi sótt er ekki banvæn heldur Guði til dýrðar til þess að Guðs sonur vegsamist hennar vegna.“
5 Jesús elskaði þau Mörtu og systur hennar og Lasarus. 6 Þegar hann frétti að hann væri veikur var hann samt um kyrrt á sama stað í tvo daga. 7 Að þeim liðnum sagði hann við lærisveina sína: „Förum aftur til Júdeu.“
8 Lærisveinarnir sögðu við hann: „Rabbí, nýlega voru menn[ þar að því komnir að grýta þig og ætlar þú þangað aftur?“
9 Jesús svaraði: „Eru ekki stundir dagsins tólf? Sá sem gengur um að degi hrasar ekki því hann sér ljós þessa heims. 10 En sá sem gengur um að nóttu hrasar því hann hefur ekki ljósið í sér.“
11 Þetta mælti hann og sagði síðan við þá: „Lasarus, vinur okkar, er sofnaður. En nú fer ég að vekja hann.“
12 Þá sögðu lærisveinar hans: „Drottinn, ef hann er sofnaður batnar honum.“ 13 En Jesús talaði um dauða hans. Þeir héldu hins vegar að hann ætti við venjulegan svefn. 14 Þá sagði Jesús þeim berum orðum: „Lasarus er dáinn 15 og ykkar vegna fagna ég því að ég var þar ekki, til þess að þið skuluð trúa. En förum nú til hans.“
16 Tómas, sem nefndist tvíburi, sagði þá við hina lærisveinana: „Við skulum fara líka til að deyja með honum.“

Ég er upprisan og lífið

17 Þegar Jesús kom varð hann þess vís að Lasarus hafði verið fjóra daga í gröfinni. 18 Betanía var nálægt Jerúsalem, hér um bil fimmtán skeiðrúm[ þaðan.
19 Margir Gyðingar voru komnir til Mörtu og Maríu til að hugga þær eftir bróðurmissinn.
20 Þegar Marta frétti að Jesús væri að koma fór hún á móti honum en María sat heima. 21 Marta sagði við Jesú: „Drottinn, ef þú hefðir verið hér væri bróðir minn ekki dáinn. 22 En einnig nú veit ég að Guð mun gefa þér hvað sem þú biður hann um.“
23 Jesús segir við hana: „Bróðir þinn mun upp rísa.“ 24 Marta segir: „Ég veit að hann rís upp í upprisunni á efsta degi.“
25 Jesús mælti: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. 26 Og hver sem lifir og trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja. Trúir þú þessu?“
27 Hún segir við hann: „Já, Drottinn. Ég trúi að þú sért Kristur, Guðs sonur, sem koma skal í heiminn.“
28 Að svo mæltu fór hún, kallaði á Maríu systur sína og sagði í hljóði: „Meistarinn er hér og vill finna þig.“ 29 Þegar María heyrði þetta reis hún skjótt á fætur og fór til hans. 30 En Jesús var ekki enn kominn til þorpsins heldur var hann enn á þeim stað þar sem Marta hafði mætt honum. 31 Fólkið,[ sem var heima hjá Maríu að hugga hana, sá að hún stóð upp í skyndi og gekk út og fór það á eftir henni. Það hugði að hún hefði farið til grafarinnar að gráta þar.
32 María kom þangað sem Jesús var og er hún sá hann féll hún honum til fóta og sagði við hann: „Drottinn, ef þú hefðir verið hér væri bróðir minn ekki dáinn.“
33 Þegar Jesús sá hana gráta og þau[ gráta, sem með henni komu, komst hann við, varð djúpt hrærður 34 og sagði: „Hvar hafið þið lagt hann?“
Þau sögðu: „Drottinn, kom þú og sjá.“ 35 Þá grét Jesús.
36 Þau[ sögðu: „Sjá, hversu hann hefur elskað hann!“
37 En nokkrir sögðu: „Gat ekki sá maður sem opnaði augu hins blinda einnig varnað því að þessi maður dæi?“
38 Jesús varð aftur mjög djúpt hrærður og fór til grafarinnar. Hún var hellir og steinn fyrir. 39 Jesús segir: „Takið steininn frá!“
Marta, systir hins dána, segir við hann:
„Drottinn, það er komin nálykt af honum, það er komið á fjórða dag.“
40 Jesús segir við hana: „Sagði ég þér ekki: Ef þú trúir munt þú sjá dýrð Guðs?“ 41 Nú var steinninn tekinn frá. En Jesús hóf upp augu sín og mælti: „Faðir, ég þakka þér að þú hefur bænheyrt mig. 42 Ég vissi að sönnu að þú heyrir mig ávallt en ég sagði þetta vegna mannfjöldans sem stendur hér umhverfis til þess að fólkið trúi að þú hafir sent mig.“ 43 Að svo mæltu hrópaði hann hárri röddu: „Lasarus, kom út!“ 44 Hinn dáni kom út vafinn líkblæjum á fótum og höndum og með sveitadúk bundinn um andlitið. Jesús segir við fólkið: „Leysið hann og látið hann fara.“

Hann skyldi deyja

45 Margir Gyðingar sem komnir voru til Maríu og sáu það sem Jesús gerði tóku nú að trúa á hann. 46 En nokkrir þeirra fóru til farísea og sögðu þeim hvað hann hafði gert. 47 Æðstu prestarnir og farísearnir kölluðu þá saman ráðið og sögðu: „Hvað eigum við að gera? Þessi maður gerir mörg tákn. 48 Ef við leyfum honum að halda svo áfram munu allir trúa á hann og þá koma Rómverjar og taka bæði helgidóm okkar og þjóð.“
49 En einn þeirra, Kaífas, sem það ár var æðsti prestur, sagði við þá: „Þið vitið ekkert 50 og hugsið ekkert um það að ykkur er betra að einn maður deyi fyrir lýðinn en að öll þjóðin tortímist.“ 51 Hann tók þetta ekki upp hjá sjálfum sér en þar sem hann var æðsti prestur það ár gat hann mælt af spámannlegri andagift að Jesús mundi deyja fyrir þjóðina 52 og ekki fyrir þjóðina eina heldur og til að safna saman í eitt dreifðum börnum Guðs. 53 Upp frá þeim degi voru þeir ráðnir í að taka hann af lífi.
54 Jesús gekk því ekki lengur um á almannafæri í Júdeu[ heldur fór hann þaðan til staðar í grennd við eyðimörkina, í þorp sem heitir Efraím, og þar dvaldist hann með lærisveinum sínum.
55 Nú nálguðust páskar Gyðinga og menn komu hvaðanæva upp til Jerúsalem fyrir páskana til að hreinsa sig. 56 Menn leituðu að Jesú og sögðu sín á milli í helgidóminum: „Hvað haldið þið? Skyldi hann ekki koma til hátíðarinnar?“ 57 En æðstu prestar og farísear höfðu gefið út skipun um það að ef nokkur vissi hvar hann væri skyldi hann segja til svo að þeir gætu tekið hann.