Um sambúð

1 En svo að ég minnist á það sem þið hafið ritað, þá er það gott fyrir mann að vera ekki við konu kenndur. 2 En til þess að forðast saurlífi hafi hver karlmaður sína eiginkonu og hver kona sinn eiginmann. 3 Karlmaðurinn gæti skyldu sinnar gagnvart konunni og sömuleiðis konan gagnvart karlmanninum. 4 Ekki hefur konan vald yfir eigin líkama heldur karlmaðurinn. Sömuleiðis hefur og karlmaðurinn ekki heldur vald yfir eigin líkama heldur konan. 5 Haldið ykkur eigi hvort frá öðru nema þá eftir samkomulagi um stundarsakir til þess að þið getið haft næði til bænahalds og takið svo saman aftur til þess að Satan freisti ykkar ekki vegna ístöðuleysis ykkar. 6 Þetta er ekki neitt valdboð heldur ábending. 7 En þess óska ég að allir menn væru eins og ég er sjálfur en hver hefur sína náðargjöf frá Guði, einn þessa og annar hina.
8 Hinum ógiftu og ekkjunum segi ég að þeim er best að halda áfram að vera ein eins og ég. 9 En hafi þau ekki taumhald á sjálfum sér, þá gangi þau í hjónaband því að betra er að ganga í hjónaband en að brenna af girnd.
10 Þeim sem gengið hafa í hjónaband býð ég, þó ekki ég heldur Drottinn, að konan skuli ekki skilja við mann sinn, 11 en hafi hún skilið við hann, þá sé hún áfram ógift eða sættist við manninn. Maðurinn á ekki heldur að skilja við konuna.
12 En við hina segi ég, ekki Drottinn: Ef bróðir nokkur á vantrúaða konu og hún lætur sér það vel líka að búa saman við hann, þá skilji hann ekki við hana. 13 Og kona, sem á vantrúaðan mann og hann lætur sér vel líka að búa saman við hana, skilji ekki við hann. 14 Því að vantrúaði maðurinn er helgaður af konunni og vantrúaða konan er helguð af bróðurnum. Annars væru börn ykkar óhrein en nú eru þau hrein.[ 15 En ef hinn vantrúaði vill skilja, þá fái hann skilnað. Hvorki bróðir né systir eru þrælbundin í slíkum efnum. Guð hefur kallað ykkur að lifa í friði. 16 Því að hvað veist þú, kona, hvort þú munir geta frelsað mann þinn? Eða hvað veist þú, maður, hvort þú munir geta frelsað konu þína?

Verði keyptir

17 Þó skal hver og einn lifa því lífi sem Drottinn hefur úthlutað honum og vera áfram í þeirri stöðu sem hann var í þegar Guð kallaði hann. Þannig mæli ég fyrir í öllum söfnuðunum. 18 Sá sem var umskorinn, þegar hann var kallaður, breyti því ekki. Sá sem var óumskorinn láti ekki umskera sig. 19 Það skiptir ekki máli hvort maður er umskorinn eða ekki, heldur að hann haldi boðorð Guðs. 20 Hver og einn sé kyrr í þeirri stöðu sem hann var kallaður í. 21 Varst þú þræll er þú varst kallaður? Set það ekki fyrir þig en ef þú getur orðið frjáls, þá kjós það heldur.[ 22 Því að sá sem var þræll er Drottinn kallaði hann er frelsingi Drottins. Á sama hátt er sá sem var frjáls er Drottinn kallaði hann þræll Krists. 23 Þið eruð verði keyptir. Verðið ekki þrælar manna. 24 Bræður, sérhver verði frammi fyrir Guði kyrr í þeirri stétt sem hann var í þegar Guð kallaði hann.
25 Um einlífi hef ég enga skipun frá Drottni. En álit mitt læt ég í ljós eins og sá er hlotið hefur þá náð af Drottni að vera trúr.
26 Mín skoðun er að vegna yfirstandandi neyðar sé það gott fyrir mann að vera þannig. 27 Ertu við konu bundinn? Leitast þá ekki við að verða laus. Ertu laus orðinn við konu? Leita þá ekki kvonfangs. 28 En þótt þú kvongist syndgar þú ekki og ef ógifta konan giftist syndgar hún ekki. En erfitt verður slíkum lífið hér á jörðu. Við því vildi ég hlífa ykkur.
29 En það segi ég, systkin,[ tíminn er orðinn naumur. Hér eftir skulu jafnvel þau sem gift eru vera eins og þau væru það ekki, 30 þau sem gráta eins og þau grétu ekki, þau sem fagna eins og þau fögnuðu ekki, þau sem kaupa eins og þau héldu ekki því sem þau keyptu, 31 og þau sem njóta heimsins gæða eins og þau færðu sér þau ekki í nyt. Því að heimurinn í núverandi mynd líður undir lok, 32 en ég vil að þið séuð áhyggjulaus. Hinn ókvænti ber fyrir brjósti hvernig hann megi þóknast Drottni. 33 En hinn kvænti ber fyrir brjósti veraldleg efni svo að hann geti þóknast konunni. 34 Hann er tvískiptur. Ógifta konan og mærin bera fyrir brjósti að vera heilagar á sál og líkama svo að þær geti þóknast Drottni. En gifta konan ber fyrir brjósti veraldlega hluti svo að hún geti þóknast manni sínum. 35 Þetta segi ég sjálfum ykkur til gagns, ekki til þess að valda ykkur óþægindum heldur til þess að þið getið þjónað Drottni af alúð og einlægni.
36 Ef einhver telur sig ekki geta vansalaust búið með heitmey sinni, enda á manndómsskeiði,[ þá geri hann sem hann vill ef ekki verður hjá því komist. Hann syndgar ekki. Giftist þau. 37 Sá þar á móti sem er staðfastur í hjarta sínu og óþvingaður en hefur fullt vald á vilja sínum og hefur afráðið í hjarta sínu að hún verði áfram mey gerir vel. 38 Þannig gera þá báðir vel, sá sem kvænist heitmey sinni og hinn sem kvænist henni ekki, hann gerir enn betur.
39 Konan er bundin meðan maður hennar er á lífi. En ef maðurinn deyr er henni frjálst að giftast hverjum sem hún vill, aðeins að hann sé trúaður. 40 Þó er hún sælli ef hún heldur áfram að vera eins og hún er, það er mín skoðun. En ég þykist og hafa anda Guðs.