1Betra en þetta er barnleysi í dygð.
Orðstír dygðar deyr aldrei.
Bæði Guð og menn virða hana.
2 Meðan hún er nálæg líkja menn eftir henni
og sakna hennar þegar hún er fjarri.
Í eilífðinni ber hún sigursveig
eftir unninn kappleik um flekklaus verðlaun.
3 Guðlausum er barnamergð til einskis gagns.
Gallaðir kvistir skjóta ekki djúpum rótum
og ná ekki tryggri festu.
4 Þótt þeir vaxi um stund og myndi greinar
standa þeir óstöðugir og skekjast af vindi
og sterkur stormur rífur þá upp með rótum.
5 Greinarnar brotna áður en þær ná þroska,
ávöxturinn er ónýtur og óætur og til einskis hæfur.
6 Börn sem getin eru í óheimilu sambandi
bera vitni við rannsóknina um rangindi foreldra sinna.

Réttlæti tekur langlífi fram

7En hinn réttláti mun hvíla í ró þótt hann deyi fyrir aldur fram.
8 Æruverð elli felst ekki í lengd lífdaga,
hún er ekki talin í árum.
9 Það er viskan sem er mönnunum hærur
og flekklaust líferni hin rétta elli.
10 Hinn réttláti var þekkur Guði og elskaður af honum.
Guð tók hann til sín þar eð hann lifði meðal syndugra.
11 Hann var hrifinn brott til þess að illskan spillti ekki skilningi hans
og svikin tældu ekki sál hans.
12 Því að vélabrögð vonskunnar afskræma hið fagra
og víma girndanna spillir saklausu sinni.
13 Við leiðarlok hafði hann lifað langa ævi á skömmum tíma.
14 Sál hans var Drottni þekk,
því fékk hann að losna fljótt frá illskunni.
Fólkið, sem sá það, skildi ekki
og leiddi ekki að því hugann.
15 Guð veitir sínum útvöldu náð og miskunn
og vitjar sinna heilögu.
16 Hinn réttláti, sem dáinn er, mun dæma þá óguðlegu sem á lífi eru.
Sá sem deyr fyrir aldur fram mun dæma ranglátan öldung sem hærur ber.
17 Þeir munu sjá endalok hins hyggna
án þess að skilja hvað Drottinn hafði í hyggju með hann
eða hvers vegna hann gerði hann óhultan.
18 Þeir sjá það og hafa að engu
en Drottinn mun hlæja að þeim.
19 Síðar munu þeir verða vanvirt hræ
til háðungar meðal hinna dauðu um aldur.
Drottinn mun ljósta þá til jarðar og þagga niður í þeim.
Hann mun svipta þá fótfestunni
og þeim mun gereytt.
Þeir munu líða kvalir
og minning þeirra mun líða undir lok.
20 Skjálfandi munu þeir koma þangað sem syndir þeirra eru taldar saman
og lögmálsbrot þeirra munu rísa í gegn þeim og sakfella þá.