Upphaf

1 Upphaf fagnaðarerindisins um Jesú Krist, Guðs son.[ 2 Svo er ritað hjá Jesaja spámanni:
Ég sendi sendiboða minn á undan þér,
hann á að greiða þér veg.
3Rödd hrópanda í eyðimörk:
Greiðið veg Drottins,
gerið beinar brautir hans.

4 Þannig kom Jóhannes skírari fram í óbyggðinni og boðaði mönnum að taka sinnaskiptum og láta skírast til fyrirgefningar synda 5 og menn streymdu til hans frá allri Júdeubyggð og allir Jerúsalembúar og létu hann skíra sig í ánni Jórdan og játuðu syndir sínar.
6 En Jóhannes var í klæðum úr úlfaldahári, með leðurbelti um lendar sér og át engisprettur og villihunang. 7 Hann prédikaði svo: „Sá kemur eftir mig sem mér er máttugri og er ég ekki verður þess að krjúpa niður og leysa skóþveng hans. 8 Ég hef skírt ykkur með vatni en hann mun skíra ykkur með heilögum anda.“

Skírn og freisting

9 Svo bar við á þeim dögum að Jesús kom frá Nasaret í Galíleu og Jóhannes skírði hann í Jórdan. 10 Um leið og hann sté upp úr vatninu sá hann himnana ljúkast upp og andann stíga niður yfir sig eins og dúfu. 11 Og rödd kom af himnum: „Þú ert minn elskaði sonur, á þér hef ég velþóknun.“
12 Þá knúði andinn hann út í óbyggðina 13 og var hann í óbyggðinni fjörutíu daga og Satan freistaði hans. Hann hafðist við meðal villidýra og englar þjónuðu honum.

Guðs ríki í nánd

14 Þegar Jóhannes hafði verið tekinn höndum kom Jesús til Galíleu, prédikaði fagnaðarerindi Guðs 15 og sagði: „Tíminn er fullnaður og Guðs ríki í nánd. Takið sinnaskiptum og trúið fagnaðarerindinu.“

Fyrstu lærisveinar

16 Jesús var á gangi með fram Galíleuvatni og sá Símon og Andrés, bróður Símonar, vera að kasta netum í vatnið en þeir voru fiskimenn. 17 Jesús sagði við þá: „Komið og fylgið mér og mun ég láta ykkur menn veiða.“ 18 Og þegar í stað létu þeir eftir netin og fylgdu honum.
19 Jesús gekk skammt þaðan og sá Jakob Sebedeusson og Jóhannes, bróður hans, og voru þeir einnig á báti að búa net. 20 Jesús kallaði þá og þeir yfirgáfu Sebedeus föður sinn hjá daglaunamönnunum í bátnum og fylgdu honum.

Í Kapernaúm

21 Þeir komu til Kapernaúm. Og hvíldardaginn gekk Jesús í samkunduna og kenndi. 22 Menn urðu mjög snortnir af orðum hans því að hann kenndi þeim eins og sá er vald hefur og ekki eins og fræðimennirnir.
23 Þar var í samkundu þeirra maður haldinn óhreinum anda. Hann æpti: 24 „Hvað vilt þú okkur, Jesús frá Nasaret? Ert þú kominn að tortíma okkur? Ég veit hver þú ert, hinn heilagi Guðs.“
25 Jesús hastaði þá á hann og mælti: „Þegi þú og far út af honum.“
26 Þá teygði óhreini andinn manninn, rak upp hljóð mikið og fór út af honum. 27 Sló felmtri á alla og hver spurði annan: „Hvað er þetta? Hann kennir á nýjan hátt. Það er eins og hann búi yfir guðlegum mætti! Hann skipar jafnvel óhreinum öndum og þeir hlýða honum.“ 28 Og orðstír hans barst þegar um alla Galíleu.

Jesús læknar

29 Úr samkundunni fóru þeir rakleitt í hús Símonar og Andrésar og með þeim Jakob og Jóhannes. 30 Tengdamóðir Símonar lá með sótthita og sögðu þeir Jesú þegar frá henni. 31 Hann gekk þá að, tók í hönd henni og reisti hana á fætur. Sótthitinn fór úr henni og hún gekk þeim fyrir beina.
32 Þegar kvöld var komið og sólin sest færðu menn til hans alla þá er sjúkir voru og haldnir illum öndum 33 og allur bærinn var saman kominn við dyrnar. 34 Jesús læknaði marga er þjáðust af ýmsum sjúkdómum og rak út marga illa anda en illu öndunum bannaði hann að tala því að þeir vissu hver hann var.

Jesús prédikar í Galíleu

35 Og árla, löngu fyrir dögun, fór Jesús á fætur og gekk út, vék burt á óbyggðan stað og baðst þar fyrir. 36 Þeir Símon leituðu hann uppi 37 og þegar þeir fundu hann sögðu þeir við hann: „Allir eru að leita að þér.“
38 Jesús sagði við þá: „Við skulum fara annað, í þorpin hér í grennd, svo að ég geti einnig prédikað þar því að til þess er ég kominn.“
39 Og hann fór og prédikaði í samkundum þeirra í allri Galíleu og rak út illa anda.

Verð þú hreinn!

40 Maður nokkur líkþrár kom til Jesú, féll á kné og bað hann: „Ef þú vilt getur þú hreinsað mig.“[
41 Og Jesús kenndi í brjósti um manninn,[ rétti út höndina, snart hann og mælti: „Ég vil, verð þú hreinn!“ 42 Jafnskjótt hvarf af honum líkþráin og hann varð hreinn. 43 Og Jesús lét hann fara, lagði ríkt á við hann 44 og sagði: „Gæt þess að segja engum neitt en far þú, sýn þig prestinum og fórna fyrir hreinsun þína því sem Móse bauð þeim til vitnisburðar.“
45 En maðurinn gekk burt og ræddi margt um þetta og víðfrægði mjög svo að Jesús gat ekki framar komið opinberlega í neina borg heldur hafðist við úti á óbyggðum stöðum. En menn komu til hans hvaðanæva.