1 Þess vegna skulum við sleppa byrjendafræðslunni um Krist og snúa okkur að fræðslunni fyrir lengra komna. Við förum ekki að byrja aftur á undirstöðuatriðum eins og að trúa á Guð og hverfa frá breytni sem leiðir til dauða, 2 kenningunni um skírnir[ og handayfirlagningar, upprisu dauðra og eilífan dóm. 3 Og þetta munum við gera ef Guð lofar.
4 Ef menn hafa eitt sinn verið upplýstir og notið hinnar himnesku gjafar, fengið hlutdeild í heilögum anda, 5 reynt Guðs góða orð og fundið krafta komandi aldar 6 en hafa síðan fallið frá, er ógerlegt að láta þá snúa við og iðrast. Þeir eru að krossfesta son Guðs að nýju og smána hann fyrir allra augum.
7 Jörð sú er drukkið hefur í sig regnið, sem á hana fellur hvað eftir annað, og ber gróður til gagns fyrir þá sem yrkja hana, fær blessun frá Guði. 8 En beri hún þyrna og þistla er hún ónýt. Yfir henni vofir bölvun og hennar bíður að lokum að verða brennd.
9 En hvað ykkur snertir, þið elskuð, þá er ég sannfærður um að ykkur er betur farið og þið nær hjálpræðinu þó að ég mæli svo. 10 Guð er ekki ranglátur. Hann gleymir ekki verki ykkar og kærleikanum sem þið auðsýnduð honum er þið þjónuðuð hinum heilögu sem þið þjónið enn. 11 Ég óska að sérhvert ykkar sýni sömu ástundan allt til enda þar til von ykkar rætist. 12 Gerist ekki sljó. Breytið heldur eftir þeim sem trúa og eru stöðuglynd og erfa það sem Guð hefur heitið.

Jesús opnaði okkur leið

13 Þegar Guð gaf Abraham fyrirheitið þá „sór hann við sjálfan sig“ þar sem hann hafði við engan æðri að sverja og sagði: 14 „Sannlega mun ég ríkulega blessa þig og stórum margfalda kyn þitt.“ 15 Og Abraham öðlaðist það sem Guð hafði heitið honum er hann hafði beðið þess með stöðuglyndi.
16 Menn sverja eið við þann sem æðri er, eiðurinn er þeim staðfesting og bindur enda á öll andmæli. 17 Með því nú að Guð vildi sýna þeim sem fyrirheitið var ætlað enn skýrar hve ráð sitt væri óraskanlegt, þá ábyrgðist hann heit sitt með eiði. 18 Það er óhugsandi að Guð fari með lygi og því er þetta tvennt sem er óraskanlegt mikil uppörvun fyrir okkur sem höfum leitað athvarfs í þeirri sælu von sem við eigum. 19 Þessi von er eins og akkeri fyrir sálina, traust og öruggt, og nær alla leið inn fyrir fortjaldið 20 þangað sem Jesús gekk inn og opnaði okkur leið þegar hann varð æðsti prestur að eilífu að hætti Melkísedeks.