Skiljið þið ekki enn?

1 Um þessar mundir bar enn svo við að mikill mannfjöldi var saman kominn og hafði ekkert til matar. Jesús kallar þá til sín lærisveinana og segir við þá: 2 „Ég kenni í brjósti um mannfjöldann. Menn hafa nú verið hjá mér þrjá daga og hafa ekkert til matar. 3 Láti ég þá fara fastandi heim til sín örmagnast þeir á leiðinni en sumir þeirra eru langt að.“
4 Þá svöruðu lærisveinarnir: „Hvar er hægt að fá brauð til að metta þetta fólk hér í óbyggðum?“
5 Hann spurði þá: „Hve mörg brauð hafið þið?“
Þeir sögðu: „Sjö.“
6 Þá bauð Jesús fólkinu að setjast á jörðina, tók brauðin sjö, gerði þakkir og braut þau og gaf lærisveinum sínum að þeir bæru þau fram. En þeir báru þau fram fyrir fólkið. 7 Þeir höfðu og fáeina smáfiska. Hann bað Guð að blessa þá og bauð að einnig þeir skyldu bornir fram. 8 Menn neyttu og urðu mettir. Síðan tóku lærisveinarnir saman leifarnar, sjö körfur. 9 En þar voru um fjögur þúsund manns. Síðan lét hann fólkið fara. 10 Og hann sté þegar í bátinn með lærisveinum sínum og kom í Dalmanútabyggðir.
11 Þangað komu farísear og tóku að þrátta við Jesú, þeir vildu freista hans og kröfðu hann um tákn af himni. 12 Hann andvarpaði þungan og mælti: „Hví heimtar þessi kynslóð tákn? Sannlega segi ég ykkur: Þessari kynslóð verður alls ekki gefið tákn.“ 13 Hann skildi síðan við þá, sté aftur í bátinn og fór yfir um.

Súrdeig farísea

14 Lærisveinarnir höfðu gleymt að taka brauð, höfðu ekki nema eitt brauð með sér í bátnum. 15 Jesús áminnti þá og sagði: „Gætið ykkar, varist súrdeig farísea og súrdeig Heródesar.“
16 En þeir ræddu sín á milli að þeir hefðu ekki brauð.
17 Jesús varð þess vís og segir við þá: „Hvað eruð þið að tala um að þið hafið ekki brauð? Skynjið þið ekki enn né skiljið? Eru hjörtu ykkar sljó? 18 Þið hafið augu, sjáið þið ekki? Þið hafið eyru, heyrið þið ekki? Eða munið þið ekki? 19 Þegar ég braut brauðin fimm handa fimm þúsundum, hve margar körfur fullar af brauðbitum tókuð þið saman?“
Þeir svara honum: „Tólf.“
20 „Eða brauðin sjö handa fjórum þúsundunum, hve margar körfur fullar af brauðbitum tókuð þið þá saman?“
Þeir svara: „Sjö.“
21 Og Jesús sagði við þá: „Skiljið þið ekki enn?“

Blindur fær sýn

22 Þeir koma nú til Betsaídu. Þar færa menn til Jesú blindan mann og biðja að hann snerti hann. 23 Hann tók í hönd hins blinda, leiddi hann út úr þorpinu, skyrpti í augu hans, lagði hendur yfir hann og spurði: „Sérðu nokkuð?“
24 Hann leit upp og mælti: „Ég sé menn, ég greini þá líkt og tré, þeir ganga.“
25 Þá lagði Jesús aftur hendur yfir augu hans og nú sá hann skýrt, varð albata og gat greint allt. 26 Jesús sendi hann síðan heim til sín og sagði: „Inn í þorpið máttu ekki fara.“

Játning Péturs

27 Jesús fór nú ásamt lærisveinum sínum til þorpanna hjá Sesareu Filippí. Á leiðinni spurði hann lærisveina sína: „Hvern segja menn mig vera?“
28 Þeir svöruðu honum: „Jóhannes skírara, aðrir Elía og aðrir einn af spámönnunum.“
29 Og hann spurði þá: „En þið, hvern segið þið mig vera?“
Pétur svaraði honum: „Þú ert Kristur.“
30 Og hann lagði ríkt á við þá að segja engum frá sér.

Mannssonurinn á margt að líða

31 Þá tók Jesús að kenna þeim: „Mannssonurinn á margt að líða. Öldungarnir, æðstu prestarnir og fræðimennirnir munu útskúfa honum. Menn munu lífláta hann en hann mun upp rísa eftir þrjá daga.“ 32 Þetta sagði Jesús berum orðum. En Pétur tók hann á einmæli og fór að átelja hann. 33 Jesús sneri sér við, leit til lærisveina sinna, ávítaði Pétur og sagði: „Vík frá mér, Satan, eigi hugsar þú um það sem Guðs er heldur það sem manna er.“
34 Og Jesús kallaði til sín mannfjöldann ásamt lærisveinum sínum og sagði: „Hver sem vill fylgja mér afneiti sjálfum sér, taki kross sinn og fylgi mér. 35 Því að hver sem vill bjarga lífi sínu mun týna því og hver sem týnir lífi sínu vegna mín og fagnaðarerindisins mun bjarga því. 36 Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn en glata sálu sinni? 37 Eða hvað gæti maður látið til endurgjalds fyrir sálu sína? 38 Þegar Mannssonurinn kemur í dýrð föður síns með heilögum englum mun hann blygðast sín fyrir hvern þann sem blygðast sín fyrir mig hjá þessari ótrúu og syndugu kynslóð.“