Til auðmanna

1 Hlustið á, þið auðmenn, grátið og kveinið yfir þeim bágindum sem yfir ykkur munu koma. 2 Auður ykkar er orðinn fúinn og klæði ykkar eru orðin mölétin, 3 gull ykkar og silfur er orðið ryðbrunnið og ryðið á því mun verða ykkur til vitnis og éta hold ykkar eins og eldur. Þið hafið safnað fjársjóðum á síðustu dögum. 4 Launin, sem þið hafið haft af verkamönnunum sem slógu lönd ykkar, hrópa og köll kornskurðarmannanna eru komin til eyrna Drottins hersveitanna. 5 Þið hafið lifað í sællífi á jörðinni og í óhófi. Þið hafið alið hjörtu ykkar á slátrunardegi. 6 Þið hafið sakfellt og drepið hinn réttláta. Hann veitir ykkur ekki viðnám.

Þreyið og biðjið

7 Þreyið því, systkin,[ þangað til Drottinn kemur. Sjáið akuryrkjumanninn! Hann bíður eftir hinum dýrmæta ávexti jarðarinnar og þreyir eftir honum þangað til hann hefur fengið haustregn og vorregn. 8 Verið þið einnig þolinmóð, styrkið hjörtu ykkar því að Drottinn er í nánd.
9 Kvartið ekki hvert yfir öðru, systkin,[ svo að þið verðið ekki dæmd. Dómarinn stendur fyrir dyrum. 10 Bræður og systur,[ takið spámennina til fyrirmyndar sem talað hafa í nafni Drottins og liðið illt með þolinmæði. 11 Því við teljum þá sæla sem þolgóðir hafa verið. Þið hafið heyrt um þolgæði Jobs og vitið hvaða lyktir Drottinn gerði á högum hans. Drottinn er mjög miskunnsamur og líknsamur.
12 En umfram allt, bræður mínir og systur,[ sverjið ekki, hvorki við himininn né við jörðina né nokkurn annan eið. En já ykkar sé já, nei ykkar sé nei, svo að Guð dæmi ykkur ekki.
13 Líði nokkrum illa ykkar á meðal, þá biðji hann. Liggi vel á einhverjum, þá syngi hann lofsöng. 14 Sé einhver sjúkur ykkar á meðal, þá kalli hann til sín öldunga safnaðarins og þeir skulu smyrja hann með olíu í nafni Drottins og biðja fyrir honum. 15 Trúarbænin mun gera hinn sjúka heilan og Drottinn mun reisa hann á fætur. Þær syndir, sem hann kann að hafa drýgt, verða honum fyrirgefnar. 16 Játið því hvert fyrir öðru syndir ykkar og biðjið hvert fyrir öðru til þess að þið verðið heilbrigð. Kröftug bæn réttláts manns megnar mikið.
17 Elía var maður eins og við. Hann bað þess heitt að ekki skyldi rigna og það rigndi ekki yfir landið í þrjú ár og sex mánuði. 18 Hann bað aftur og himinninn gaf regn og jörðin bar sinn ávöxt.
19 Bræður mínir og systur,[ ef einhver meðal ykkar villist frá sannleikanum og einhver snýr honum aftur, 20 þá viti hann að hver sem snýr syndara frá villu vegar hans mun frelsa sálu hans frá dauða og bæta fyrir fjölda synda.