Réttindi presta og Levíta

1 Enginn Levítaprestur, enginn af ættkvísl Leví, skal hljóta land eða erfðahlut eins og aðrir í Ísrael. Þeir skulu hafa viðurværi af eldfórnum Drottins, af erfðahlut hans. 2 Ættbálkur Leví skal ekki fá erfðahlut meðal bræðra sinna. Drottinn er erfðahlutur hans eins og Drottinn hefur heitið honum.
3 Þennan rétt skulu prestarnir hafa hjá þjóðinni, af hálfu þeirra sem færa sláturfórn, hvort heldur naut eða lamb: prestinum skal gefa bóginn, báða kjammana og vinstrina. 4 Þú skalt gefa prestinum frumgróðann af korni þínu, víni og olíu og fyrstu ullina sem þú tekur af sauðfé þínu. 5 Því að Drottinn, Guð þinn, hefur valið ættbálk Leví úr öllum öðrum ættbálkum þínum til þess að hann gegni þjónustu í nafni Drottins alla ævidaga sína.
6 Þegar Levíti úr einhverri borg þinni, einhvers staðar í Ísrael, þar sem hann hefur dvalist sem aðkomumaður, vill koma til staðarins sem Drottinn velur er hann frjáls að því svo oft sem hann vill. 7 Hann má þjóna þar í nafni Drottins eins og allir aðrir bræður hans, Levítarnir, sem gegna þjónustu frammi fyrir Drottni. 8 Þeir skulu fá sama hlut og hinir sér til viðurværis enda þótt þeir hafi þegið fé fyrir föðurleifð sína.

Gegn heiðnum siðum

9 Þegar þú kemur inn í landið sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér skaltu ekki temja þér sömu svívirðingar og þjóðirnar þar.
10 Á meðal ykkar má enginn finnast sem lætur son sinn eða dóttur ganga gegnum eld, enginn sem leitar goðsvara með hlutkesti, enginn sem les óorðna atburði úr skýjum eða úr bikar, enginn galdramaður, 11 enginn sem fer með særingar, leitar ráða hjá öndum eða spásagnarmönnum, enginn sem leitar úrskurðar hjá framliðnum.
12 Því að hver sem stundar þetta er Drottni viðurstyggð. Sakir þessara viðurstyggða rýmdi Drottinn þjóðum landsins úr vegi ykkar. 13 Þú skalt vera óskiptur með Drottni, Guði þínum. 14 Þessar þjóðir, sem þú hrekur burt, hafa hlýtt skýjaspámönnum og þeim sem lesa úr hlutkesti en Drottinn, Guð þinn, hefur ekki ætlað þér slíkt.
15 Spámann slíkan sem ég er mun Drottinn, Guð þinn, láta fram koma úr hópi ættbræðra þinna. Á hann skuluð þið hlýða. 16 Hann mun að öllu leyti uppfylla það sem þú baðst Drottin, Guð þinn, um á Hóreb daginn sem þið komuð þar saman og þú sagðir: „Lát mig ekki heyra aftur þrumuraust Drottins, Guðs míns, né líta aftur þennan mikla eld svo að ég deyi ekki.“ 17 Þá sagði Drottinn við mig: „Það sem þeir segja er rétt. 18 Fyrir þá mun ég láta fram koma spámann slíkan sem þú ert úr hópi bræðra þeirra. Ég mun leggja honum orð mín í munn og hann mun boða þeim allt sem ég býð honum. 19 Og hvern þann sem ekki hlýðir á þau orð, sem spámaðurinn flytur í mínu nafni, mun ég sjálfur draga til ábyrgðar.
20 En sá spámaður, sem dirfist að tala það í mínu nafni, sem ég hef ekki falið honum, eða flytur boðskap í nafni annarra guða, sá spámaður skal deyja.
21 Ef þú hugsar með sjálfum þér: Hvernig getum við þekkt það orð sem Drottinn hefur ekki talað? 22 skaltu vita: Þegar spámaður talar í nafni Drottins og það sem hann hefur sagt kemur hvorki fram né rætist, þá eru það orð sem Drottinn hefur ekki talað. Spámaðurinn hefur talað af ofdirfsku sinni, þú þarft ekki að óttast neitt sem hann segir.“