1Eigi skulu levítaprestarnir, öll kynkvísl Leví, fá hlut og óðal með Ísrael. Á eldfórnum Drottins og erfðahluta hans skulu þeir lifa.2En óðal skulu þeir eigi fá meðal bræðra sinna. Drottinn er óðal þeirra, eins og hann hefir heitið þeim.3Þessi skulu vera réttindi prestanna af hálfu lýðsins, af hálfu þeirra manna, er fórna sláturfórn, hvort heldur er nauti eða sauð: Presti skal gefa bóginn, báða kjammana og vinstrina.4Frumgróðann af korni þínu, aldinlegi þínum og olíu þinni og fyrstu ullina, sem þú klippir af sauðfé þínu, skalt þú gefa honum.5Því að Drottinn Guð þinn hefir útvalið hann af öllum kynkvíslum þínum, til þess að hann og synir hans gegni þjónustu í nafni Drottins alla daga.6Nú kemur levíti úr einhverri af borgum þínum í öllum Ísrael, þar er hann dvelur sem útlendingur og hann má koma eftir vild sinni til þess staðar, er Drottinn velur,7og má hann þá gegna þjónustu í nafni Drottins Guðs síns eins og allir bræður hans, levítarnir, er standa þar frammi fyrir Drottni.8Þeir skulu fá jafnan hlut til viðurværis, án tillits til þess, er hann fær fyrir selda séreign sína.9Þegar þú kemur inn í landið, sem Drottinn Guð þinn gefur þér, þá skalt þú ekki taka upp svívirðingar þessara þjóða.10Eigi skal nokkur finnast hjá þér, sá er láti son sinn eða dóttur ganga gegnum eldinn, eða sá er fari með galdur eða spár eða fjölkynngi, eða töframaður11eða gjörningamaður eða særingamaður eða spásagnamaður eða sá er leiti frétta af framliðnum.12Því að hver sá, er slíkt gjörir, er Drottni andstyggilegur, og fyrir slíkar svívirðingar rekur Drottinn Guð þinn þá burt undan þér.13Þú skalt vera grandvar gagnvart Drottni Guði þínum.14Því að þessar þjóðir, er þú rekur nú burt, hlýða á spásagnamenn og galdramenn, en þér hefir Drottinn Guð þinn eigi leyft slíkt.15Spámann mun Drottinn Guð þinn upp vekja meðal þín, af bræðrum þínum, slíkan sem ég er. Á hann skuluð þér hlýða.16Mun þannig fyllilega rætast það, er þú baðst Drottin Guð þinn um hjá Hóreb, daginn sem þér voruð þar saman komnir, er þú sagðir: Eigi vildi ég lengur þurfa að heyra raust Drottins Guðs míns né oftar að sjá þennan mikla eld, svo að ég deyi ekki.17Þá sagði Drottinn við mig: Vel er það mælt, sem þeir segja.18Ég vil upp vekja þeim spámann meðal bræðra þeirra, slíkan sem þú ert, og ég mun leggja honum mín orð í munn, og hann skal mæla til þeirra allt það, er ég býð honum.19Og hvern þann, er eigi vill hlýða á orð mín, þau er hann mun flytja í mínu nafni, hann mun ég krefja reikningsskapar.20En sá spámaður, sem dirfist að tala í mínu nafni það, er ég hefi eigi boðið honum að tala, og sá sem talar í nafni annarra guða, sá spámaður skal deyja.21Ef þú segir í hjarta þínu: Hvernig fáum vér þekkt úr þau orð, er Drottinn hefir ekki talað?22þá vit, að þegar spámaður talar í nafni Drottins og það rætist eigi né kemur fram, þá eru það orð, sem Drottinn hefir eigi talað. Af ofdirfsku sinni hefir spámaðurinn talað það, þú þarft ekki að hræðast hann.

18.1 Levítaprestar 5Mós 17.9+
18.1-8 Viðurværi levítanna 1Kor 9.13+
18.2 Drottinn, erfðahlutur levítanna 5Mós 10.9+
18.3 Skattgreiðsla 3Mós 7.34+
18.4 Frumgróði 5Mós 26.1-11
18.5 Guð hefir útvalið Leví 5Mós 33.8-11 – þjónusta 5Mós 10.8+
18.6 Levítarnir í helgidóminum í Jerúsalem sbr 2Kon 23.8-9
18.9 Forðast venjur Kanaaníta 3Mós 18.3+
18.10 Barnsfórn 3Mós 18.21+ – leita goðsvara, lesa óorðna atburði 3Mós 19.26+
18.11 Leita til særingar- eða spásagnaranda 3Mós 19.31+
18.12 Rýma úr vegi 5Mós 4.38+ – Drottni viðurstyggilegt 5Mós 7.25+
18.13 Óskiptur (fullkominn) Matt 5.48
18.15 Spámaður eins og Móse sbr 5Mós 34.10; 4Mós 12.6-8 – hlýða á Mrk 9.7 og hlst. Post 3.22
18.16 Lýðurinn heimtar meðalgangara 5Mós 5.23-31; 2Mós 20.18-21
18.18 Leggja orð í munn 2Mós 4.15; Jes 51.16; 59.21; Jer 1.9; Esk 3.1-10; Opb 10.9-11; sbr 2Mós 4.12+
18.20 Aðrir guðir 2Mós 20.3+
18.20-22 Falsspámenn Jer 28.7-9,15-17