Réttlætið leiðir til ódauðleika

1 Elskið réttlætið, þér sem drottnið á jörðu.
Hugsið til Drottins af alúð
og leitið hans af einlægu hjarta.
2 Hann lætur þá finna sig sem freista hans ekki
og hann birtist þeim sem vantreysta honum ekki.
3 Rangar hugsanir fjarlægja menn Guði
og máttur hans afhjúpar heimsku þeirra sem freista hans.
4 Spekin kemst ekki inn í þá sál sem illt smíðar
og tekur sér ekki bústað í líkama sem ofurseldur er synd.
5Því að heilagur andi, sem menntar, flýr svik
og forðast ráðabrugg fávísra;
þegar ranglætið nálgast afhjúpar hann sig.

Guð heyrir orð vor

6Spekin er andi sem elskar menn
og lætur orðum lastarans ekki óhegnt.
Guð er vitni þess sem bærist með manninum,
vakir yfir hjarta hans
og hlýðir á það sem hann mælir.
7 Andi Drottins fyllir alla heimsbyggðina,
hann heldur öllu í skorðum og nemur hvert hljóð.
8 Þess vegna getur enginn dulist sem fer með ranglátt mál
né vikist undan réttlætisdómi hans.
9 Vélráð hins óguðlega munu rannsökuð,
orð hans munu berast Drottni
og sanna misgjörðir hans.
10 Því að Drottinn hlustar eftir öllu með vandlæti,
minnsti kurr fer ekki fram hjá honum.
11 Varist því ónytsamt mögl
og gætið þess að mæla ekki öðrum á bak.
Það sem sagt er í leyndum dregur dilk á eftir sér
og lyginn munnur tortímir sálinni.

Guð er ekki valdur að dauðanum

12Sækist ekki eftir dauðanum með ráðleysi
og leiðið ekki yfir yður glötun með handaverkum yðar.
13 Guð er ekki valdur að dauðanum
og gleðst ekki yfir að líf deyr.
14 Guð skapaði allt til þess að það lifði.
Allt sem skapað er í heiminum er heilnæmt
og í því er ekkert banvænt eitur
né heldur ríkir Hel á jörðu.
15 Réttlætið er ódauðlegt.

Viðhorf hinna guðlausu

16En guðlausir kalla dauðann yfir sig með orðum og verkum
og telja hann eftirsóknarverðan vin.
Þeir gera sáttmála við hann
og eru maklegir þess að ganga honum í greipar.