Guð reynir Abraham

1 Eftir þessa atburði reyndi Guð Abraham. Hann mælti til hans: „Abraham.“
Og hann svaraði: „Hér er ég.“
2 Hann sagði: „Tak þú son þinn, einkason þinn sem þú elskar, hann Ísak, og far þú til Móríalands og fórna honum sem brennifórn á því fjalli sem ég mun vísa þér á.“
3 Árla morguns söðlaði Abraham asna sinn, tók með sér tvo af sveinum sínum og Ísak son sinn, klauf við til brennifórnar, lagði síðan af stað og hélt til þess staðar sem Guð hafði sagt honum. 4 Á þriðja degi hóf Abraham upp augu sín og sá staðinn álengdar. 5 Hann sagði við sveina sína: „Bíðið hérna hjá asnanum en við drengurinn munum ganga þangað upp eftir til að biðjast fyrir og komum svo til ykkar aftur.“
6 Abraham tók nú brennifórnarviðinn og lagði Ísak syni sínum á herðar en eldinn og hnífinn tók hann sér í hönd.
Og þeir gengu báðir saman.
7 Þá sagði Ísak við Abraham föður sinn: „Faðir minn.“
Og hann svaraði: „Hér er ég, sonur minn.“
Ísak mælti: „Hér er eldurinn og viðurinn. En hvar er sauðurinn til brennifórnarinnar?“
8 Abraham svaraði: „Guð mun sjá sér fyrir sauð til brennifórnar, sonur minn.“
Og þeir gengu báðir saman.
9 Nú komu þeir á staðinn sem Guð hafði talað um. Þar reisti Abraham altari, lagði viðinn á, batt Ísak son sinn og lagði hann á altarið ofan á viðinn. 10 Þá tók Abraham hnífinn í hönd sér til þess að slátra syni sínum. 11 En engill Drottins kallaði til hans af himni og mælti: „Abraham! Abraham!“
Og hann svaraði: „Hér er ég.“
12 Engillinn sagði: „Leggðu ekki hönd á sveininn og gerðu honum ekkert því að nú veit ég að þú óttast Guð. Þú hefur jafnvel ekki synjað mér um son þinn, einkason þinn.“
13 Þá hóf Abraham upp augu sín og sá hvar hrútur var fastur á hornunum í greinaþykkni. Fór hann þangað, tók hrútinn og fórnaði honum sem brennifórn í stað sonar síns. 14 Og Abraham nefndi stað þennan „Drottinn sér“ og því segja menn enn í dag: „Á fjallinu birtist Drottinn.“
15 Engill Drottins kallaði öðru sinni til Abrahams af himni 16 og mælti: „Ég sver við sjálfan mig, segir Drottinn: Af því að þú gerðir þetta og synjaðir mér ekki um einkason þinn 17 mun ég ríkulega blessa þig og margfalda kyn þitt mikillega eins og stjörnur á himni, eins og sand á sjávarströnd. Og niðjar þínir skulu ná borgarhliðum óvina sinna. 18 Allar þjóðir heims munu blessun hljóta af niðjum þínum vegna þess að þú hlýðnaðist raust minni.“
19 Abraham sneri nú aftur til sveina sinna og þeir tóku sig upp og gengu saman til Beerseba. Og Abraham bjó í Beerseba.

Ætt Nahors, bróður Abrahams

20 Svo bar við eftir þessa atburði að sagt var við Abraham: „Milka hefur einnig fætt. Hún hefur fætt Nahor bróður þínum syni: 21 Ús, frumgetinn son hans, Bús, bróður hans, Kemúel, ættföður Aramea, 22 Kesed, Kasó, Píldas, Jídlaf og Betúel.“
23 En Betúel gat Rebekku. Þessa átta syni fæddi Milka Nahor, bróður Abrahams.
24 Hjákona hans hét Reúma. Hún fæddi einnig syni: Tebak, Gaham, Tahas og Maaka.