Fyrir Pílatusi

1 Þegar að morgni gerðu æðstu prestarnir samþykkt með öldungunum, fræðimönnunum og öllu ráðinu. Þeir létu binda Jesú og færa brott og framseldu hann Pílatusi. 2 Pílatus spurði hann: „Ert þú konungur Gyðinga?“
Jesús svaraði: „Það eru þín orð.“
3 En æðstu prestarnir báru á hann margar sakir. 4 Pílatus spurði hann aftur: „Svarar þú engu? Þú heyrir hve þungar sakir þeir bera á þig.“
5 En Jesús svaraði engu framar og undraðist Pílatus það.

Krossfestu hann!

6 En á hátíðinni var Pílatus vanur að gefa þeim lausan einn bandingja, þann er þeir báðu um. 7 Maður að nafni Barabbas var þá í böndum ásamt upphlaupsmönnum. Höfðu þeir framið manndráp í upphlaupinu. 8 Nú kom mannfjöldinn og tók að biðja að Pílatus veitti þeim hið sama og hann væri vanur. 9 Pílatus svaraði þeim: „Viljið þið að ég gefi ykkur lausan konung Gyðinga?“ 10 Hann vissi að æðstu prestarnir höfðu fyrir öfundar sakir framselt hann. 11 En æðstu prestarnir æstu múginn til að heimta að hann gæfi þeim heldur Barabbas lausan. 12 Pílatus tók enn til máls og sagði við þá: „Hvað á ég þá að gera við þann sem þið kallið konung Gyðinga?“
13 En þeir æptu á móti: „Krossfestu hann!“
14 Pílatus spurði: „Hvað illt hefur hann þá gert?“
En þeir æptu því meir: „Krossfestu hann!“
15 En með því að Pílatus vildi gera fólkinu til hæfis gaf hann því Barabbas lausan. Hann lét húðstrýkja Jesú og framseldi hann til krossfestingar.

Hæddur

16 Hermennirnir fóru með Jesú inn í höllina, aðsetur landshöfðingjans, og kölluðu saman alla hersveitina. 17 Þeir færa hann í purpuraskikkju, flétta þyrnikórónu og setja á höfuð honum. 18 Þá tóku þeir að heilsa honum: „Heill þér, konungur Gyðinga!“ 19 Og þeir slógu höfuð hans með reyrsprota og hræktu á hann, féllu á kné og hylltu hann. 20 Þegar þeir höfðu spottað hann færðu þeir hann úr purpuraskikkjunni og í hans eigin klæði. Þá leiddu þeir Jesú út til að krossfesta hann.

Krossfestur

21 En maður nokkur átti leið þar hjá og var að koma utan úr sveit. Hann neyða þeir til að bera kross Jesú. Það var Símon frá Kýrene, faðir þeirra Alexanders og Rúfusar.
22 Þeir fara með Jesú til þess staðar er heitir Golgata, það þýðir hauskúpustaður. 23 Þeir báru honum vín, blandað myrru, en hann þáði ekki.
24 Þá krossfestu þeir hann. Og þeir skiptu með sér klæðum hans og köstuðu hlutum um hvað hver skyldi fá. 25 En það var um dagmál[ er þeir krossfestu hann. 26 Og yfirskriftin um sakargift hans var svo skráð: KONUNGUR GYÐINGA.
27 Með honum krossfestu þeir tvo ræningja, annan til hægri handar honum en hinn til vinstri. [ 28 Þá rættist sú ritning er segir: Með illvirkjum var hann talinn.][
29 Þeir sem fram hjá gengu hæddu hann, skóku höfuð sín og sögðu: „Svei, þú sem brýtur niður musterið og reisir það á þrem dögum! 30 Bjarga nú sjálfum þér og stíg niður af krossinum.“
31 Eins gerðu æðstu prestarnir gys að honum og fræðimennirnir og sögðu hver við annan: „Öðrum bjargaði hann, sjálfum sér getur hann ekki bjargað. 32 Stígi nú Kristur, konungur Ísraels, niður af krossinum svo að við getum séð og trúað.“
Einnig smánuðu hann þeir sem með honum voru krossfestir.

Myrkur um allt land

33 Á hádegi varð myrkur um allt land til nóns.[ 34 Og á nóni kallaði Jesús hárri röddu: „Elóí, Elóí, lama sabaktaní!“ Það þýðir: Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?
35 Nokkrir þeirra er hjá stóðu heyrðu þetta og sögðu: „Heyrið, hann kallar á Elía!“ 36 Hljóp þá einn til, fyllti njarðarvött ediki, stakk á reyrstaf og gaf honum að drekka. Hann mælti: „Látum sjá hvort Elía kemur að taka hann ofan.“
37 En Jesús kallaði hárri röddu og gaf upp andann.
38 Og fortjald musterisins rifnaði í tvennt, ofan frá og allt niður úr.
39 Þegar hundraðshöfðinginn, sem stóð gegnt honum, sá hann gefa upp andann á þennan hátt sagði hann: „Sannarlega var þessi maður sonur Guðs.“
40 Þar voru og konur álengdar og horfðu á, meðal þeirra María Magdalena, María, móðir þeirra Jakobs yngra og Jóse, og Salóme. 41 Þær höfðu fylgt honum og þjónað er hann var í Galíleu. Þar voru margar aðrar konur sem höfðu farið með honum upp til Jerúsalem.

Lagður í gröf

42 Nú var komið kvöld. Þá var aðfangadagur, það er dagurinn fyrir hvíldardag. 43 Þá kom Jósef frá Arímaþeu, göfugur ráðsherra, er sjálfur vænti Guðs ríkis. Hann áræddi að fara inn til Pílatusar og biðja um líkama Jesú. 44 Pílatus furðaði á að hann skyldi þegar vera andaður. Hann kallaði til sín hundraðshöfðingjann og spurði hvort hann væri þegar látinn. 45 Og er hann varð þess vís hjá hundraðshöfðingjanum gaf hann Jósef líkið. 46 En hann keypti línklæði, tók hann ofan, sveipaði hann línklæðinu og lagði í gröf, höggna í klett, og velti steini fyrir grafarmunnann. 47 María Magdalena og María móðir Jóse sáu hvar hann var lagður.