1Verið eftirbreytendur mínir eins og ég er eftirbreytandi Krists.2Ég hrósa yður fyrir það, að þér í öllu minnist mín og haldið fast við kenningarnar, eins og ég flutti yður þær.3En ég vil, að þér vitið, að Kristur er höfuð sérhvers manns, maðurinn er höfuð konunnar og Guð höfuð Krists.4Sérhver sá maður, sem biðst fyrir eða flytur spádóma Guðs og hefur á höfðinu, hann óvirðir höfuð sitt.5En sérhver kona, sem biðst fyrir eða flytur spádóma Guðs berhöfðuð, óvirðir höfuð sitt. Það er hið sama sem hún hefði látið krúnuraka sig.6Ef konan því vill ekki hylja höfuð sitt, þá láti hún klippa sig. En ef það er óvirðing fyrir konuna að láta klippa eða raka hár sitt, þá hafi hún á höfðinu.7Karlmaður á ekki að hylja höfuð sitt, því að hann er ímynd og vegsemd Guðs, en konan er vegsemd mannsins.8Því ekki er maðurinn af konunni kominn, heldur konan af manninum,9og ekki var heldur maðurinn skapaður vegna konunnar, heldur konan vegna mannsins.10Þess vegna á konan vegna englanna að bera tákn um yfirráð mannsins á höfði sér.11Þó er hvorki konan óháð manninum né maðurinn konunni í samfélaginu við Drottin,12því að eins og konan er komin af manninum, svo er og maðurinn fæddur af konunni, en allt er frá Guði.13Dæmið sjálfir: Sæmir það konu að biðja til Guðs berhöfðuð?14Kennir ekki sjálf náttúran yður, að ef karlmaður ber sítt hár, þá er það honum vansæmd,15en ef kona ber sítt hár, þá er það henni sæmd? Því að síða hárið er gefið henni í höfuðblæju stað.16En ætli nú einhver sér að gjöra þetta að kappsmáli, þá viti sá, að annað er ekki venja vor eða safnaða Guðs.17En um leið og ég áminni um þetta, get ég ekki hrósað yður fyrir samkomur yðar, sem eru fremur til ills en góðs.18Í fyrsta lagi heyri ég, að flokkadráttur eigi sér stað á meðal yðar, er þér komið saman á safnaðarsamkomum, og því trúi ég að nokkru leyti.19Víst verður að vera flokkaskipting á meðal yðar, til þess að þeir yðar þekkist úr, sem hæfir eru.20Þegar þér komið saman er það ekki til þess að neyta máltíðar Drottins,21því að við borðhaldið hrifsar hver sína máltíð, svo einn er hungraður, en annar drekkur sig ölvaðan.22Hafið þér þá ekki hús til að eta og drekka í? Eða fyrirlítið þér söfnuð Guðs og gjörið þeim kinnroða, sem ekkert eiga? Hvað á ég að segja við yður? Á ég að hæla yður fyrir þetta? Nei, ég hæli yður ekki.23Því að ég hef meðtekið frá Drottni það, sem ég hef kennt yður: Nóttina, sem Drottinn Jesús var svikinn, tók hann brauð,24gjörði þakkir, braut það og sagði: Þetta er minn líkami, sem er fyrir yður. Gjörið þetta í mína minningu.25Sömuleiðis tók hann og bikarinn eftir kvöldmáltíðina og sagði: Þessi bikar er hinn nýi sáttmáli í mínu blóði. Gjörið þetta, svo oft sem þér drekkið, í mína minningu.26Svo oft sem þér etið þetta brauð og drekkið af bikarnum, boðið þér dauða Drottins, þangað til hann kemur.27Hver sem etur brauðið eða drekkur bikar Drottins óverðuglega, verður þess vegna sekur við líkama og blóð Drottins.28Hver maður prófi sjálfan sig og eti síðan af brauðinu og drekki af bikarnum.29Því að sá sem etur og drekkur án þess að dæma rétt um líkamann, hann etur og drekkur sjálfum sér til dóms.30Fyrir því eru svo margir sjúkir og krankir á meðal yðar, og allmargir deyja.31Ef vér dæmdum um sjálfa oss, yrðum vér ekki dæmdir.32En fyrst Drottinn dæmir oss, þá er hann að aga oss til þess að vér verðum ekki dæmdir sekir ásamt heiminum.33Fyrir því skuluð þér bíða hver eftir öðrum, bræður mínir, þegar þér komið saman til að matast.34Ef nokkur er hungraður, þá eti hann heima, til þess að samkomur yðar verði yður ekki til dóms. Annað mun ég segja til um, þegar ég kem.

11.1 Breytið eftir mér 1Kor 4.16+
11.3 Kristur er höfuð sérhvers karlmanns Ef 5.23 – höfuð konunnar 1Mós 3.16; Ef 5.23 – Guð höfuð Krists 1Kor 3.23
11.7 Ímynd og dýrð Guðs 1Mós 1.27; 5.1; 9.6; SSal 2.23; Jak 3.9
11.8 Konan af karlinum 1Mós 2.21-23; 1Tím 2.13
11.9 Vegna karlsins 1Mós 2.18
11.18 Skiptist í hópa 1Kor 1.10-12; 3.3
11.19 Hverjum má treysta 5Mós 13.3; 1Jóh 2.19
11.22 Óvirða fátæka Jak 2.5-6
11.23-25 Kvöldmáltíðin Matt 26.26-28; Mrk 14.22-24; Lúk 22.19-20
11.25 Hinn nýji sáttmáli 2Mós 24.8; Jer 31.31; 32.40; 2Kor 3.6; Heb 8.8-13 – í mínu blóði 2Mós 24.6-8; Sak 9.11
11.26 Þangað til hann kemur Matt 26.29
11.27 Sekur Heb 10.29
11.28 Prófa sjálfan sig Matt 26.22; 2Kor 13.5
11.30 Deyja (sofna) Ef 5.14; 1Þess 5.6; sbr Matt 9.24+
11.32 Drottinn agar Heb 12.5-6