Kveðja
1 Símon Pétur, þjónn og postuli Jesú Krists, heilsar þeim sem Guð vor og frelsari Jesús Kristur hefur í réttlæti sínu gefið sömu dýrmætu trú og mér.
2 Náð og friður margfaldist með yður með þekkingu á Guði og Jesú, Drottni vorum.
Hluttakendur í guðlegu eðli
3 Með guðlegum mætti sínum hefur Jesús Kristur gefið okkur allt sem þarf til lífs í guðrækilegri breytni, með þekkingunni á honum sem hefur kallað okkur með dýrð sinni og dáð.[ 4 Með því hefur hann veitt okkur dýrmæt og háleit fyrirheit sem fela í sér að þið komist undan spillingunni í heiminum sem girndin veldur og verðið hluttakendur í guðlegu eðli. 5 Leggið þess vegna alla stund á að sýna í trú ykkar dygð og í dygðinni þekkingu, 6 í þekkingunni sjálfsaga, í sjálfsaganum þolgæði, í þolgæðinu guðrækni, 7 í guðrækninni bróðurelsku og í bróðurelskunni kærleika. 8 Ef þið hafið þetta til að bera og vaxið í því verðið þið hvorki iðjulaus né mun þekking ykkar á Drottni vorum Jesú Kristi reynast dáðlaus og ávaxtalaus. 9 En sá sem ekki hefur þetta til að bera er blindur í skammsýni sinni og hefur misst sjónar á að hann hafi verið hreinsaður af fyrri syndum sínum.
10 Kostið þess vegna fremur kapps um, systkin,[ að gera köllun ykkar og útvalning vissa. Ef þið gerið það munuð þið aldrei hrasa. 11 Þá mun ykkur ríkulega veitast inngangur í hið eilífa ríki Drottins vors og frelsara Jesú Krists.
12 Þess vegna ætla ég mér ávallt að minna ykkur á þetta enda þótt þið vitið það og hvikið ekki frá sannleikanum sem þið nú hafið öðlast. 13 Ég álít mér líka skylt, á meðan ég er í þessari tjaldbúð, að halda ykkur vakandi með því að rifja þetta upp fyrir ykkur. 14 Ég veit að þess mun skammt að bíða að tjaldbúð minni verði svipt. Það hefur Drottinn vor Jesús Kristur birt mér. 15 Ég vil einnig leggja kapp á að þið ætíð eftir burtför mína getið minnst þessa.
Sjónarvottar að hátign hans
16 Ekki notaði ég uppspunnar skröksögur er ég kunngjörði ykkur mátt og komu Drottins vors Jesú Krists heldur hafði ég verið sjónarvottur að hátign hans. 17 Því hann meðtók af Guði föður heiður og dýrð þá er raust barst honum frá hinni dýrlegu hátign: „Þessi er minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á.“ 18 Þessa raust heyrði ég sjálfur koma frá himni þá er ég var með honum á fjallinu helga.
19 Nú getum við enn betur treyst orði spámannanna. Það er rétt af ykkur að gefa gaum að því eins og ljósi sem skín á myrkum stað þangað til dagur ljómar og morgunstjarnan rennur upp í hjörtum ykkar. 20 Vitið það umfram allt að enginn þýðir neinn spádóm Ritningarinnar af sjálfum sér. 21 Því að aldrei var nokkur spádómur borinn fram að vilja manns heldur töluðu menn orð frá Guði, knúðir af heilögum anda.